Vesturbæjarblaðið - 01.07.2008, Blaðsíða 15

Vesturbæjarblaðið - 01.07.2008, Blaðsíða 15
15VesturbæjarblaðiðJÚLÍ 2008 milli himins og jarðar. Og einu sinni fórum við Mummi vinur minn langt út fyrir þau mörk og tókum að velta fyrir okkur óra- víddum himingeimsins. Ég man að þessi óendanleiki var alveg að gera okkur sturlaða þegar Mummi bjargaði málunum. Stóð snögg- lega upp og sagði: „Þetta endar í vegg” og ég gleymi því seint hve létt okkur var er við gengum heim á leið það kvöldið. En skömmu síðar, svona rétt í þann mund sem ég var að festa blund það kvöld- ið, þá var ég svo vitlaus að fara að velta því fyrir mér hvað væri handan veggjar og ætlaði aldrei að geta sofnað. Og enn þann dag í dag mun próblem þetta ekki liggja alveg ljóst fyrir meðal helstu stjarnfræðinga heimsins. En fótboltinn heillaði mig sem sagt upp úr skónum og þarna á túninu átti ég nokkur góð ár þar til ég endaði eins og allir þarna sem sýndu sæmileg tilþrif - í KR. Af barnaskólanámi og KR Barnaskólaganga mín á er ósköp klassísk fyrir Vesturbæing, norðan Hringbrautar. Fyrstu þrjú árin var ég í gamla Stýrimannaskólanum við Öldugötu og þrjú hin síðari í Melaskóla þar sem ég lauk barna- skólaprófi. Af kennurum mínum frá þessum árum er mér minnis- stæðastur Jens Hallgrímsson sem kenndi mér árin þrjú í Öldugötu- skólanum, yndislegur maður og góður kennari. Öldugötuskólinn var lítill og afskaplega notalegur. Þar þekkti maður alla og allir þek- ktu mann. Melaskólinn var miklu stærri og ekki eins persónulegur og hlýr. Mér leið ekki vel í fyrstu í Mela- skólanum. Við komum þar þrír nýj- ir strákar inn í 10 ára bekkinn og var ekki tekið ástúðlega í fyrstu, svo ekki sé meira sagt. Í dag væri talað um einelti en hugtakið var bara ekki fundið upp í þá daga. En þetta jafnaði sig allt að lokum og allt er fyrir löngu fyrirgefið. En eftir á að hyggja er ég ekki í nok- krum vafa um að það var geta mín í fótboltanum sem réði mestu um það að ég náði að samlagast hópn- um. Margra ára æfingar og keppni uppi á Landakotstúni komu mér þarna til bjargar. Tveimur mánuð- um eftir að ég hóf nám við Mela- skólann var bekkjarbróðir minn, núverandi skólastjóri skólans, Björn Pétursson, jafnan kallaður Blöffi, búinn að fá mig til að ganga í KR. Og í KR áttum við Blöffi eftir að innbyrða saman marga meist- aratitlana, jafnt í fótbolta sem handbolta og þó maður þori vart að nefna það hér þá unnum við líka einn ansi sætan titil með Gróttu. Og enn þann dag í dag er ég í góðu sambandi við marga bekkjarfélaga mína í Melaskóla. Í bekknum mínum voru t.a.m. hann Blöffi, eins og fyrr segir, og hann Valli, sonur Guðmundar Jónsson- ar óperusöngvara, sem borðaði alltaf hunangskökur í nestistímum þegar við hin létum okkur nægja rúgbrauð með kæfu. Þarna voru líka Páll Baldvin, bókmenntarýnir, Árný Sveinbjörnsdóttir, jarðfræð- ingur, Ragnheiður Erla Bjarnadótt- ir, síðar landsfræg vegna getu sinn- ar í spurningaþáttum fjölmiðla, Steingrímur Ari Arason, fv. formað- ur einkavæðinganefndar, Ingólfur Hannesson, íþróttafréttamaður, Sigurbjörn