Morgunblaðið - 02.12.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.12.2014, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2014 Kári Árnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, var í fyrsta skipti á varamannabekk Rotherham á laug- ardaginn þegar liðið mætti Blackpool í ensku B-deildinni. Kári kom til Rotherham sumarið 2012 og er því kominn vel af stað á sínu þriðja tímabili með liðinu. Fram að leiknum við Blackpool hafði hann spilað 93 deildaleiki fyr- ir félagið, alla í byrjunarliðinu. Rotherham fékk miðvörðinn Scott Wootton lánaðan frá Leeds í síðustu viku og Steve Evans, litrík- ur knattspyrnustjóri félagsins, setti hann beint í liðið í stað Kára. Miðverðir þurfa oft að sætta sig við langa bekkjarsetu ef þeir eru ekki í byrjunarliðinu á annað borð. Biðin var hinsvegar ekki löng hjá Kára. Eftir um 40 mínútna leik meiddist einn varnarmanna Rother- ham og Kári var því kominn inná völlinn áður en fyrri hálfleikur var úti. Rotherham, sem hefur farið upp um tvær deildir á tveimur árum, er í fjórða neðsta sæti B-deildarinnar en leikurinn gegn Blackpool, sem situr á botninum, endaði 1:1. vs@mbl.is Morgunblaðið/Golli Miðvörður Kári Árnason hefur betur í baráttu við Arjen Robben í landsleik Íslands og Hollands í haust. Hann er í botnbaráttu með Rotherham. Kári var á bekknum í fyrsta sinn í 94 leikjum ÞÝSKALAND Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Það er illa komið fyrir Borussia Dortmund í þýsku Bundesligunni í knattspyrnu en eftir 13 umferðir situr liðið eitt og yfirgefið á botni deildarinnar. Liðið hefur tapað átta leikjum og er byrjun liðsins í deildinni sú versta í sögu félagsins. Síðustu tvö tímabilin endaði Dortmund í öðru sæti deildarinnar á eftir Bayern München en árin 2011 og 2012 hampaði Dortmund meistaraskildinum og varð einnig bikarmeistari. Jürgen Klopp þjálf- ari liðsins frá 2008 er eðlilega kom- inn undir mikla pressu en sjálfur segist hann ekki ætla að stökkva frá borði á meðan lið hans er í þessari stöðu. Klopp er samnings- bundinn Dortmund til ársins 2018. Get ekki farið frá liðinu í þessari stöðu „Ég get vel skilið blaðamenn sem spyrja mig að því hvort ég ætli ekki að hætta en slíkt er ekk- ert í spilunum. Ég get ekki farið frá liðinu í þessari stöðu. Ef þetta snýst bara um heppni og að skipta um þjálfara sem getur fært hana þá er bara að hringja í mig og ég mun stíga til hliðar. En þetta er ekki svona einfalt. Svo lengi sem enginn kemur og segir við mig; við höfum einhvern sem gerir betur, þá get ég ekki farið. Ég mun hins vegar ekki standa í veginum en ég get ekki yfirgefið liðið fyrr en betri lausn finnst,“ sagði Klopp við fréttamenn en óhætt er að segja að hann sé að takast á við sína mestu prófraun hjá liðinu frá því hann tók við þjálfun þess fyrir sex árum. Bayern 22 stigum á undan Það munar 22 stigum á Dort- mund og meisturunum í Bayern München sem hafa 33 stig í efsta sætinu og er með sjö stiga forskot á Wolfsburg. Staðan í þýsku deild- inni er hins vegar jöfn en aðeins munar sjö stigum á Dortmund og Frankfurt sem situr í 9. sæti deild- arinnar en Frankfurt hafði einmitt betur á móti Dortmund í fyrra- kvöld, 2:0. Dortmund tekur á móti