Reykjavík - 30.05.2015, Blaðsíða 16
STUNDUM VILL MAÐUR BARA KLASSÍK.
ÞÁ ER TÍMI FYRIR SÍGILT SÚKKULAÐI.
P
IP
A
R
/
S
ÍA
TÍMI FYRIR
Auglýsingar: 578 1190 & auglysingar@fotspor.is | Ritstjórn: 659-3442 & ingimarkarlhelgason@gmail.com
VI
KU
BL
AÐREYKJAVÍK
30. Maí 2015 • 20. tölublað 6. árgangur
BAKSÍÐAN
Helga Lilja
Bergmann
VI
KU
BL
AÐREYKJAVÍK
Alla laugardaga
Auglýsingasíminn er
578 1190
Netfang:
auglysingar@fotspor.is
www.fotspor.is
ALLAN ÁRSINS HRING
FÆST Í APÓTEKUM,
HEILSUBÚÐUM
OG STÓRMÖRKUÐUM
www.gulimidinn.is
Samviskubitið
Að útivinnandi mæður séu þjakaðar
af samviskubiti er vel þekkt, þær eru
með samviskubit í vinnunni því þeim
finnst þær eigi að vera meira heima
með börnin og þær eru með samvisku-
bit vegna vinnunar ef þær eru heima.
Það er reyndar spurning hvort allir for-
eldrar séu farnir að finna fyrir þessu nú
til dags með vonandi auknu jafnrétti á
heimilum?
En ég held að mæður (og foreldrar
almennt), séu hreinlega alltaf með
samviskubit gagnvart börnum sínum.
Núna þegar börnin mín eru uppkomin
sé ég þetta vel hjá sjálfri mér. Þetta birt-
ist þannig að ég geri lítið úr sjálfri mér
sem góðum uppalanda, en mikið úr því
ef eitthvað var mögulega miður. Þannig
að ef sagt er að börnin séu velheppnuð
og gott fólk, klár og skemmtileg (sem
þau eru að sjálfsögðu!), þá hugsa ég
sem svo að þannig séu þau bara að
upplagi, hafi fæðst þannig og atlæti á
uppvaxtarárum þeirra hafi nú ekkert
með það gera. Og ef eitthvað er miður
í þeirra fari (sem er auðvitað óhugs-
andi!), þá er það augljóslega mér að
kenna sem móður þeirra.
Ég er líka einstaklega viðkvæm
fyrir því þegar afkvæmin rifja upp
æskuminningar þar sem mér finnst
ég ekki koma sérlega vel út sem upp-
alandi, því að auðvitað gekk á ýmsu og
eitthvað myndi ég eflaust gera öðru-
vísi í dag, en þau virðast þrátt fyrir allt
þokkalega sátt við mig svo að kannski
var ég bara rosalega góð mamma?
VI
KU
BL
AÐREYKJAVÍK
Reykjavík vikublað er dreift á öll heimili í Reykjavík í 50 þúsundum eintökum.