Morgunblaðið - 02.12.2014, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2014
mið er tekið af fæðingarvottorðinu.
Grindvíkingar réðu ekkert við
hann í stöðunni maður á móti manni
og þó var öflugur varnarmaður, Ólaf-
ur Ólafsson, að valda Darrel hluta
leiksins. Góðar hreyfingar, og ótrú-
leg mýkt í skotum af stuttu færi,
gerðu það að verkum að Darrel setti
niður 17 af 21 skoti innan teigs. Ger-
ir það 81% hittni. Ég veitti því at-
hygli að þegar Grindavík skoraði þá
keyrðu Darrel og Myron Dempsey
iðulega fram. Ef þeir fengu langa
sendingu gátu þeir freistað þess að
sækja á körfuna með gott pláss í
stöðunni maður á móti manni. Demp-
sey er einnig nokkuð lunkinn og
þessar aðstæður voru veisla fyrir
Darrel.
Velgengnin kemur ekki á óvart
Góð byrjun Stólanna í deildinni
kemur Darrel ekki á óvart. „Nei
vegna þess að við erum með góðan
hóp leikmanna sem spila af krafti.
Við getum keppt við hvaða lið sem er
í deildinni og leggjum okkur ávallt
100% fram. Ég tel að við getum
keppt um titilinn. Ef okkur tekst að
koma okkur í þá stöðu að spila um
titilinn þá viljum við auðvitað vinna.
Mér sýnist að við getum komið okk-
ur í góða stöðu og ef við spilum af
svipaðri getu út árið, og í byrjun
næsta árs, þá eigum við að vera í fín-
um málum,“ sagði Darrel í samtali
við Morgunblaðið.
Darrel dvelur
ekki við aldur
og fyrri störf
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óstöðvandi Darrel Lewis var Grindvíkingum heldur betur erfiður.
38 ára gamall en skoraði 45 stig
Í GRINDAVÍK
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Darrel Keith Lewis, sem verður 39
ára gamall í febrúar, skoraði aldur
sinn og rúmlega það í Dominos-
deildinni í körfuknattleik í gærkvöldi.
Lewis skoraði 45 stig þegar Tinda-
stóll vann Grindavík 102:97 eftir jafn-
an og spennandi leik. Velgengni Stól-
anna heldur áfram en liðið hefur
unnið sjö af fyrstu átta leikjunum en
Grindvíkingar eru í basli af ýmsum
ástæðum með aðeins tvo sigra.
Sterka leikmenn vantar í bæði lið
en þau unnu vel úr þeim mannskap
sem í boði var. Grindavík tefldi meira
að segja fram Jóni Axel Guðmunds-
syni sem er í menntaskóla í Banda-
ríkjunum. Jón tjáði Morgunblaðinu
að hann hefði einungis verið í fríi
vegna þakkargjörðarhátíðarinnar og
væri á leið vestur á ný. Jón skilaði 14
stigum og gaf 9 stoðendingar.
Hitti úr 17 af 21 skoti í teignum
Sá sem stal senunni í gærkvöldi
var hins vegar orðinn tvítugur þegar
Jón Axel fæddist. Darrel Lewis
þekkir íþróttahúsið í Grindavík vel
því hann lék með liðinu frá 2002-
2005. Þá var hann stórbrotinn leik-
maður og kappinn er ennþá ótrúlega
seigur, þó að hann eigi að vera farinn
að gefa eftir á körfuboltavellinum ef
Afturelding mátti hafa mikið fyrir því að slá út næstefsta lið
1. deildar, Víking, í 16 liða úrslitum karla í handknattleik í
gærkvöld, en vann að lokum eins marks sigur, 27:26.
Það munaði aldrei miklu á liðunum í leiknum en Aftureld-
ing var einu marki yfir, 20:19, þegar rúmar tíu mínútur voru
til leiksloka. Afturelding komst í 27:25 en Víkingar minnkuðu
muninn í eitt mark svo spennan var mikil í lokin. Afturelding
tók leikhlé þegar 12 sekúndur voru eftir og tókst að koma í
veg fyrir framlengingu.
Afturelding er annað liðið sem kemst áfram í 8 liða úrslitin
en áður höfðu Haukar slegið út B-lið sitt. Leikirnir sex sem
eftir eru í 16 liða úrslitunum fara fram í næstu viku.
Gunnar Malmquist Þórsson og Jóhann Gunnar Einarsson voru markahæstu
leikmenn Aftureldingar með 6 mörk hvor en þeir Jón Hjálmarsson og Arnar
Freyr Theodórsson skoruðu 7 mörk hvor fyrir Víkinga. Magnús Gunnar Er-
lendsson varði um 20 skot fyrir Víking. sindris@mbl.is
Afturelding fékk hörkuleik
Jóhann Gunnar
Einarsson
Kolbeinn Sigþórsson hefur komist að samkomulagi við hol-
lenska meistaraliðið Ajax um að framlengja samning sinn
við félagið til sumarsins 2016. Núgildandi samningur Kol-
beins við Ajax ætti að renna út næsta sumar.
