Morgunblaðið - 06.12.2014, Qupperneq 73
MENNING 73
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2014
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
John Grant stendur fremst ásviðinu í hinni glæsilegu tón-leikahöll Usher Hall í Ed-
inborg. Uppselt var á tónleikana
og áhorfendur rísa úr sætum er
hið glæsta „Glacier“ deyr út. Hann
er umkringdur tugum liðsmanna
úr Royal Northern Sinfonia og eig-
in sveit, sem telur nokkra Íslend-
inga (og einn Englending). John er
búinn að vera að hella úr hjartanu,
eins og hann á skap til, í röska tvo
tíma og hann á salinn með húð og
hári. Það hefur mikið vatn runnið
til sjávar síðan við stóðum tveir á
Hlemmi haustið 2011 …
Ísland heillaði
… og var þá förinni heitið út í
Hörpu þar sem John var að fara að
hljóðprufa vegna tónleika á Ice-
land Airwaves. Ég hafði tekið við
hann símaviðtal í aðdraganda há-
tíðar og svo vel fór á með okkur í
því tuttugu mínútna símtali að við
ákváðum þá og þar að hittast er
hann kæmi til landsins. Höfum við
haldið sambandi síðan.
Það er búið að vera mjög svo
„… mátti heyra saumnál detta“
Stór John Grant hefur leikið tónlist sína með sinfóníuhljómsveit að undanförnu. Myndin er tekin í BBC-upp-
tökuverinu í Salford, er hann lék með sveit útvarpsins.
athyglisvert að sjá hvernig mál
þróuðust hjá okkar manni frá og
með þessari Airwaves-hátíð. Grant
sló í gegn með tónleika sína á
Airwaves og í þessa daga sem
hann dvaldi hér kolféll hann fyrir
landi og þjóð og var kominn með
dágott tengslanet er hann hélt af
landi brott. Ekki þótti honum því
stætt á öðru en að snúa aftur og
dvaldi hann á Íslandi í janúar og
febrúar og sinnti tónsköpun. Það
var þá sem hann tók ákvörðun um
að flytja endanlega til Íslands og
ekki nóg með það, næsta plata
hans yrði tekin upp hér í samstarfi
við Bigga Veiru (GusGus). Áform-
um um að taka hana upp með Mid-
lake, eins og raunin hafði verið
með fyrri plötu hans, Queen of
Denmark, var slaufað. Platan, Pale
Green Ghosts, kom svo út í mars
2013 og hefur hún aukið enn frek-
ar á veg og virðingu þessa hæfi-
leikaríka manns.
Andaktin rosaleg
Hann og íslensk sveit hans
hafa síðan verið að fylgja plötunni
eftir um veröld víða og lauk þeirri
vegferð í London síðasta sunnudag
en Edinborgartónleikarnir voru á
laugardeginum. Eðlilega fylgdist
maður stoltur með í salnum og ís-
lenska hjartað sló aðeins fastar
þegar landar mínir tóku sér stöðu
á sviðinu, þeir Pétur Hallgrímsson
(gítar), Kristinn Snær Agnarsson
(trommur), Aron Þór Arnarsson
(rafhljóð og slagverk) og Jakob
Smári Magnússon (bassi). Og til að
halda öllu til haga, Englending-
urinn Chris Pemberton spilar auk
þess mikilvæga rullu í sveitinni,
leikur á píanó og hljómborð og
bakraddar af stöku listfengi. Laga-
smíðar Grants eru þess eðlis að
þær falla mjög náttúrulega inn í
þennan mikilúðlega ramma sem
fylgir sinfóníusveitum. Allar þess-
ar stingandi melódíur, innilegu og
einlægu textar og djúpur baritónn
flytjandans fóru upp í annað veldi.
Skemmst frá að segja voru áhrifin
ansi mögnuð og þegar andaktin
var sem rosalegust mátti heyra
saumnál detta.
Næsta plata ku koma út á
næsta ári (og við fengum að heyra
nokkur lög af henni ). Svo ég vitni í
lagatitil eftir Grant, og nú snara ég
honum lauslega, megi þessum
„rosalegasta manndjöfli“ sem við
eigum nokkurn tíma eftir að hitta
farnast vel í því ati.
» John er búinn aðvera að hella úr
hjartanu, eins og hann á
skap til, í röska tvo tíma
og hann á salinn með
húð og hári
John Grant lék ásamt sinfóníuhljóm-
sveit í Edinborg um liðna helgi
Merkileg samsuða viðkvæmnislegra
innilegheita og alltumlykjandi epíkur
Og aftur af John Grant því út er
komin hér á landi hljómplata sem
hefur að geyma upptökur af tón-
leikum söngvarans með Fílharm-
óníusveit BBC sem fram fóru 3.
október sl. og voru liður í tónleika-
röðinni BBC Philharmonic Pre-
sents … 2014. Tónleikarnir voru
sendir út í beinni útsendingu í
breska ríkisútvarpinu.
Í Fílharmóníusveitinni eru 60
hljóðfæraleikarar sem eru með
þeim færustu í Bretlandi. Útsetn-
ingar laga fyrir tónleikana annaðist
samstarfsmaður Grants til margra
ára, Fiona Brice, og á plötunni
koma einnig við sögu íslenskir sam-
starfsmenn hans, m.a. Pétur Hall-
grímsson sem lék á gítar, Jakob
Smári Magnússon á trommur og
Kristinn Agnarsson píanóleikari.
Ábúðarfullur Grant alvarlegur í
bragði á umslagi plötunnar.
Tónleikar Grants
og Fílharmóníu-
sveitar BBC á diski
Bandaríski leikarinn og uppistand-
arinn Michael Winslow sem vakti
fyrst athygli í Police Academy gam-
anmyndasyrpunni treður upp á
Hendrix við Gullinbrú í kvöld kl. 21.
Að loknum gamanmálum Winslows
leikur Sálin hans Jóns míns fyrir
dansi. Winslow er oft nefndur 10.000
radda maðurinn og eins og aðdá-
endur Police Academy vita þá eru
varla til þau hljóð eða raddir sem
Winslow getur ekki myndað. Wins-
low fór með hlutverk lögreglu-
mannsins Larvelle Jones í þeim
myndum, lék einnig í gamanmynd-
inni Spaceballs og hefur leikið í
fjölda auglýsinga, m.a. fyrir súkku-
laðiframleiðandann Cadbury. Eftir
menntaskóla- og háskólanám hóf
hann að skemmta á næturklúbbum
og leikhúsum og vakti athygli fyrir
hæfileika sína þegar kom að því að
búa til hin furðulegustu hljóð. Lá
leiðin þaðan til Hollywood.
Hljóðameistari Winslow í nútíð og þátíð, til hægri mynd af honum í hlut-
verki hins stórfurðulega lögregluþjóns Larvelle Jones í Police Academy.
10.000 radda maðurinn
skemmtir á Hendrix
7
12
Tilboð í bíó GILDIR Á ALLAR SÝNINGARMERKTAR MEÐ RAUÐU
POWERSÝNING
KL. 10
Forsýnd um helgina
Forsýnd um helgina
Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is
Miðasala og nánari upplýsingar
16
16
L
L
L
EXODUS 3D Sýnd kl. 10 (power)
BIG HERO 6 2D Sýnd kl. 2
BIG HERO 6 3D Sýnd kl. 3:50
MOCKINGJAY PART 1 Sýnd kl. 4 - 7 - 10:20
MÖRGÆSIRNAR Sýnd kl. 2 - 5 - 6
DUMB & DUMBER TO Sýnd kl. 2 - 8
NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 8 - 10:30
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar