Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - okt 2014, Qupperneq 6
6
orðinn svo þreyttur og við
Sjálfstæðismenn, að sjá Roalds-
brakkann grotna niður. Þetta var
ekki mannhelt og börn gengu
þarna um, göt í bryggjunum
og stórhættulegt fyrir alla.
Við komum því með tillögu
á bæjarstjórnarfundinum, og
höfðum meirihluta fyrir henni,
um að rífa Roaldsbrakkann.
Þegar við kynntum þessa tillögu
þá stendur Anton Jóhannsson
vinur minn, bæjarfulltrúi og
gamall kennari upp og fer inn
í bókavarðaherbergið til Óla
Blöndal. Óli Blöndal kemur í
dyrnar eftir augnablik og vinkar mér
að koma og ég inn á skrifstofuna hjá
honum, stóð fyrir fram hann á miðju
gólfinu. Hann rétti upp hendina svona
eins og hann gerði gjarnan og sagði:
„Ertu bara brjálaður drengur?“ Ég
sagði við Óla. „Óli minn, þetta er allt í
fína lagi.Við drögum bara tillöguna til
baka en það verður þá að fara að gera
eitthvað.“ Þá var út af fyrir sig búið að
stofna þetta Félag áhugamanna um
minjasafn í Siglufirði. Fólk sem hefur
unnið stórkostlegt starf. Ég ætla að taka
það fram að ég á engan þátt í því hvað
Þetta glæsilega Síldarminjasafn sem nú
er, er orðið flott og fínt. En þetta var nú
svona farið að fara í taugarnar á okkur
að sjá þetta, það var mikið siglt inn til
bæjarins og svona og þetta bara blasti
við og var bara hrörlegt og ömurlegt
að sjá þetta. En sem betur fer þá voru
þessir menningarfrömuðir, miklu
meiri en ég, bæði Anton og Óli, sem
stoppuðu tillöguna strax, áður en hún
var komin til atkvæða en auðvitað veit
ég núna og búinn að vita lengi að þetta
hefði aldrei verið gert, þetta einfaldlega
var ekki hægt. En við vorum mikið
skömmuð í bæjarstjórninni þegar við
fórum að rífa bryggjurnar. Það voru
margir sem vildu að við hefðum þetta
bara þarna sem minningu um liðna tíð
en þetta var náttúrulega bara útilokað
að hafa þetta eins og þetta var. Þetta var
rifið og nú vita allir að uppbyggingin
hefur hafist. Síldarminjasafnið er út
af fyrir sig járnbrautarstöðin okkar
og búið að vera í mörg ár,
löngu áður en göngin komu.
Það var aðdráttaraflið. Ég gerði
mér aldrei grein fyrir því að
eitthvert safn gæti haft svona
mikið aðdráttarafl fyrir þennan
bæ en það hefur orðið það.
Menningarfrömuðurinn í mér
er nú ekki meiri en þetta og ég
ætla ekkert að þykjast hafa gert
eitthvað meira í því.
Eitt af því skemmtilegasta og
minnisstæðasta sem ég tók þátt
í var þegar samþykkt var tillaga
á afmælisfundi bæjarstjórnar
að reisa íbúðir fyrir aldraða
við sjúkrahúsið. Ég man hugsunina
ennþá: Þetta verður aldrei gert, við
eigum ekki krónu fyrir þessu. Ég
var forseti bæjastjórnar þegar fyrsta
skóflustungan var tekin og ég og Ólöf
Þorláksdóttir, elsti íbúi Siglufjarðar þá,
við tókum fyrstu skóflustunguna. Síðan
var skipað í stjórn úrvalsfólk, Haukur
Jónasson, Magdalena Hallsdóttir,
Halldóra Jónsdóttir og margir, margir
fleiri sem komu að þessu. Þarna var
þrekvirki unnið og má segja að þarna
standi núna mikil menningarmiðstöð
þar sem fólk kemur fólk utan úr bæ
ásamt þeim sem þarna búa og spila og
föndra og gera margt fleira. Það var
mjög gaman að taka þátt í því að gera
þetta að veruleika.
Bókunarsími og allar upplýsingar
S: 461·7730
eldhus@raudka.is
Hannes Boy og Kaffi Rauðka
Rauðkutorgi við höfnina || 580 Siglufirði
www.raudka.is
Skemmtun, söngur og tónlist
Jólin á Sigló
OPIN JÓLAHLAÐBORÐ ERU HELGARNAR 21., 22., 28. OG 29. NÓVEMBER OG 5., 6., 12. OG 13. DESEMBER.
RAUÐKA BÝÐUR HÓPA VELKOMNA OG HEFUR Í BOÐI ÞRJÁ MISMUNANDI JÓLASEÐLA FRÁ OG MEÐ BYRJUN NÓVEMBER.
Frá vinstri: Aníta Elefsen rekstrarstjóri, Rakel Björnsdóttir formaður Siglfirðinga-
félagsins, Örlygur Kristfinnsson safnstjóri, Guðmundur Skarphéðinsson formaður
FÁUM, Steinunn Sveinsdóttir fagstjóri. Ljósm. Thomas Fleckenstein.
Björn Jónasson í Grafarvogskirkju vorið 2014.
Félag áhugamanna um minjasafn 25 ára – Róaldsbrakki 20 ára
Grána 15 ára - Bátahúsið 10 ára – Salthúsið fokhelt 2014
Á margföldu afmælisári vildum við gera upp við það fólk sem
lagði svo mikið á sig við að byggja upp hið stóra safn okkar -
að horfa inná við til þess kjarna málsins að fólkið í bænum
tók málin í sínar hendur og lét gamlan draum um minjasafn
Siglufjarðar rætast. Þann 11. október sl. var haldin afmælisveisla
í Gránu, boðið var fjölda fólks og sérstaklega þeim sem lögðu
mikið af mörkum með eigin höndum. Þrír einstaklingar voru
sérstaklega heiðraðir, Gunnar Júlíusson, Sigþóra Gústafsdóttir
og Guðni Sigtryggsson fyrir einstakt framlag þeirra.
Þá var einnig allmörgum öðrum gestum boðið til afmælis-
fundarins, t.d. fulltrúum stofnana sem lögðu uppbyggingu
safnsins ómetanlegt lið. Meðal ræðumanna var Illugi Gunnars-
son menntamálaráðherra og Rakel Björnsdóttir formaður Sigl-
firðingafélagsins.
Um kvöldið var svo haldin veisla í Bátahúsinu þar sem 70
manns nutu síldarrétta og tónlistardagskrár. Af þessu tilefni vilja
forráðamenn Síldarminjasafnsins þakka Siglfirðingafélaginu og
fjölmörgum Siglfirðingum öðrum fyrir ómetanlegan stuðning
síðasta aldarfjórðung. Örlygur Kristfinnsson safnstjóri