Reykjavík - 30.05.2015, Qupperneq 12

Reykjavík - 30.05.2015, Qupperneq 12
19 Reykjavíkurborg - skrifstofa eigna og atvinnuþróunar ı s. 411 11 11 Reykjavíkurborg býður til sölu byggingarrétt á Lambhagavegi 19. Byggingarheimild er alls 2.474 fermetrar og nær hún til íbúðarhúss, gróðurhúss og þjónustu- bygginga (skemmur, áhaldahús og pökkunarhús). Íbúðarhúsnæði má ekki fara yfir 500 fermetra og þjónustubyggingar ekki yfir 592 fermetra. Á þeim fermetrum sem eftir standa er heimilt að byggja gróðurhús. Tilboðsgjafi skal sýna fram á jákvæða eiginfjárstöðu með framlagningu endurskoðaðs ársreiknings síðasta árs eða ársreiknings ársins á undan ásamt árshlutareikningi vegna síðasta árs. Tilboð í byggingarrétt skulu berast fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. júní. Þeim skal skila í þjónustuver Reykjavíkurborgar Borgartúni 12 - 14 í lokuðu umslagi merkt „Lambhagavegur 19“. Tilboð verða opnuð sama dag kl. 14:15 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Nánari upplýsingar og skilmálar eru á vef Reykjavíkurborgar: reykjavik.is/lodir Byggingarréttur R E Y K J A V Í K U R B O R G Íbúð, gróðurhús og þjónustubyggingar Lóðin Lambhagavegur 19 er til sölu Höfum rútur af öllum stærðum og gerðum, vel búnar til aksturs hvort sem er innan- eða utanbæjar. ÞÓRSMÖRK OG LANDMANNALAUGAR Daglegar ferðir frá 13. júní til 15. september. Ekið í Langadal, Bása og að skála í Landmannalaugum. Tilvalið að fara dagsferð eða gista á milli ferða. Skoðið tímatöflur og brottfararstaði á trex.is. Hesthálsi 10 - 110 Reykjavík - sími: 587 6000 - info@trex.is - www.trex.is TAKTU RÚTU! Bókanir &upplýsingar á TREX.IS LEITIÐ TILBOÐA! 30. Maí 201512 REYKJAVÍK VIKUBLA Ð VI KU BL AÐREYKJAVÍK Auglýsingasíminn er 578 1190 Stórafmæli Ölduselsskóla Nemendur og starfsfólk Ölduselsskóla fögnuðu fjörutíu ára afmæli skólans á dögunum með mikilli hátíð. Grillaðar voru pylsur og sykurpúðar auk þess sem hægt var að róa á kjaja í sundlaug skólans, eða fara í hoppukastala, fá andlitsmálun, fara á hestbak og ým- islegt fleira. Stuttmyndahátíð grunnskólanema: Aldrei fleiri myndir Stuttmyndahátíðin var haldin í 35. sinn í Bíó Paradís 28. maí og var þétt setinn bekkurinn. Aldrei áður hafa verið sendar jafn margar myndir inn í keppnina sem hóf göngu sína 1981. Alls bárust um 100 myndir í keppn- ina og hafa aldrei fleiri myndir verið sendar í keppnina, að því er segir í frásögn um framtakið á vef borgar- innar. Myndirnar kepptu til sigurs í fjórum flokkum yngri og eldri nem- enda; leiknum stuttmyndum, hreyfi- myndum, heimildarmyndum og tón- listarmyndböndum. Óhætt er að segja að mikil gróska sé nú í kvikmyndagerð í grunnskólum, félagsmiðstöðvum og frístundaheimilum segir í umfjöllun- inni á vef Reykjavíkurborgar. Mikil hugmyndaauðgi einkenni kvikmynda- gerðina og tæknifærni. Þar er jafnframt bent á að margmiðlunarver skóla- og frístundasviðs hafi yfirumsjón með tæknibúnaði og aðstoði við úrvinnslu myndanna. Þær myndir sem unnu í hverjum flokki voru sýndar í Bíó Paradís. Þær eru: Hreyfimyndin Stökkið sem Tómas Nói Emilsson úr Hlíðaskóla gerði og sigraði í flokki yngri nemenda. Þrjár stúlkur, Helga, Rakel og Sigrún úr Sæmundarskóla fengu verðlaun fyrir bestu hreyfimynd í eldri flokki, myndina Nammi namm. Heimildarmynd um skaðsemi reyk- inga sem nemendur í 7. bekk Keldu- skóla gerðu fékk verðlaun sem besta heimildarmyndin í yngri flokki og þær Karen, Ísabella, Ninja og Hera úr Háteigsskóla gerðu bestu heimildar- myndina í eldri flokki um sjálfsímynd. Tónlistarmyndbandið Rapp sem Ólína Ákadóttir í Grandaskóla gerði vann til verðlauna svo og tónlistar- myndbandið Vicious and delicious sem eldri nemendur í Langholtsskóla gerðu. Besta stuttmyndin í yngri flokki heitir Garpur og varð gerð af nem- endum í 7. bekk Hamraskóla en besta stuttmyndin í eldri flokki kom úr Voga- skóla og heitir Vitni. Ólína Ákadóttir úr Grandaskóla gerði besta tónlistarmyndbandið í flokki yngri nemenda. Kampakátir nemendur í Hlíðaskóla sem fengu verðlaun fyrir bestu hreyfimyndina í yngri flokki. Karen, Isabella, Ninja og Hera úr Háteigsskóla gerðu vinn- ingsmynd um sjálfsímynd. Þessar stúlkur úr Sæmundarskóla fengu verðlaun fyrir bestu hreyfimynd í eldri flokki en hún heitir Nammi namm. Hrafnhildur, María Rakel, Thelma og andrea gerðu besta tónlistarmyndbandið í eldri flokki en þær stunda nám í Langholtsskóla. 7. bekkur í Hamraskóla vann til verðlauna fyrir bestu stuttmyndina í yngri flokki, myndina Garp. Myndin Vitni úr Vogaskóla var valin besta stuttmyndin í flokki eldri nemenda. Hana gerðu atli Geir, Ásta, Elísabet, Dagbjört, Rakel og Tómas Bragi. 7. bekkur í Kelduskóla-Korpu fékk verðlaun fyrir heim- ildarmynd um skaðsemi reykinga. Nemendur úr Grandaskóla voru sigursælir á kvikmynda- hátíðinni.

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.