Austurland - 19.09.2013, Blaðsíða 8
8 19. september 2013
Íþróttastarf og –aðstaða á Austurlandi
Í síðasta tölublaði Austurlands fjallaði ég aðeins
um grunnskóla á Austurlandi. Í þessu blaði mun ég
skoða íþróttastarf sem börnum og öðrum býðst á
Austurlandi. Á sumum stöðum hef ég náð í viðmæl-
endur en á öðrum stöðum hef ég þurft að styðjast við
heimasíður og annað tilfallandi til að afla upplýs-
inga um íþróttastarf á viðkomandi stað. Þótt sam-
antektin sé alls ekki tæmandi er ljóst að íþróttastarf
á Austurlandi er með miklum blóma og margt í boði
þannig að flestir, sem áhuga hafa á íþróttum, ættu
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Mikið að gerast á Vopnafirði
Magnús Már Þorvaldsson greindi
frá stöðu mála á Vopnafirði en þar
æfir bróðurpartur nemenda grunn-
skólans, sem nú eru 99, knattspyrnu
og/eða blak á vegum Ungmennafé-
lagsins Einherja, en mörg kjósa að
vera með í hvorri grein – að vetri.
Að sumri heldur Einherji úti öflugu
starfi ungmenna og meistaraflokks
karla. Tekur félagið þátt í Íslands-
mótinu í velflestum flokkum og þá
í flokki 7 manna liða enda æði oft
fámennt í flokkum. Leikfimikennsla
er að sjálfsögðu snar þáttur í kennslu
grunnskólans.
Hestamannafélagið Glófaxi býð-
ur upp á námskeið að sumri en þó
hópurinn sé ekki stór sem að fé-
laginu stendur eru góðir hlutir að
gerast meðal hestamanna. Björg-
unarsveitin heldur úti ungmenna-
starfi og eru ungmennin áhugasöm
og kirkjustarfið, barna- og ung-
menna, er það öflugt að það vekur
athygli á landsvísu.
Íþróttahúsið er mikið notað, tímar
í sal allan daginn; fyrst skólinn, svo
Einherji með knattspyrnu og blak
og síðan útleiga, t. a. m. badminton
karla og kvenna. Líkamsræktin nýt-
ur æ meiri vinsælda og var Magnús
Már einn af þeim sem gerðu hana
að veruleika. Íþróttahúsið þjónar
enn um sinn sem búningsaðstaða
knattspyrnufólks en Einherjar
hafa með tilstyrk sveitarfélagsins,
Mannvirkjasjóðs KSÍ og nokkurra
fyrirtækja á staðnum byggt nýjan
knattspyrnuvöll og ljóst að innan tíð-
ar verður byggt og/eða keypt hús sem
mun þjóna sem íþróttavallarhús með
sturtuaðstöðu. Núverandi keppnis-
völlur verður þá aðalæfingasvæði
og varavöllur.
Selárlaug er sundlaug sveitarfé-
lagsins í 11 km. fjarlægð frá þétt-
býlinu. Nú er verið að vinna mikla
vinnu við laugina og byggja yfir nýj-
an tækjakost sem þjónar klórblöndu
vegna krafna frá HAUST. Sumir
Vopnfirðingar hefðu frekar viljað
byggja upp nýja laug við íþrótta-
húsið, svo sem áætlað var á sínum
tíma og húsið gerir ráð fyrir mið-
að við hönnun þess, og nýta spilli-
varma vinnslustöðva HB Granda
til kyndingar á lauginni. Selárlaug
hefði þá getað verið eins og hún var.
Golfvöllurinn er 9 holu völl-
ur, þykir spennandi lögunar sinn-
ar vegna. Byggt hefur verið nýtt
vallarhús, þ. e. hús sem klúbbur-
inn fékk að gjöf frá HB Granda og
endurgert með tilliti til sinna þarfa.
Það er stækkandi hópur sem stundar
golf á Vopnafirði.
