Morgunblaðið - 02.12.2014, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.12.2014, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2014 Ásgeir Mar-teinsson, sem lék með Frömurum í Pepsi-deildinni í knattspyrnu í ár, er genginn til liðs við Skagamenn og samdi við þá til tveggja ára. Ás- geir, sem er tvítugur sókn- artengiliður, er uppalinn hjá HK og lék einmitt undir stjórn Gunnlaugs Jónssonar, núverandi þjálfara Skagamanna, þegar Kópavogsliðið varð meistari í 2. deildinni árið 2013. Þá skoraði hann 10 mörk í 21 deilda- leik. Hann gekk síðan til liðs við Framara og skoraði þrjú mörk fyrir þá í þrettán leikjum í Pepsi-deildinni á þessu ári.    Tyrkneska knattspyrnuliðið Gala-tasaray sem í síðustu viku rak Ítalann Cesare Prandelli úr starfi þjálfara er búið að finna eftirmann- inn en það er Tyrkinn Hamza Hamzaoglu. Frá þessu greindi fé- lagið frá í gær en Hamzaoglu er 44 ára gamall sem hefur gegnt stöðu aðstoðarþjálfara hjá tyrkneska landsliðinu. Hann lék á árum áður með Galatasaray.    HilmarTrausti Arnarsson, sem verið hefur fyr- irliði Hauka síð- ustu ár, gekk í gær í raðir KA og skrifaði undir samning til þriggja ára við Akureyrarfélagið. Hilmar er 28 ára gamall og getur leikið sem miðju- maður og bakvörður. Hann hefur leikið með Haukum nær allan sinn feril utan tveggja ára hjá Leikni Reykjavík. Á dögunum samdi KA við annan miðjumann þegar Halldór Hermann Jónsson kom til félagsins frá Val.    Yacine Brahimi varð í gær fyrstiAlsír-búinn til að hljóta útnefn- ingu sem knattspyrnumaður ársins í Afríku að mati hlustenda BBC. Bra- himi er 24 ára gamall og skaraði fram úr í liði Alsír sem kom mörgum á óvart á HM í sumar og náði í 16 liða úrslitin í fyrsta sinn. Auk hans voru tilnefndir þeir Yaya Touré og Gervinho frá Fílabeinsströndinni, Pierre-Emerick Aubameyang frá Gabon og Vincent Enyeama frá Nígeríu.    Franski knattspyrnumaðurinnThierry Henry, fyrrverandi leikmaður Arsenal, hefur staðfest að hann muni yfirgefa bandaríska liðið New York Red Bulls þegar samn- ingur hans við félagið rennur út eftir tímabilið. Henry, sem er 37 ára gam- all, gekk í raðir New York Red Bulls frá Barcelona árið 2010 en hann sneri aftur til sinna gömlu félaga í Arsenal árið 2012 og lék sem láns- maður með því í stuttan tíma. Fólk folk@mbl.is HM Í SUNDI Ívar Benediktsson iben@mbl.is Átta íslenskir sundmenn taka þátt í heimsmeistaramótinu í sundi í 25 m laug sem hefst í Doha í Katar á fimmtudaginn. Mótinu lýkur síðdegis á sunnudag. Íslensku sundmennirnir átta verða í hópi um 900 sundmanna sem koma víðsvegar að úr heiminum til mótsins en þeir munu reyna fyrir sér í 46 keppnisgreinum, þar af 34 einstaklingsgreinum og síðan verður keppni í 12 boðsundum. Alls verða 138 verðlaunapeningar hengdir um háls keppenda sem vinna til verð- launa í greinunum 46. Íslensku keppendurnir eru Daníel Hannes Pálsson, Davíð Hildiberg Að- alsteinsson, Eygló Ósk Gústafsdóttir, Hrafnhildur Lúthersdóttir, Inga Elín Cryer, Kolbeinn Hrafnkelsson, Krist- inn Þórarinsson og Kristófer Sigurðs- son. Einnig fengu tveir sundmenn styrk frá Alþjóðasundsambandinu, FINA, til að fara og taka þátt í ungliðaverk- efni á vegum þess í Doha meðan á HM stendur. Það eru þau Ólafur Sig- urðsson og Sunneva Dögg Friðriks- dóttir. Ólafur og Sunneva Dögg eru í hópi 350 unglinga á aldrinum 14 til 16 ára sem boðið er til Doha til þess að taka þátt í æfingabúðum sem haldnar verða samhliða