Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.03.2012, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 22.03.2012, Blaðsíða 22
22 FIMMTUdagUrInn 22. Mars 2012 • VÍKURFRÉTTIR Íslandsmeistaramót í Taekwondo Sparring (bar-daga) verður haldið í íþróttahúsinu á Ásbrú sunnudaginn 25. mars nk. Mótið hefst kl. 10:00 og verður eitthvað fram eftir degi en alls eru 70 kepp- endur skráðir til leiks. Keflvíkingar hafa orðið Íslandsmeistarar félaga síð- ustu 2 ár og nú er stóra spurningin: Verða Keflvík- ingar Íslandsmeistarar 3. árið í röð? Í vor munu 5 iðkendur frá Keflavík taka svarta beltið í Taekwondo og eru þau öll keppendur á Íslands- mótinu. Við hvetjum sem flesta til þess að koma og sjá besta Taekwondolið landsins á heimavelli og styðja við bakið á okkar frábæru keppendum, sem eiga titil að verja. Áfram Keflavík DANSBIKAR BRYN 2012 LAUGARD. 24. MARS kl. 14:00 ANDREWS LEIKHÚS, FLUGVALLARBRAUT 700, ÁSBRÚ, REYKJANESBÆR SÍMI: 426 5560 WWW.BRYN.IS NETFANG: BRYN@BRYN.IS Miðaverð Kr.1500* *Frítt fyrir 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum. LISTDANSSKÓLIREYKJANESBÆJARBRYNBALLETTAKADEMÍAN ALLIR VELKOMNIR Njarðvíkingar ríða á vaðið í úrslitakeppni Ice- land Express-deildar kvenna á morgun en þá koma Snæfell- ingar í heimsókn þegar liðin hefja leik í undanúrslitum Ís- landsmótsins. Þessi lið áttust einmitt við í bikarúrslitunum fyrir skömmu en þá höfðu Njarðvíkingar sigur. Ólöf Helga Pálsdóttir fyrirliði Njarðvíkur telur að ekki megi vanmeta liði Snæfells þrátt fyrir að Njarðvíkingar hafi haft betur í öllum viðureignum liðanna í vetur. „Þetta hafa allt verið erf- iðir sigrar en það er alltaf gaman að keppa gegn Snæfellingum. Maður á ekki að vanmeta þá. Þær eru með gríðarlega erfiðan heimavöll og maður verður að vera með hausinn í lagi ef maður ætlar sér sigur þar. Núna er allt annað mót að hefjast að mati Ólafar og hún segist vera orðin ansi spennt. „Á æfingum er komið allt annað tempo í liðið og við erum allar heilar heilsu og til í slaginn,“ segir Ólöf. „Stemningin breytist þegar úr- slitakeppnin hefst. Það er leikið annan hvern dag og við getum ekki beðið eftir því að byrja að spila, þetta er það sem maður hefur beðið eftir í allan vetur.“ Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir kom inn í Njarðvíkurliðið aftur eftir að hafa tekið sér hlé frá körfubolta um skeið og Ólöf telur að tilkoma hennar muni hafa góð áhrif á liðið. „Hún á eftir að styrkja okkur alveg gríðarlega. Þetta er ekki bara reynsla sem hún kemur með til borðsins heldur er hún gríðarlegur baráttuhundur og frábær íþróttamaður. Hún á eftir að kenna ungu stelpunum sitt lítið af hvoru og svo er samkeppnin orðin meiri í liðinu eftir að hún kom inn, sem er bara af hinu góða.“ „Þetta eru álík lið þessi fjögur sem eftir eru og frekar jöfn að styrk- leika. Við könnumst við þau og fórum í gegnum þau á leið okkar að bikarnum og við vitum að við getum unnið þau. Það þýðir samt ekki að leikirnir hafi verið auðveldir og gegn öllum þessum liðum getur þetta dottið báðum megin. Það getur allt gerst í þessu.“ „Ég býst við skemmtilegum körfu- boltaleikjum og ef ég þekki Njarð- víkinga rétt þá held ég að það verði ekki vandamál að fylla Ljónagryfj- una. Ég hef kynnst því að stemn- ingin er alltaf frábær hjá Njarðvík og í fyrra þá fylltust t.d. tvær rútur þegar við lékum í Hveragerði,“ og Ólöf segir að Grindvíkingar ætli jafnvel að fjölmenna á leikinn enda eru nokkrar stúlkur þaðan í Njarðvíkurliðinu, þar á meðal Ólöf sjálf. „Ég er orðin svakalegur Njarðvíkingur og hinir Grindvík- ingarnir í liðinu voru einmitt að gera grín að mér um daginn því ég væri orðin svo mikill Njarð- víkingur,“ sagði hún að lokum. Þetta leggst mjög vel í mig og ég býst við hörku úr- slitakeppni,“ sagði Birna Val- garðsdóttir fyrirliði Keflavíkur í samtali við Víkurfréttir en úrslitakeppni Iceland Express- deildar kvenna hefst á morgun. Keflvíkingar leika hins vegar á laugardaginn gegn Haukum í undanúrslitum og Birna er á því að þar verði ekkert gefins. „Þessi fjögur lið sem eru að berjast um titilinn eru frekar jöfn og þetta verður bara tóm hamingja. Maður þarf að hafa virkilega fyrir þessu í ár en þetta verður örugglega mjög skemmtileg úrslitakeppni.“ Keflvíkingar eru þessa stundina á fullu í undirbúningi fyrir fyrsta leikinn gegn Haukum og það gengur allt að óskum enn sem komið er að sögn Birnu. „Það er komin tilhlökkun í hópinn þrátt fyrir smá lægð á dögunum. Ég held að gleðin sé komin í liðið og nú er bara að setja í fimmta gír, enda gengur ekkert annað þegar í úrslitakeppnina er komið.“ Birna hefur tekið þátt í ófáum úrslita- keppnum og hún segist kom- ast í allt annan ham þegar þessi tími árs gengur í garð. „Það er erfitt að útskýra það en maður fer í allt annan ham. Nú þýðir ekkert að hengja haus og nú fer bara allt á fulla ferð,“ en Birna sem er fyrirliði og með gríðarlega reynslu mun væntanlega miðla af reynslu sinni til ungu leik- manna liðsins sem margar hverjar eru að stíga sín fyrstu skref í úrslitakeppni. „Maður reynir að segja þeim að vera ekkert að stressa sig og halda bara áfram að gera þá hluti sem þær eru búnar að gera svo vel í vetur. Þetta eru bara venjulegir körfuboltaleikir þótt pressan sé örlítið meiri.“ Birna segir að Haukaliðið sé sterkt á mörgum vígstöðum og þær muni alls ekkert gefa neitt í þessari rimmu. „Við verðum að vera á varðbergi alls staðar en þær eru hættulegar fyrir utan og eru með góðar skyttur eins og Írisi. Svo eru leikstjórnandinn og nýi erlendi leikmaðurinn sterkir leikmenn og þær munu setja í fluggírinn líka.“ Birna hefur trú á því að fólk mæti á fyrsta heimaleikinn og að eintóm gleði og hamingja muni ríkja. En fyrst og fremst verður leikinn skemmtilegur körfubolti að hennar mati. Það getur allt gerst í Þessu Birna komin í úr- slitakeppnisham Ólöf Helga Pálsdóttir, fyrirliði Njarðvíkurkvenna: íslandsmeistaramót í taekwondo sparring haldið á Ásbrú um helgina

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.