Hoffenheim á föstudaginn. Á undangengnum árum hefur Dortmund þurft að sjá á eftir frá- bærum leikmönnum og nýlegustu dæmin eru Mario Götze og Robert Lewandowski sem báðir fóru til Bayern München. Skarðið sem Lewandowski skildi eftir sig í sum- ar hefur Dortmund ekki náð að fylla en pólski framherjinn raðaði inn mörkum fyrir þá gulu og svörtu. Dortmund fékk til liðs við sig tvo framherja í sumar, þá Adri- an Ramos og Ciro Immobile en hvorugur þeirra hefur náð sér á strik. Þá hafa meiðsli leikið Dort- mund-liðið grátt en Marco Reus og Mats Hummels, tveir af lyklmönn- um liðsins, hafa verið mikið frá á tímabilinu vegna meiðsla. Ljósu punktarnir hjá Dortmund á leiktíðinni er Meistaradeildin en þar er liðið komið áfram í 16-liða úrslitin eftir fjóra sigra í fimm leikjum í riðlinum. Versta byrjunin í sögunni  Borussia Dortmund, þýsku meistararnir frá árinu 2012, á botni deildarinnar  Klopp kveðst ekkert á förum en prófraunin er sú mesta síðan hann tók við AFP Sálusorgari Jürgen Klopp hefur oft þurft að hughreysta liðsmenn sína eftir tapleiki í vetur og hér huggar hann Er- ik Durm eftir ósigur gegn Frankfurt um síðustu helgi. Dortmund hefur tapað átta af fyrstu þrettán leikjum sínum. Þýskaland » Bayern er með 33 stig á toppnum en síðan koma Wolfs- burg með 26, Leverkusen með 23 og Augsburg með 21 stig. » Mörg fræg lið raða sér í neðstu sætin. Sex neðstu lið, sem aðeins þrjú stig skilja að, eru Hertha Berlín, Werder Bre- men, Freiburg, Stuttgart, Hamburger SV og Dortmund. Velkominn í enska boltann, Louis van Gaal. Hollenski þjálf- arinn sem tók við liði Manchest- er United í sumar er nú búinn að átta sig á því að hann þarf að sinna starfi sínu um jólahátíðina. Van Gaal segist eiga konu, börn og barnabörn sem hann hefur ekki tök á að vera með um hátíð- arnar og það líkar honum ekki. Nú sem endranær er þétt leikið á Englandi í desember og ekki síst í kringum jól og áramót. United spilar sex leiki í desember og á dagkránni eru leikir 26. og 28. desember og 1. janúar. Van Gaal er ekki fyrsti erlendi stjór- inn sem kvartar yfir leikjaálagi í kringum jól og áramót en um- mæli hans falla í grýttan farveg hjá enskum fótboltaunnendum. Þeir taka það ekki mál að breyta út af venjunni enda eru leikir um hátíðarnar stór partur af jóla- haldinu. Aðeins meira af Van Gaal. Hollendingurinn virðist smátt og smátt vera að vinna stuðnings- menn Manchester United á sitt band, undirritaður er þar á með- al, en liðið hefur nú unnið þrjá leiki í röð í deildinni og skilaði sinni bestu frammistöðu um ný- liðna helgi þegar það lagði Hull, 3:0, á Old Trafford. Það er mikið fagnaðarefni að Eiður Smári Guðjohnsen er kom- inn í félag og það á Englandi. Eið- ur er aftur kominn í hvíta búning- inn hjá Bolton og hér í Hádegismóunum ræður Böddi Bergs sér ekki fyrir kæti enda Bolton-maður af lífi og sál. Það verður fróðlegt að fylgjast með Eiði Smára í ensku B-deildinni það sem eftir lifir tímabilsins. Þar með ættu dyrnar að opnast fyrir hann með íslenska landslið- inu og hver veit nema hann verði mættur í slaginn á ný með því í mars þegar Ísland sækir Ka- sakstan heim í undankeppni EM. BAKVÖRÐUR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.