Reykjavík - 30.05.2015, Síða 16

Reykjavík - 30.05.2015, Síða 16
STUNDUM VILL MAÐUR BARA KLASSÍK. ÞÁ ER TÍMI FYRIR SÍGILT SÚKKULAÐI. P IP A R / S ÍA TÍMI FYRIR Auglýsingar: 578 1190 & auglysingar@fotspor.is | Ritstjórn: 659-3442 & ingimarkarlhelgason@gmail.com VI KU BL AÐREYKJAVÍK 30. Maí 2015 • 20. tölublað 6. árgangur BAKSÍÐAN Helga Lilja Bergmann VI KU BL AÐREYKJAVÍK Alla laugardaga Auglýsingasíminn er 578 1190 Netfang: auglysingar@fotspor.is www.fotspor.is ALLAN ÁRSINS HRING FÆST Í APÓTEKUM, HEILSUBÚÐUM OG STÓRMÖRKUÐUM www.gulimidinn.is Samviskubitið Að útivinnandi mæður séu þjakaðar af samviskubiti er vel þekkt, þær eru með samviskubit í vinnunni því þeim finnst þær eigi að vera meira heima með börnin og þær eru með samvisku- bit vegna vinnunar ef þær eru heima. Það er reyndar spurning hvort allir for- eldrar séu farnir að finna fyrir þessu nú til dags með vonandi auknu jafnrétti á heimilum? En ég held að mæður (og foreldrar almennt), séu hreinlega alltaf með samviskubit gagnvart börnum sínum. Núna þegar börnin mín eru uppkomin sé ég þetta vel hjá sjálfri mér. Þetta birt- ist þannig að ég geri lítið úr sjálfri mér sem góðum uppalanda, en mikið úr því ef eitthvað var mögulega miður. Þannig að ef sagt er að börnin séu velheppnuð og gott fólk, klár og skemmtileg (sem þau eru að sjálfsögðu!), þá hugsa ég sem svo að þannig séu þau bara að upplagi, hafi fæðst þannig og atlæti á uppvaxtarárum þeirra hafi nú ekkert með það gera. Og ef eitthvað er miður í þeirra fari (sem er auðvitað óhugs- andi!), þá er það augljóslega mér að kenna sem móður þeirra. Ég er líka einstaklega viðkvæm fyrir því þegar afkvæmin rifja upp æskuminningar þar sem mér finnst ég ekki koma sérlega vel út sem upp- alandi, því að auðvitað gekk á ýmsu og eitthvað myndi ég eflaust gera öðru- vísi í dag, en þau virðast þrátt fyrir allt þokkalega sátt við mig svo að kannski var ég bara rosalega góð mamma? VI KU BL AÐREYKJAVÍK Reykjavík vikublað er dreift á öll heimili í Reykjavík í 50 þúsundum eintökum.

x

Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.