Nesfréttir - 27.08.1988, Síða 8

Nesfréttir - 27.08.1988, Síða 8
 FRETTIR Laugardagur 27. ágúst Bæjarpunktar: Á fundi byggingarnefndar Seltjarnarness fyrr í sumar var eftirfarandi tekið fyrir: Til síðari umræðu kom umsókn frá Árna Péturssyni, Austur- strönd 8, um byggingu einbýlis- húss á lóðinni númer 85 við Bollagarða samkvæmt uppdrátt- um Dagnýjar Helgadóttur og Guðna Pálssonar, arkitekta. Eigendur raðhúsanna númer 15 til 25 við Barðaströnd sóttu um leyfi til að byggja garðstofur við húsin og var það samþykkt. Til síðari umræðu kom umsókn frá Kjartani Felixsyni, Austur- strönd 8, um byggingu einbýlis- húss á lóðinni númer 67 við Bollagarða samkvæmt uppdrátt- um Eyjólfs Bragasonar arki- tekts. Til síðari umræðu kom umsókn frá Jóhannesi Benjamínssyni, Melabraut 43, um byggingu ein- býlishúss á lóðinni númer 69 við Bollagarða samkvæmt uppdrátt- um Eyjólfs Bragasonar, arki- tekts. Fundinn sátu Sigurgeir Sig- urðsson, Rúnar Bjarnason, Pór- unn Björgúlfsdóttir, Ásgeir S. Ásgeirsson, Sigurður Kr. Árna- son og Guðmundur Jón Helga- son. Fatnaður fyrir: Smáfólk ungt fólk, og fullorðið fólk. Sængurfatnaður og handklæði v/Eiðistorg KVENNARÁÐSTEFNAN Seltjarnar-konur vöktu athygli - og heimsóttu norska friðarömmu Konur af Seltjamarnesinu voru einar þeirra kvenna sem sóttu Noreg heim á dögunum, á kvennaráðstefnunni víðfrægu. Þeir sem fylgdust með þætti Sigrúnar Stefánsdóttur um ráðstefnuna tóku flestir eftir því að þær vöktu athygli sjónvarpsmanna með söng sem þær fluttu á götu úti. Þessi litli bragur sem þær fluttu var eftir Pál Sigurðsson sem hann samdi sérstaklega fyrir þær árið 1975. Heima hjá Jenny Mars, friðarömmunni, sem bauð konunum 18 i heimsókn og upp á veitingar eitt kvöldið. Að sögn var þetta einn skemmtilegasti og jafnframt óvæntasti atburður ferðarinnar. Jenny Mars er dökkhærða konan sem stendur á spjalli við konur af Seltjarnarnesi. Eftir erfiðan dag settust konurnar niður og fengu sér kaffibolla. Myndin var það vel heppnuð að þær ákváðu (í gríni) að reyna að selja hana til ákveðins kaffiframleiðanda hér á landi. Og segja, það hressir... Á myndinni er Auður á Bergi, Bára og Sveinbjörg. HRAÐÞJÓNUSTA Skómeistarinn Eiðistorgi Önnumst sjúkraviðgerðir ef óskað er. 2. hæð. Sími 611390. Alls lögðu upp í ferðina 18 konur úr kvenfélaginu Seltjörn og voru þær á aldrinum 32 upp í 75 ára. Nokkrum dögum áður en átti að leggja í ferðina kom babb í bátinn. Hótelið sem þær voru búnar að fá inni á var allt í einu troðfullt og ekkert pláss fyrir konurnar 18. Þær voru ekki að baki dottnar og fengu hjálp norsku Bjargar sem reddaði þeim góðu hóteli á 11 stundu. En hún reyndist þeim konum mjög vel í ferðinni. Voru þær konur allar sam- mála um að þetta væri ein sú mesta lífsreynsla sem þær höfðu upplifað. Þær upplifðu meira að segja ævintýri sem enginn annar hópur á ráðstefnunni komst í tæri við. Þeim var nefnilega boðið í heimsókn og veitingar til norskrar friðarömmu, Jenny Mars að nafni, sem þær komust í kynni við í Noregi. Þær bjugg- ust að sjálfsögðu ekki við miklu enda friðaramman orðin roskin kona. En þegar þær komu heim til hennar linnti ekki veitingun- um allan tíman. Fyrst var þeim boðið upp á kaffi og kanilkringl- ur að norskum sið. Þegar þær höfðu lokið við það var þeim boðið upp á ís og púrtvín. Eftir þessar veitingar áttu þær ekki von á meiri veitingum en sú gamla var ekki af baki dottin og færði þeim að síðustu hvítvín og pitsu. Þarna sátu þær langt fram eftir kvöldi og skemmtu sér hið besta, og ræddu heimsins gagn og nauðsynjar. Að sögn Unnar Ágústsdóttur kennara í Mýrarhúsaskóla, sem var ein þeirra er sótti ráðstefn- una var heimsóknin til Jennyar ein skemmtilegasta uppákoma ferðarinnar. En ferðin hafi í sjálfu sér öll verið mjög vel lukkuð og í raun hefðu þær konur þurft að horfa framhjá mörgu sem þær hefðu gjarnan viljað sjá vegna tímaskorts. „Eitt merkilegasta við þessa ferð var hve mikil samstaða ríkti meðal kvenna þó svo mismun- andi stjórnmálaskoðanir hafi legið að baki. Þarna ríkti einstök þverpólitísk samstaða,“ sagði Unnur. Á f 1 I L

x

Nesfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.