Vesturbæjarblaðið - 01.07.2008, Side 8

Vesturbæjarblaðið - 01.07.2008, Side 8
Vesturbæingurinn og alþingismaðurinn Ögmund- ur Jónasson varð sextugur 17. júlí sl. og hélt upp á afmælið með miklum glæsibrag í götunni þar sem hann býr með sinni fjölskyldu, þ.e. við Grímshag- ann. Kona hans er Valgerður Andrésdóttir og börn- in þrjú, Andrés, Guðrún og Margrét Helga. Gatan er lokuð gata og við enda hennar var reist heilmikið tjald þar sem gestir, sem voru fjölmargir, m.a. samherjar sem andstæðingar í pólitíkinni, gátu borið sig eftir léttum veitingum og fengið skjól fyrir rigningunni sem um stund helti sér yfir svæðið og þar með þá veislugesti sem ekki leituðu skjóls undir tjald- dúknum. Ávörp voru hins vegar flutt undir berum himni og þurftu ræðumenn því að sæta því að blotna svolítið, enda verður enginn verri þó hann vökni svolítið. Geir Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins færði Ögmundi að gjöf frá þingflokknum beisli og múl og Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins færði Ögmundi nýveiddan lax en hann sagði að með því vildi hann tryggja að ef ríkisstjórnin leiddi yfir landsmenn mikið öngþveiti og jafnvel hungur ætti Ögmundur í öllu falli lax í soðið. Frá samherjunum í Vinstri grænum fékk Ögmundur mikið andlegt fóður í formi bóka auk drykkjarfanga frá Austur-Evrópu. 8 Vesturbæjarblaðið JÚLÍ 2008 Glæsileg afmælisveisla Ögmundar á Grímshaganum Steingrímur J. Sigfússon, flokksformaður VG afhendir Ögmundi gjafir frá flokkssystkinunum. Með eiginkonunni, Valgerði Andrésdóttur undir regnhlíf en nokkuð rigndi þegar á veisluna leið. Geir Haarde forsætisráðherra afhendir gjöf frá þingflokki Sjálfstæðismanna, beisli og múl! Guðni Ágústsson formaður Framsóknarflokksins færði Ögmundi nýveiddan lax að gjöf. Margt mætra gesta var á Grímshaganum, m.a. Arnbjörg Sveinsdóttir formaður þing- flokks Sjálfstæðismanna, Sturla Böðvarsson forseti Alþingis og Davíð Oddsson Seðla- bankastjóri. Andans menn voru þarna líka, m.a. rithöfundarnir Ingólfur Margeirsson og Pétur Gunnarsson. Skólabróðir Ögmundar, sr. Gunnþór Ingason, sóknarprestur við Hafnarfjarð- arkirkju, ávarpaði afmælisbarnið m.a. í bundnu máli, og kallaði það ,,Hugrekki og háleit sjónarmið.” Eðlisgerð þín Ögmundur er traust og elsku sýnir þú með ljúfu geði, því sigra vannst og sóma mikinn hlaust svo sextugur þú nýtur lífs og gleði. Hugrekki og háleit sjónarmið, þér hafa gefið mikla stefnufestu, þú sérð hvar þarf að veita veikum lið, og veist að samkennd skiptir lífið mestu Fyrirmyndar fréttamaður varst, og frásögn skýra gafst af högum manna. En andi ferskur ávallt með þér barst sem efldi þrána til hins fagra og sanna. Og forysta þín farsæl jafnan er í félagsmálum og á þingi háu. Orðspor þitt af fögrum verkum fer að fórnfúst vinnir mjög í særðra þágu Á vinstri grænum gæfuvegi berst því gróður lands og velferð fólks vilt tryggja. En landsins gróðurvinjum reynast verst virkjanirnar sem á græðgi byggja. Þú sérð í gegnum svikið, rangt og valt, þá sýndarmennsku er þykist mikið kunna. Spámannsrödd þín hljómar hátt og snjallt og hrífur þá er sannleikanum unna Oft þú minnir mig á sjálfan Krist og mynd af þér í Fánu á stúdentsári. Krossfestur og kvalinn getur virst er kennir raunir lífs í hjartasári. En glaður samt á gamansaman hátt gengur þú að öllum þínum störfum og trúir því að batni kjörin brátt og bæta megi úr vanda, neyð og þörfum Að eiga þig sem óska sessunaut og ávallt síðan vin og fósturbróður frá Menntaskóla og alla ævibraut mér er og verður mikill gæfusjóður. Þú átt að baki öflugt stuðningslið sem öruggt fylgir þér að ljósu miði. En Vala þín og velgerð börn við hlið verða þér að allra mesta liði Kveðju færðu,, Leik- og lærðum” frá, ljúfa vinafundi er gott að muna. Við stjórnmál ræðum, strauma er líða hjá og stillum huga á list og menninguna. Þjóðlíf jafnan þarfnast traustra róta og þeirra manna er gæta að landsins hag. Verka þinna margir munu njóta og minnast þín og fagna vel í dag Soli Deo Gloria Gunnþór Ingason

x

Vesturbæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.