Vesturbæjarblaðið - 01.07.2008, Blaðsíða 6
6 Vesturbæjarblaðið JÚLÍ 2008
Sérhæfð meðferð
á vönduðum fatnaði
Kæru viðskiptavinir
Sumt breytist, annað ekki. Í kjölfar eigendaskipta og
sameiningar Hraða við aðrar hreinsanir tökum við upp nýtt
nafn: Þvottahúsið Faghreinsun.
Það sem ekki breytist eru gæðin, verklagið og meðhöndlunin
á fatnaðinum þínum. Við tókum við góðu búi, mjög hæfu
starfsfólki og traustum og góðum viðskiptavinahópi.
Við erum mjög þakklátir fyrir allt þetta og leggjum metnað
okkar í að halda áfram og gera enn betur.
E
H
F.
Sérhæfð meðferð á vönduðum fatnaði
Ægisíðu 115 sími 552 4900
Vesturbærinn einna
vinsælasta hverfið til
búsetu í Reykjavík
Vesturbærinn og miðbærinn
eru vinsælustu hverfi borgar-
innar þegar kemur að búsetu í
höfuðborginni samkvæmt könn-
un á húsnæðis- og búsetuóskum
Reykvíkinga sem unnin var fyr-
ir skipulags- og byggingasvið
Reykjavíkurborgar árið 2007.
Um netkönnun var að ræða og
var leitað til um 1.600 borgarbúa
og bárust svör frá um 700 þeirra
á aldrinum 18 til 75 ára. Þátttak-
endur svöruðu 34 spurningum
og mátu 29 myndir af húsum og
umhverfi út frá búsetuskilyrð-
um. Þetta eru sömu niðurstöður
og árið 2003 en vinsældir mið-
bæjarins hafa þó ekki vaxið mik-
ið miðað við aukið framboð nýs
húsnæðis þar. Því kann að valda
neikvæð umræða um miðbæinn,
ekki síst næturlífið þar.
Þau hverfi sem hafa mest sótt
á síðan 2003 eru Árbær/Grafar-
vogur, Kjalarnes og Hlíðarnar.
Vatnsmýrin og Úlfarsárdalur eru
vinsælustu nýbyggingarsvæð-
in, en aðeins 4% aðspurðra nef-
ndu Örfirisey. Bjarni Reynarsson,
skipulagsfræðingur hjá Landráði
sf., hafði umsjón með könnuninni.
Hann segir í Morgunblaðinu að að
vinsældir Vesturbæjarins og mið-
bæjarins megi helst rekja til þess
að fólk vilji vera í grónu umhverfi,
í nánd við miðbæinn, gömlu höfn-
ina og háskólastofnanir. Fólk leggi
mesta áherslu á fjölskylduvænt
og friðsælt umhverfi. Útsýni, skjól
og útivistarmöguleikar eru þá
mikilvægustu umhverfisþættirnir.
Þegar spurt var hvernig húsnæði
vantar helst í borgina svaraði um
25% að það væri lág fjölbýlishús,
um 20% nefndi hæðir og því næst
komu einbýlishús og raðhús.
79% svarenda í könnuninni búa
í eigin húsnæði og 9% hjá foreldr-
um eða ættingjum. 71% býr í 3-5
herbergja íbúðum og á um 60%
heimila búa tveir eða færri. Fram
kemur að flestir sníði sér stakk
eftir vexti í húsnæðismálum en
flestir vilja hafa sem mest sér,
s.s. góðan garð eða stórar svalir,
hafa góða aðstöðu til að grilla og
vilja ekki heyra í nágrönnunum.
Húsnæðisóskir miðaldra og eldra
fólks eru mun fjölbreyttari en
þeirra sem yngri eru og vill nokk-
ur fjöldi þeirra búa í háhýsum.
Niðurstöður þessar rannsóknar-
innar munu nýtast skipulagsyfir-
völdum Reykjavíkur við skipulag
nýrra hverfa í borginni í framtíð-
inni.
Hótel mun rísa á
horni Vonarstrætis
og Lækjargötu
Borgarráð samþykkti tillögu
að breytingu á deiliskipulagi
Kvosarinnar vegna lóðarinnar
Lækjargötu 12 í síðustu viku.