HB Grandi hf. hefur um 2ja
ára skeið boðið öllum íbúum frítt
í íþróttahúsið, þ. e. í ræktina, en
sveitarfélagið leggur Einherja, golf-
klúbbnum og Glófaxa til fjármuni
samkvæmt samningi við félögin
og þó æfingagjöld séu innheimt af
Einherja eru þau langtum lægri en
víðast hvar á Íslandi.
allt sprungið á fljóts-
dalshéraði
Á Fljótsdalshéraði sér íþróttafé-
lagið Höttur aðallega um skipulegt
íþróttastarf. Á heimasíðu Hattar
kemur fram að íþróttafélagið Höttur
hafi verið stofnað árið 1974 á Eg-
ilsstöðum. Félagið var stofnað eftir
sameiningu Knattspyrnufélagsins
Spyrnis og Ungmennafélagsins Hatt-
ar. Sigurjón Bjarnason var fyrsti for-
maður hins sameinaða félags. Ung-
mennafélagið Höttur var aftur á móti
stofnað 1952 og var fyrsti formaður
þess Ingimar Sveinsson.
Í dag er hægt að æfa badminton,
blak, fimleika, frjálsar, handbolta,
körfubolta, sund og taekwondo hjá
Hetti. Fimleikadeildin er fjölmenn-
asta deildin en óhætt er að segja að
mikill uppgangur sé í íþróttastarfi
Hattar.
Ungmennafélagið Þristur stendur
fyrir íþróttastarfsemi í Fljótsdal, á
Völlunum og í Skriðdal. Þristarfé-
lagar nota oft íþróttahúsið á Hall-
ormsstað fyrir starfsemi sína auk
þess sem óformlegir Þristarleik-
ar eru haldnir á Fljótsdalsdegi á
Skriðuklaustri ár hvert.
Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum
er með 1200 fermetra íþróttasal sem
er hægt að skipta niður í þrjár ein-
ingar. Á efri hæð hússins er líkams-
ræktaraðstaða með góðum tækjum
og í kjallara hússins er lítill salur þar
sem boðið er upp á ýmis konar leik-
fimi. Íþróttakennsla Egilsstaðaskóla
fer fram í Íþróttamiðstöðinni. Einnig
hefur Menntaskólinn á Egilsstöðum
aðgang að húsinu til íþróttakennslu
og þjálfunar. Aðrir aðalnotendur eru
Íþróttafélagið Höttur og Íþróttafélag
Menntaskólans.
Fjölnotahúsið í Fellabæ var tek-
ið í notkun í lok árs 2004. Íþrótta-
salurinn er 323 fermetrar að stærð.
Hann er fyrst og fremst notaður til
íþróttakennslu fyrir grunnskóla og
leikskóla fyrri hluta dags, en síðdegis
og á kvöldin er hann leigður út til
einstaklinga og íþróttafélaganna.
Það er skemmst frá því að segja
að hið blómlega íþróttastarf hefur
sprengt húsnæðið utan af sér og
getur það verið erfitt að raða saman
stundatöflu svo allir séu sáttir. Auk
þess verða árekstrar sem leiða til
þess að börn geta ekki lagt stund
á allar þær íþróttir sem þau hafa
áhuga á.
Íþróttahúsið á Hallormsstað er
í eigu Hallormsstaðaskóla, enda er
það samkomusalur skólans og al-
menn kennslustofa. Íþróttasalurinn
sjálfur er um 200 fermetrar að stærð.
Íþróttakennsla við Hallormsstaða-
skóla fer fram í húsinu og einnig
nýtist það vel til tómstundastarfs
fyrir nemendur. Í íþróttasalnum er
ágæt ráðstefnuaðstaða með hljóð-
kerfi, skjávarpa, föstu sýningartjaldi
og þráðlausu netsambandi. Hall-
ormsstaðaskóli notar húsið að mestu
en einhverjir tímar eru leigðir út til
einkanota. Íþróttahúsið er nokkuð
vel tækjum búið til íþróttaiðkunar
og við það er kennslusundlaug sem
notuð er til skólasunds vor og haust.
Í Brúarási er einnig íþróttahús.