Þetta fullyrti sjónvarpsstöðin AT5 fyrst miðla í Hollandi í
gærkvöld. Samningurinn er þó ekki sagður minnka lík-
urnar á því að Kolbeinn yfirgefi Ajax annaðhvort strax í
janúar eða næsta sumar. Ajax hafi aðeins viljað tryggja sér
að félagið fengi meira en ekkert fyrir hann.
Flest benti til þess framan af síðasta sumri að Kolbeinn
myndi yfirgefa Ajax, eftir þriggja ára veru og þrjá Hol-
landsmeistaratitla, og meðal annars reyndi enska félagið
QPR að fá hann. Svo fór þó að hann hélt kyrru fyrir.
Kolbeinn hefur skorað fjögur mörk í hollensku úrvalsdeildinni í vetur en
missti nýverið sæti sitt í byrjunarliðinu til Pólverjans Arkadiusz Milik sem
hefur byrjað síðustu fjóra leiki liðsins. sindris@mbl.is
Kolbeinn fær lengri samning
Kolbeinn
Sigþórsson
Danmörk
Midtjylland – Vestsjælland..................... 2:1
Eyjólfur Héðinsson var ekki í leik-
mannahópi Midtjylland.
Frederik Schram markvörður var á
varamannabekk Vestsjælland.
Staðan:
Midtjylland 16 13 1 2 34:15 40
Randers 16 9 3 4 17:11 30
København 16 8 5 3 16:12 29
Brøndby 16 7 3 6 20:17 24
Nordsjælland 16 7 3 6 19:20 24
AaB 16 5 6 5 15:13 21
Hobro 16 5 5 6 23:24 20
Esbjerg 16 4 7 5 23:19 19
SønderjyskE 16 3 10 3 16:17 19
OB 16 5 3 8 18:22 18
Vestsjælland 16 4 2 10 16:30 14
Silkeborg 16 0 4 12 8:25 4
Bikarkeppnin, 16 liða úrslit:
Varde – SönderjyskE .............................. 0:3
Hallgrímur Jónasson lék allan leikinn
fyrir SönderjyskE.
Ítalía
Sampdoria – Napoli.................................. 1:1
Staða efstu liða:
Juventus 13 11 1 1 30:5 34
Roma 13 10 1 2 25:9 31
Napoli 13 6 5 2 24:16 23
Genoa 13 6 5 2 19:12 23
Sampdoria 13 5 7 1 16:10 22
Milan 13 5 6 2 23:17 21
Lazio 13 6 2 5 21:16 20
Fiorentina 13 5 4 4 16:11 19
Udinese 13 5 3 5 15:17 18
Sassuolo 13 4 6 3 13:16 18
Spánn
Almería – Rayo Vallecano ....................... 0:1
Staða efstu liða:
Real Madrid 13 11 0 2 48:12 33
Barcelona 13 10 1 2 31:6 31
A. Madrid 13 9 2 2 25:12 29
Sevilla 13 8 2 3 24:17 26
Valencia 13 7 3 3 24:12 24
Villarreal 13 6 3 4 19:14 21
Málaga 13 6 3 4 16:14 21
Celta Vigo 13 5 5 3 17:13 20
A. Bilbao 13 5 3 5 12:14 18
Rayo Vall. 13 5 2 6 16:24 17
Eibar 13 4 4 5 14:19 16
KNATTSPYRNA
Coca Cola bikar karla
16 liða úrslit:
Víkingur – Afturelding ........................ 26:27
Svíþjóð
Ricoh – Malmö ..................................... 26:24
Tandri Már Konráðsson skoraði 7 mörk
fyrir Ricoh.
HANDBOLTI
Dominos-deild karla
Grindavík – Tindastóll ....................... 97:102
Staðan:
KR 8 8 0 793:644 16
Tindastóll 8 7 1 759:677 14
Stjarnan 8 5 3 705:661 10
Haukar 8 5 3 704:666 10
Keflaví-k 8 4 4 623:655 8
Njarðvík 8 4 4 668:643 8
Þór Þ. 8 4 4 730:723 8
Snæfell 8 4 4 705:715 8
ÍR 8 2 6 672:705 4
Grindavík 8 2 6 680:755 4
Fjölnir 8 2 6 664:744 4
Skallagrí-mur 8 1 7 667:782 2
1. deild karla
FSu – KFÍ........................................... 101:86
Staðan:
FSu 8 6 2 664:622 12
Hamar 7 6 1 606:536 12
Höttur 8 6 2 617:562 12
Valur 7 4 3 525:492 8
Breiðablik 8 4 4 602:601 8
ÍA 7 3 4 518:545 6
KFÍ 9 2 7 686:727 4
Þór A. 8 0 8 499:632 0
NBA-deildin
Boston – San Antonio......................... 89:111
Brooklyn – Chicago............................ 84:102
Detroit – Golden State ....................... 93:104
Sacramento – Memphis ....................... 85:97
New York – Miami ............................... 79:86
Phoenix – Orlando ................................ 90:93
Portland – Minnesota......................... 107:93
LA Lakers – Toronto ...............(frl.) 129:122
Staðan í Austurdeild:
Toronto 13/4, Washington 10/5, Chicago
11/6, Atlanta 9/6, Miami 9/7, Milwaukee
10/8, Cleveland 8/7, Indiana 7/10, Brooklyn
6/9, Orlando 7/12, Boston 4/10, New York 4/
14, Charlotte 4/14, Detroit 3/14, Phila-
delphia 0/16.