heimsmeist- aramótinu. Kemst Eygló Ósk í úrslit? Af keppendunum átta virðist sem Eygló Ósk eigi mesta möguleika á að ná lengst íslensku keppendanna. Sem stendur á hún 11. besta árangurinn í heiminum á þessu ári í 200 m bak- sundi, 2.04,78 mínútur. Það er Ís- landsmetið í greininni og setti Eygló Ósk það um miðjan síðasta mánuð á Íslandsmeistaramótinu sem haldið var í Ásvallalaug. Erfitt er hinsvegar á átta sig vel á möguleikum hennar þrátt fyrir ofan- greinda staðreynd því endanlegir keppendalistar liggja ekki fyrir á heimasíðu mótsins. Þar af leiðandi er heldur ekki hægt að segja til um hversu margar af þeim 10 sundkonum sem náð hafa betri tíma en Eygló Ósk á þessu ári mæta til mótsins. Auk Eyglóar Óskar má reikna með að Hrafnhildur geti blandað sér í keppni þeirra bestu og jafnvel komist í undanúrslit í einhverjum af bringu- sundsgreinunum sem eru hennar sér- grein. Hrafnhildur virðist í afar góðri æfingu um þessar mundir eftir að hafa stundað æfingar af krafti í Bandaríkjunum á síðustu árum sam- hliða háskólanámi. Samhliða takmörkuðum upplýs- ingum á heimasíðu heimsmeist- aramótsins var engar upplýsingar að fá frá Sundsambandi Íslands í gær um í hvaða greinum íslensku keppend- urnir spreyta sig á mótinu. Þetta verður í 12. sinn sem heims- meistaramót er haldið í 25 m laug og um leið í annað sinn á skömmum tíma sem það er haldið á Arabíuskaganum. Íbúar Sameinuðu arabísku fursta- dæmanna voru gestgjafar mótsins fyrir fjórum árum. Hrafnhildur Lúth- ersdóttir er sú eina í íslenska hópnum nú sem tók þátt í mótinu fyrir fjórum árum auk þjálfarans Klaus Jürgens Ohk sem verður með í för ásamt Jacky Pellerin landsliðsþjálfara. Keppt verður í afar glæsilegri sundlaug Hamad Aquatic Centre sem er eitthvert magnaðasta sundíþrótta- mannvirki sem reist hefur verið í heiminum. Eygló Ósk á ellefta besta tíma ársins fyrir HM Morgunblaðið/Ómar Líkleg Eygló Ósk Gústafsdóttir sló fjölda meta í síðasta mánuði og er líkleg til að slást um úrslitasæti á heimsmeistaramótinu í Katar sem hefst í vikunni.  Átta íslenskir sundmenn stinga sér til sunds í Doha  Tveimur unglingum boðið HM í Doha » Daníel Hannes Pálsson, Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, Eygló Ósk Gústafsdóttir, Hrafnhildur Lúthersdóttir, Inga Elín Cryer, Kolbeinn Hrafnkelsson, Kristinn Þórarinsson og Kristófer Sig- urðsson taka þátt. » Eygló Ósk virðist eiga mög- leika á að komast í átta manna úrslit í 200 m bringusundi. » Keppni hefst á fimmtudag og lýkur á sunnudag. Íslenska landsliðið í alpagreinum hóf keppni um helgina með þátttöku á móti í Geilo í Nor- egi. Keppt var bæði á laugardag og sunnudag í svigi. Helga María Vilhjálmsdóttir hafnaði í 26. sæti á sunnudag og í 40. sæti daginn áður en um 100 keppendur tóku þátt í svigkeppn- inni í hvort skiptið. Erla Ásgeirsdóttir og Freydís Halla Ein- arsdóttir náðu ekki að klára á laugardeginum en á sunnudeginum varð Erla í 43. sæti og Freydís í 48. sæti. Magnús Finnsson náði flottum árangri á sterku karlamótinu á laugardeginum þegar hann lenti í 22. sæti en þann daginn náði Einar Kristinn Kristgeirsson ekki að klára og datt í fyrri ferð. Á sunnudag náði Einar sér síðan á strik og hafnaði í 14. sæti og Magnús í 29. sæti. iben@mbl.is Einar náði lengst í Geilo Einar Kristinn Kristgeirsson ÍBV hefur komist að samkomulagi við Fram um kaup á miðjumanninum Aroni Bjarna- syni. Fram hafði áður hafnað nokkrum til- boðum