Það er byggt við Brúarásskóla og er
um 400 fermetrar að stærð. Húsið er
aðallega notað til íþróttakennslu við
Brúarásskóla og nýtist jafnframt vel
til íþrótta- og tómstundastarfs með
nemendum skólans. Þó að skólinn
noti húsið mestmegnis eru þó alltaf
einhverjir tímar leigðir út til einka-
nota. Samkomur eru líka haldn-
ar í salnum og má þar t.d. nefna
þorrablót sveitarinnar.
Á Egilsstöðum er Vilhjálmsvöllur,
góður og fjölnota frjálsíþróttavöllur
með sex hlaupabrautum með gervi-
efni sem er einnig á stökksvæðum.
Innan brautar er knattspyrnuvöllur
með grasi. Hjá Vilhjálmsvelli stendur
Hettan sem í senn er áhaldageymsla
og félagsaðstaða Hattar. Þar eru
skátar einnig með sína félagsaðstöðu.
Í kjallara hússins er búningsaðstaða
og sturtur. Völlurinn er nefndur í
höfuðið á einum mesta íþróttagarpi
Fljótsdalshéraðs, Vilhjálmi Einars-
syni sem var fyrstur Íslendinga til
að hljóta verðlaun á Ólympíuleik-
um. Vilhjálmur hlaut silfurverðlaun í
þrístökki og til gamans má geta þess
að silfurstökk Vilhjálms er málað í
tartanbrautina þar sem þrístökk fer
fram á vellinum.
Fellavöllur var formlega tekinn
í notkun í desember 2007. Hann er
Fifa keppnisvöllur í fullri stærð og
uppfyllir öll skilyrði keppnisvallar
að undanskildum áhorfendastúkum.
Völlurinn er flóðlýstur og upphitaður
með búningsaðstöðu. Fellavöllur er
aðal æfingasvæði Knattspyrnudeild-
ar Hattar.
Börn á Fljótsdalshéraði hafa
einnig getað spilað golf á sumr-
in á golfvellinum Ekkjufelli og í
Reiðhöllinni á Iðavöllum hefur verið
boðið upp á reiðnámskeið þar sem
börnin þurfa ekki að koma með eigin
hesta. Á veturna er einnig hægt að
æfa skíði og fer skíðakennsla og –
þjálfun fram í Stafdal.
Öldungurinn huginn stuðl-
ar að hraustri æsku
Á Seyðisfirði heldur Íþróttafélagið
Huginn utan um íþróttastarfið og var
félagið stofnað árið 1913. Það fagnar
því 100 ára afmæli á þessu ári. Innan
félagsins hafa margar íþróttagreinar
verið iðkaðar í gegnum tíðina, svo
sem knattspyrna, handbolti, skíði,
sund, blak, badminton og frjálsar
íþróttir. Starfið hefur verið hvað öfl-
ugast undanfarin ár í knattspyrnu,
auk þess sem skíðaiðkun hefur átt
stóran sess, enda er skíðasvæðið í
Stafdal örstutt frá Seyðisfirði. Að
auki hefur blak sótt í sig veðrið á
Seyðisfirði og hefur félagið sent lið
til keppni á Öldungamóti í blaki
bæði í karla- og kvennaflokki um
árabil.
Eins og staðan er núna á Seyðis-
firði þá eru þeir sem skipuleggja
íþróttastarfið að bíða eftir niður-
stöðum úr könnun sem lögð var fyrir
í grunnskólanum. Til boða stendur
þjálfun í handbolta, badminton,
blaki og sundi. Flest af þessu, ef ekki
allt, verður í boði fyrir aldurinn 1.-10.
bekk. Vel gæti þó verið að ekki yrðu
allar greinar í boði nú á haustönn.