Björnsson, læknir, Sól- ey Bender, hjúkrunarfræðingur og Pétur Jóhannesson, verkfræðing- ur. Þetta var afbragðsbekkur. Að loknum Melaskólanum fór- um við svo í Hagaskóla og ég held að ég geti fullyrt að flest okkar hafi svo haldið áfram í stúdentinn og eftir það í framhaldsnám. Og svo eldist maður, og dreymir um dolluna! Eftir heimkomuna frá námi ytra tók svo brauðstritið við. Fyrstu sjö árin var ég forstöðumaður Ljósmyndasafnsins sem við stofn- uðum saman nokkrir góðir vinir um 1980. Það safn er nú í góð- um gír í eigu Reykjavíkurborgar. Og nú í hartnær tuttugu ár hef ég svo verið á fullu í bókaútgáfu. Fyrst sem ritstjóri hjá Erni og Örlygi og nú með eigin útgáfu, Skruddu, sem ég á ásamt félaga mínum Steingrími Steinþórssyni, sem auðvitað er einnig borinn og barnfæddur Vesturbæingur. Og útgáfan hefur að sjálfsögðu aðset- ur sitt í Vesturbænum, nánar til tekið úti í Örfirisey. Og börnin eru tvö, Kolbrún og Edda, yndislegar og vel lukkað- ar stúlkur í alla staði enda þótt mér hafi engan veginn tekist að vekja áhuga þeirra á boltaíþrótt- um, hvað þá minni uppáhalds tómstundaiðju, stangveiði. Í þeim efnum bind ég hinsvegar miklar vonir við barnabörnin mín tvö, Önnu Lenu sem nú er tíu ára og nafna minn sem nú er á öðru ári. Og um æskuheimilið á Brávalla- götunni er það að segja að það er enn í eigu fjölskyldunnar. Þar býr móðir mín nú á fyrstu hæðinni, amma sem orðin er 98 ára á þeirri annari og Óskar, uppáhaldsfrændi minn, á þeirri efstu með sinni góðu konu, Jóhönnu. Kjallaraíbúð- ina verma svo jafnan einhverjir blankir námsmenn innan fjölskyld- unnar. En sjálfur bý ég eins og fyrr segir í Skólastræti 5, austan Lækj- ar, en er þó svo heppinn að útsýn- ið spannar nær einvörðungu það sem er vestan Lækjar. Og úr stofunni heima horfi ég ár hvert á glæsilega flugeldasýningu KR og hugsa þá ávallt sem svo: Það getur ekkert komið í veg fyrir að við hirðum dolluna í bolt- anum næsta sumar! Kynnið ykkur raforkuframleiðslu og sjáið einnig skemmtilegar sýningar í Blöndustöð, Kröflustöð, Laxárstöð, Ljósafossstöð við Sog og Gestastofu Fljótsdalsstöðvar í Végarði. Stöðvar Landsvirkjunar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar. Végarður er opinn frá kl. 9-17 alla daga vikunnar. Heimsókn til Landsvirkjunar er ókeypis. Nánari upplýsingar um opnunartíma og sýningar í stöðvum eru á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000. Búrfellsstöð Sýning á starfi og verkum myndhöggvarans Sigurjóns Ólafssonar í tilefni af því að hann hefði orðið 100 ára á árinu. Lágmyndin á Búrfellsstöð er verk Sigurjóns og er stærsta lágmynd á Íslandi. Handhafi Íslensku gæðaverðlaunanna 2007 Sigurjón Ólafsson P IP A R • S ÍA • 8 11 6 8 • Lj ós m yn d : S ig fú s P ét ur ss on Við systkinin af Brávallagötunni. Einkar samheldinn og skemmtileg- ur hópur. Ég er þessi hávaxni með skeggið, svo kemur Snorri, þá Ingólfur og loks Margeir. Systurnar Lilja og Laufey sitja svo eins og prinsessur í öndvegi.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.