Staðan í Vesturdeild:
Memphis 15/2, Golden State 14/2, Portland
13/4, Houston 13/4, San Antonio 12/4, Dall-
as 13/5, LA Clippers 11/5, Phoenix 10/8,
Sacramento 9/8, Denver 8/8, New Orleans
7/8, Utah 5/12, Oklahoma City 5/12, Minne-
sota 4/11, LA Lakers 4/13.
KÖRFUBOLTI
Grindavík, Dominos-deild karla,
mánudag 1. desember 2014.
Gangur leiksins: 8:4, 8:10, 15:16,
20:20, 25:27, 27:31, 35:37, 38:44,
46:50, 54:58, 59:68, 65:75, 70:79,
81:85, 92:93, 97:102.
Grindavík: Rodney Alexander
27/5 fráköst, Ólafur Ólafsson
23/8 fráköst, Oddur Rúnar Krist-
jánsson 20/9 stoðsendingar, Jón
Axel Guðmundsson 14/5 fráköst/9
stoðsendingar, Magnús Þór Gunn-
arsson 5, Ómar Örn Sævarsson 4/
12 fráköst, Hilmir Kristjánsson 4.
Fráköst: 26 í vörn, 9 í sókn.
Tindastóll: Darrel Keith Lewis 45,
Myron Dempsey 27/10 fráköst,
Pétur Rúnar Birgisson 11/4 frá-
köst/12 stoðsendingar, Svavar Atli
Birgisson 8/8 fráköst, Helgi Rafn
Viggósson 8, Helgi Freyr Margeirs-
son 3.
Fráköst: 21 í vörn, 5 í sókn.
Dómarar: Sigmundur Már Her-
bertsson, Björgvin Rúnarsson, Dav-
íð Tómas Tómasson.
Grindavík – Tindastóll 97:102
Bob Hanning, framkvæmdastjóri
þýska handknattleiksliðsins Füchse
Berlín, segist vonast til þess að geta
skrifað undir samning við eftirmann
Dags Sigurðssonar hjá félaginu áður
en flautað verður til leiks á heims-
meistaramótinu í handknattleik karla
í Katar í næsta mánuði. Erlingur
Richardsson, þjálfari West Wien og
annar aðstoðarþjálfara íslenska
landsliðsins, er einn þeirra sem koma
til greina.
Dagur hættir sem þjálfari Berl-
ínarliðsins um mitt næsta ár og ein-
beitir sér að þjálfun þýska landsliðs-
ins en nú er hann þjálfari beggja liða.
Hanning sagði við þýska fjölmiðla í
gær að valið væri erfitt. Upphaflega
hefði hann verið með lista yfir 16
þjálfara sem komið hefðu til greina.
Nú standi nöfn fjögurra eftir á list-
anum. „Ég vonast til að ráðning nýs
þjálfara verði frágengin fyrir HM,“
sagði Hanning.
West Wien er á toppnum
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins er nafn Erlings eitt fjög-
urra sem eftir eru á lista Hannings.
Erlingur hefur náð athygl-
isverðum árangri með West Wien á
síðasta hálfa öðru ári. Liðið er nú í
efsta sæti í Austurríki ásamt HC Fi-
vers en liðin eru með 24 stig hvort að
loknum 15 umferðum. Hann þjálfaði
ÍBV og HK áður en hann hélt til
Austurríkis en HK varð Íslands-
meistari undir stjórn hans og Krist-
ins Guðmundssonar árið 2012.
iben@mbl.is
Erlingur er enn í myndinni
Füchse Berlín hefur þrengt leitina að eftirmanni Dags
Morgunblaðið/Golli
Berlín Erlingur Richardsson gæti
farið frá Vínarborg til Berlínar.
Knattspyrnumarkvörðurinn Fjal-
ar Þorgeirsson tilkynnti í gær að
hann hefði ákveðið að leggja
hanskana á hilluna og gerast að-
stoðarþjálfari hjá Íslandsmeist-
urum Stjörnunnar. Fjalar lauk
þar með ferlinum hjá Val en hef-
ur varið mark Hlíðarendaliðsins
undanfarin tvö tímabil.
Fjalar, sem er 37 ára gamall,
lauk í ár sínu 21. keppnistímabili
í meistaraflokki en hann var að-
eins 17 ára gamall, árið 1994,
þegar hann varð aðalmarkvörður
Þróttar. Hann lék alla 18 leiki
Þróttarliðsins í næstefstu deild
það ár. Hætt
Fjalar hættir
sem þriðji
leikjahæsti
markvörðurinn