Það fer eftir niðurstöðum könnunar-
innar, sem lögð var fyrir með það
markmið að kanna áhuga barna og
unglinga á þessum íþróttum. Undan-
farinn einn og hálfan vetur hefur
verið boðið upp á handboltaþjálfun,
svo ljóst er að úrvalið eykst hratt
þar sem 3 greinar bætast etv. við nú
í haust. Þetta stendur þó allt og fellur
með þjálfurum (og auðvitað áhuga
barnanna), þ.e. hvernig fólk (með
hvaða hæfileika) fæst til þjálfunar
hverju sinni.
Aðstaða til íþróttaiðkunar á
Seyðisfirði er mjög góð. Seyð-
firðingar búa að afar góðu íþrótta-
húsi, þar sem allar íþróttagreinar
eru kenndar. Íþróttamiðstöð Seyðis-
fjarðar var formlega tekin í notkun 1.
febrúar 1999. Í stöðinni er löglegur
handboltavöllur, 5 badmintonvellir,
2 körfuboltavellir og 5 bocciavellir.
Einnig er fullkominn tækjasalur til
líkamsræktar, gufa og heitur pottur.
Sundið fer fram í Sundhöll Seyðis-
fjarðar. Sundhöllin, sem teiknuð var
af Guðjóni Samúelssyni, húsasmíða-
meistara ríkisins, var byggð árið
1948. Sundlaugin er innilaug 12,5
x 7 m, lítil en vinaleg, með tveimur
heitum pottum (inni) og gufubaði.
Hægt er að ganga út í garð og þar
eru bekkir og stólar til að sóla sig í.
Öflugt félagslíf í
fjarðabyggð
Í Fjarðabyggð er mjög öflugt íþrótta-
starf og þar er frábær aðstaða til
íþróttaiðkunar: 5 íþróttahús, 5 sund-
laugar, knattspyrnuhöll, skíðasvæði
og svo mætti lengi telja. Guðmund-
ur Halldórsson er íþrótta- og tóm-
stundafulltrúi Fjarðabyggðar.
Á Norðfirði er það Íþróttafélagið
Þróttur, stofnað 1923, sem stendur að
miklu leyti fyrir íþróttastarfseminni.
Í sumar var meðal annars boðið upp
á leikjanámskeið fyrir börn fædd
2003-2008, sundæfingar fyrir börn
fædd 2003-2008, knattspyrnu, blak
fyrir börn fædd 1997-2001 og frjáls-
ar íþróttir fyrir börn á öllum aldri.
Samkvæmt heimasíðu Þróttar er
þar knattspyrnudeild, blakdeild
og skíðadeild. Þar kemur fram að
taekwondo deild Þróttar hafi verið
stofnuð í vor.
Í sumar fagnaði Þróttur 90 ára
afmæli íþróttafélagsins en Þróttur
í Neskaupstað hefur náð bestum
keppnisárangri í blaki kvenna og
er nú bæði Íslands- og deildarbik-
armeistarar. Í tilefni af 90 ára af-
mælinu gaf SÚN Þrótti 9 milljónir
króna með ósk um að féð nýttist
til að greiða niður æfingagjöld og
mikinn ferðakostnað yngri flokka
en ferðakostnaður er ávallt meiri hjá
íþróttafélögum úti á landi heldur en
hjá íþróttafélögum á höfuðborgar-
svæðinu.
Golfklúbbur Norðfjarðar bauð
í sumar upp á ókeypis golfæfingar
fyrir börn yngri en 16 ára, Hesta-
mannafélagið Blær stóð fyrir æsku-
lýðsdögum á Kirkjubólseyrum þar
sem öll börn yngri en 18 ára sem gátu
útvegað sér reiðskjóta voru velkomin.
Þá var Kajakklúbburinn Kaj einnig
með námskeið.
Íþróttahúsið í Neskaupstað er al-
hliða íþróttahús í fullri stærð sem
þjónar skóla, æfingum íþróttafélags-
ins Þróttar sem og almenningi auk
þess sem húsið er nýtt fyrir mótahald
og keppnir. Bað- og búningsklefar
eru nýttir vegna æfinga og keppni
á knattspyrnuvelli. Knattspyrnu-
völlurinn stendur við íþróttahúsið
og er lagður gervigrasi. Sundlaug
Neskaupstaðar er 25 metra útilaug
með tveimur heitum pottum, vað-
laug, sánabaði og tveimur stórum
rennibrautum auk þess sem rekin
er líkamsrækt í kjallara. Laugin er
nýlega endurbyggð.