Tillagan gerir ráð fyrir að reist
verði hótel og bankaútibú í
nýbyggingu á sameinaðri lóð
Lækjargötu 12 og Vonarstrætis
4 og 4B. Gömul verksmiðjubygg-
ing á baklóð Vonarstrætis 4B
verður fjarlægð og þar reist þrig-
gja til fjögurra hæða útbygging
fyrir hótelið. Á jarðhæð hótelsins
verður veitingastaður og almenn-
ingsrými ásamt móttöku en jarð-
hæðin verður opin almenningi á
daginn og á kvöldin. Inngarður
mun bæði nýtast almenningi og
gestum hótelsins.
Verkefnið er metnaðarfullt og í
góðu samræmi við stefnu borgar-
yfirvalda um uppbyggingu í mið-
borginni sem tengir vel menning-
arsögu og atvinnulíf.
Eftir að upphafleg tillaga að upp-
byggingu á svæðinu var auglýst
bárust nokkrar athugasemdir frá
íbúum í nágrenninu. Í breyttri til-
lögu er komið til móts við athuga-
semdirnar, m.a. með þeim hætti
að hálf hæð er tekin af bakhúsi til
að takmarka ekki birtu og útsýni
íbúa við Kirkjuhvol. Dregið verð-
ur úr sjónrænum tengslum milli
íbúa og hótelsins þar sem engir
gluggar verða á jarðhæð hótels í
átt að íbúðarhúsum.
Veggur út að Kirkjuhvoli hefur
verið dreginn töluvert inn á lóð
Lækjargötu 12. Gert er ráð fyrir
að þar verði útbúinn garður við
lóðarmörk í stað þess veggs sem
stendur þar í dag.
Þannig mun hótelið líta út séð til norðurs eftir Lækjargötunni.
Séð yfir Vesturbæinn.
Flestir svarendur húsnæðis- og búsetukönnunar
völdu Vatnsmýrina og Úlfarsárdal sem álitlegustu
kostina þegar kemur að nýbyggingarsvæðum en
aðeins 4% Örfirisey. Vinsældir Vesturbæjarins og
miðbæjarins má helst rekja til þess að fólk vill vera
í grónu umhverfi í nánd við miðbæinn, gömlu höfn-
ina og háskólastofnanir. Fólk leggur mesta áherslu
á fjölskylduvænt og friðsælt umhverfi en útsýni,
skjól og útivistarmöguleikar eru mikilvægustu
umhverfisþættirnir.
Á haustdögum mun félagið
Matur -saga-menning efna til
sýningar um mat og mataræði
Reykvíkinga á 20. öld. Sýningin
verður til húsa í hjarta miðbæj-
arins, Aðalstræti 10, elsta húsi
Reykjavíkur og er markmiðið
með henni að bjóða Reykvíking-
um og öðrum gestum að fræðast,
njóta og bragða á lítt þekktri mat-
arsögu höfuðborgarinnar.
Vegna undirbúnings sýningar-
innar er leitað eftir upplýsingum
hjá fólki sem á í fórum sínum
gögn um mataræði Reykvíkinga
fyrrum, einkum persónulegum
heimildum, myndum og matarupp-
skriftum frá Reykvíkingum. Sér-
staklega gaman væri að fá afnot
af myndum úr fjölskylduveislum,
skírnarveislum, fermingarveisl-
um og brúðkaupsveislum í heima-
húsum þar sem maturinn er í
forgrunni, búreikningum, matseðl-
um frá veitingahúsum og síðast
en ekki síst handskrifuðum upp-
skriftarbókum allra myndarlegu
húsmæðranna í Reykjavík. Einnig
væri áhugavert að fá upplýsing-
ar um merka frumkvöðla í matar-
gerð og þá einstaklinga, sem sett
hafa á eftirminnilegan hátt, mark
sitt á matarsögu Reykjavíkur.
Upplýsingar um sýninguna
er að finna á heimasíðu hennar:
www.matarsetur.is
Reykvíska eldhúsið:
Matur og mannlíf í hundrað ár
Aðalstræti 10.
AUGL†SINGASÍMI
511 1188
895 8298