Austurland - 19.09.2013, Blaðsíða 12

Austurland - 19.09.2013, Blaðsíða 12
12 19. september 2013 Bílaverkstæði Hjólbarðaverkstæði Pústverkstæði Smurþjónusta Gleðilega páska Lokað laugardaginn 30.mars opið mán-fös: kl.8-18 lau: kl.11-15 Gleðilega páska opið mán-fös: kl.10-18 lau: kl.11-15 Lokað laugardaginn 30.mars Sími: 471-3002 netf. topphlutir@simnet.is Sólvangur 5, 700 Egilsstaðir neyðarsími 861-4260 opið mán-fös: kl.8-18 lau: kl.11-15 Gleðilega páska opið mán-fös: kl.10-18 lau: kl.11-15 Lokað laugardaginn 30.mars Sími: 471-3002 netf. topphlutir@simnet.is Sólvangur 5, 700 Egilsstaðir Klausturkaffi Flestir Austfirðingar sem og margir aðrir Íslendingar þekkja Klaust- urkaffi, notalegu veitingastofuna í Gunnarshúsi á Skriðuklaustri í Fljótsdal. Klausturkaffi hefur verið rekið í Gunnarshúsi á Skriðuklaustri frá því árið 2000. Frá upphafi hefur verið leit- ast við að nota hráefni af svæðinu, s.s. lerkisveppi, hrútaber og önnur ber, hvönn, hundasúrur, lamba- og hreindýrakjöt. Lerkisveppasúp- an og hrútaberjaskyrkakan hafa verið á matseðlinum frá upphafi. Klausturkaffi var einn af stofnaðil- um austfirskra krása. klausturkaffi er opið daglega yfir suMarið en nú í septeMber Verð- ur opið seM hér segir Sunnudaginn 22. september, laugar- daginn 28 september og sunnu- daginn 29. september frá kl. 12.00- 17.00. Boðið verður upp á hádegis- og kaffihlaðborð alla dagana. Lokað verður á Skriðuklaustri laugardaginn 21. vegna Melaréttar og Eiðahátíðar. Síðasta kaffihlaðborð sumarsins verður sem sagt sunnudaginn 29. september næstkomandi. Þeir sem ekki ná að njóta veiting- anna sjálfra í Klausturkaffi næstu helgar geta bakað skyrtertuna sem Elísabet Þorsteinsdóttir var svo vin- samleg að gefa okkur uppskriftina að. Melarétt 2013 Réttað verður í Melarétt laugardaginn 21. september kl. 13.00. Rekstur úr safnhólfi hefst kl. 11.00. Einhverjir höfðu áhyggjur af því að óveðrið sem gekk yfir Austur- land um síðustu helgi hefði áhrif á réttirnar en Þorvarður Ingimarsson á Eyrarlandi, sem er fjallskilastjóri í ár, sagði að vegna óhagstæðrar veðurspár hefðu leitar- menn notað tækifærið á laugardag og smalað fénu nær. Því væru ekki líkur á því að hið vonda veður raskaði réttunum og stefndu allir ótrauðir að því að réttað yrði laugardaginn 21. september næstkomandi. a Hrútaberjaskyrterta botn » 1 pk homeblest eða hafrakex, mulið » 70 gr brætt smjör Blandað saman og þrýst í botn á böku móti (sem kakan er borin fram í!) fylling » 1 peli rjómi Stífþeytið rjómann og blandið þessu út í: » 500 gr skyr (óhrært) » 70 gr sykur » 1 tsk vanilludropar » 1/2 bolli hrútaberjahlaup / saft Hrært saman og smurt yfir botninn. Kakan sett í kæli og sultu smurt yfir hana þegar hún er borin fram! Verði ykkur að góðu! Fluconazol ratiopharm eitt hylki - stakur skammtur árangursríkt gott verð einfalt Sveppasýkingu í leggöngum Einungis 1 hylki tekið um munn við Nýjung án lyfseðils á Íslandi! Notkunarsvið: Fluconazol ratiopharm inniheldur fluconazol. Án ávísunar frá lækni er Fluconazol ratiopharm notað við sveppasýkingum í leggöngum af völdum gersveppsins Candida hjá konum sem áður hafa verið greindar með sveppasýkingu. Frábendingar: Ofnæmi fyrir fluconazoli eða skyldum azól-lyfjum eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Samhliða meðferð með cisapridi, astemizoli, terfenadini, pimozidi, erythromycini eða quinidini. Gæta skal sérstakrar varúðar ef eftirfarandi á við: Í mjög sjaldgæfum tilvikum getur Fluconazol ratiopharm valdið alvarlegum húðviðbrögðum með blöðrumyndun og húðlosi (Stevens-Johnson heilkenni). Ef húðútbrot koma fram á meðan á meðferð með Fluconazol ratiopharm stendur skal strax hafa samband við lækni, sem ákveður hvort nauðsynlegt sé að grípa til frekari aðgerða. Samhliða meðferð með halofantrini eða terfenadini. Meðfædd eða áunnin breyting á starfsemi hjartans (lengingu QT bils). Samhliða notkun lyfja sem einnig geta lengt QT bilið á hjartalínuritinu, t.d. lyf við hjartsláttartruflunum í flokki IA eða III. Truflun í jafnvægi blóðsalta, einkum minnkuð þéttni kalíums og magnesíums. Hægur hjartsláttur sem þarfnast meðferðar, hjartsláttartruflanir eða alvarleg hjartabilun. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki skal nota Fluconazol ratiopharm á meðgöngu eða við brjóstagjöf. Skömmtun: Við Candidasýkingu í leggöngum: Eitt Fluconazol ratiopharm 150 mg hylki í stökum skammti. Algengar aukaverkanir: Höfuðverkur, húðútbrot, kviðverkur, uppköst, niðurgangur og ógleði, breyting á lifrargildum. Lesið vandlega fylgiseðil sem fylgir lyfinu. SmPC: Maí 2013. ER BÍLSÆTIÐ RIFIÐ ? Viðgerðir á öllum gerðum af bíla-, mótorhjóla og snjósleðasætum. Húsbílaklæðningar og öll almenn bólstrun. Við erum þekktir fyrir fljóta og góða þjónustu. Hamraborg 5 kóp, Hamrabrekkumegin S. 544 5750 www.hsbolstrun.is Formbólstrun

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.