Á Eskifirði er það Ungmenna-
félagið Austri sem heldur að miklu
leyti utan um íþróttastarfsemina. Hjá
Austra er meðal annars knattspyrnu-
deild, sunddeild og skíðadeild.
Á Eskifirði er glæsileg útilaug með
heitum pottum og gufubaði. Einnig
er þar barnavaðlaug og rennibrautir.
Sundlaugin var tekin í notkun árið
2006. Laugin er 25 m. útilaug með
tveimur pottum, vaðlaug, sánabaði
og þremur rennibrautum auk þess
sem líkamsræktaraðstaða er í hús-
inu. Knattspyrnuvöllur á Eskifirði
stendur við sundlaugina en bún-
ingsaðstaða fyrir völlinn er í sund-
lauginni. Íþróttahúsið á Eskifirði er
lítill salur sem þjónar grunnskólan-
um, æfingum íþróttafélagsins Austra
og almenningi auk þess sem húsið
er nýtt fyrir mótahald og keppnir.
Íþróttahúsið stendur við Grunnskóla
Eskifjarðar við Strandgötu
Í Fjarðabyggð er starfsrækt Skot-
íþróttafélagið Dreki og er það með
inniaðstöðu í kjallara íþróttahússins
á Eskifirði auk skeetvallar og riffil-
brautar í norður hlíðum Eskifjarðar.
Á Reyðarfirði er það Ungmennafé-
lagið Valur, stofnað 1936, sem heldur
utan um íþróttastarfsemina. Hjá Val
er lögð stund á knattspyrnu og nýt-
ur félagið Fjarðabyggðarhallarinnar,
sérstaklega á veturna. Einnig verður
boðið upp á körfubolta, badminton
og glímu en Reyðfirðingar hafa löng-
um verið frægir fyrir góðan árangur
í glímu og er mikil hefð fyrir iðkun
hennar á Reyðarfirði. Einnig verður
boðið upp á skíðaæfingar í samstarfi
við Skíðafélag Fjarðabyggðar. Eitt
gjald er greitt ársþriðjungslega fyrir
allar íþróttir hjá Ungmennafélaginu
Val. Veittur er 50% systkinaafsláttur
fyrir annað barn og 75% afsláttur
fyrir þriðja barn.
Hjá Golfklúbbi Fjarðabyggðar
gátu börn undir 16 ára aldri æft
sér að kostnaðarlausu í sumar og
Vélíþróttafélag Fjarðabyggðar er
hluti af hinu öfluga íþróttastarfi í
Fjarðabyggð. Félagið er með tvær
motorcrossbrautir, aðra fyrir byrj-
endur og hina fyrir lengra komna.
Íþróttahúsið á Reyðarfirði er lít-
ill salur sem þjónar skóla, æfingum
íþróttafélagsins Vals og almenningi
auk þess sem húsið er nýtt fyrir
mótahald og keppnir. Á vorin er gólf
íþróttahússins tekið af en undir því
er innilaug sem er notuð til sund-
kennslu. Íþróttastarf hefst því ekki
á Reyðarfirði fyrr en í október þegar
gólfið er aftur sett yfir sundlaugina.
Íþróttahúsið stendur við Grunnskóla
Reyðarfjarðar. Sambyggt íþrótta-
húsinu er ágæt líkamsræktarstöð.
Bað- og búningsklefar eru nýttir
fyrir líkamsræktarstöð og æfingar
og keppnir í Fjarðabyggðarhöllinni.
Fjarðabyggðarhöllin er yfirbyggt
fjölnota hús með knattspyrnuvelli í
fullri stærð.
Á Fáskrúðsfirði heldur Ungmenna-
félagið Leiknir, stofnað 1940, utan um
íþróttalífið. Í sumar var boðið upp á