Eyjamanna í Aron en hann mun semja til þriggja ára við ÍBV. Aron er þriðji leik- maðurinn sem ÍBV sækir í Safamýrina í vetur því áður hafði liðið fengið Hafstein Briem og Benedikt Októ Bjarnason, sem yfirgáfu Fram eftir að liðið féll úr Pepsi-deildinni. ÍBV hefur horft á eftir heilli „varnarlínu“, ef svo má segja, frá síðasta sumri því mið- verðirnir Eiður Aron Sigurbjörnsson og Brynjar Gauti Guðjónsson eru farnir (Eiður fór raunar til Nor- egs í ágúst) sem og hægri bakvörðurinn Arnór Eyvar Ólafsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson sem hæglega getur leyst stöðu vinstri bakvarðar. sindris@mbl.is Afla liðsstyrks í Safamýri Aron Bjarnason Þórdís Eva Steinsdóttir, hlaupakonan stórefnilega úr FH, bætti tvö aldurs- flokkamet í 1.500 metra hlaupi á Coca Cola-móti FH sem haldið var í nýju frjáls- íþróttahöll FH-inga í Kaplakrika um ný- liðna helgi. Þórdís Eva, sem er 14 ára gömul, kom í mark á tímanum 4.43,23 mínútum og bætti tvö aldursflokkamet sem voru í eigu Anítu Hinriksdóttur úr ÍR. Hún bætti met Anítu í 14 ára flokki um 5 sekúndur og bætti metið í 15 ára flokki um hálfa sekúndu. Þórdís Eva hefur verið iðin við að bæta met á árinu en hún hefur sett hátt í 40 met á árinu sem er að líða og er í dag ein efnilegasta frjálsíþróttakona landsins. gummih@mbl.is Bætti tvö met Anítu Þórdís Eva Steinsdóttir Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, og tímaritið France Football tilkynntu í gær hverjir væru í þremur efstu sætum í kjörinu á knattspyrnumanni og knatt- spyrnukonu heims 2014, og í kjöri á þjálfurum ársins. Sigurvegararnir verða kunngerðir og krýndir í Zü- rich 12. janúar og fá Gullboltann eftirsótta, Ballon d’Or. Þrír efstu karlar, í stafrófsröð, eru Cristiano Ronaldo frá Portúgal, Lionel Messi frá Argentínu og Manuel Neuer frá Þýskalandi. Þrjár efstu konur, í stafrófsröð, Abby Wambach frá Bandaríkj- unum, Marta frá Brasilíu og Nad- ine Kessler frá Þýskalandi. Tilnefndir þjálfarar í karlaflokki eru Carlo Ancelotti (Real Madrid), Joachim Löw (Þýskalandi) og Diego Simeone (Atlético Madrid). Tilnefndir þjálfarar í kvenna- flokki eru Ralf Kellerman (Þýska- landi), Norio Sasaki (Japan) og Maren Meinert (Þýskalandi U20). Það eru landsliðsfyrirliðar, landsliðsþjálfarar og íþrótta- fréttamenn sem greiða atkvæði í kjörinu. Tilnefningar í þrjú efstu sætin fyrir Gullboltann 2014 Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Best Nadine Kessler og Cristiano Ronaldo voru valin best í Evrópu. Fjalar lék lengi með Þrótti en síðan með Fram, Fylki, KR og loks Val, og fer því í fyrsta skipti til félags utan borgarmarkanna með því að hefja störf hjá Stjörn- unni. Fjalar á að baki 227 leiki í efstu deild, er þar átjándi leikja- hæstur allra frá upphafi, og er fimmtándi leikjahæsti knatt- spyrnumaður landsins í öllum deildum með 319 leiki. Aðeins tveir markverðir, Krist- ján Finnbogason og Birkir Krist- insson, hafa spilað fleiri leiki í efstu deild en Fjalar hér á landi, og auk þeirra er það aðeins Gunnleifur Gunnleifsson sem á fleiri deildaleiki í heild. Hjá Stjörnunni mun Fjalar starfa með þeim Rúnari Páli Sig- mundssyni aðalþjálfara og Brynj- ari Birni Gunnarssyni en hann kemur í staðinn fyrir Danann Henrik Bödker sem hefur verið í þjálfarateymi Garðabæjarliðsins undanfarin ár. vs@mbl.is Morgunblaðið/Ómar tur Fjalar Þorgeirsson snýr sér að þjálfun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.