Austurland - 30.04.2014, Síða 2
2 30. apríl 2014
Samkvæmt dagatalinu er sumardagurinn fyrsti liðinn og því komið sumar. Í minningunni er alltaf nístings-
kuldi á sumardaginn fyrsta en það er ef til vill vegna þess
að mamma mín vildi alltaf vera í sumarfötum á sumrin
og þau voru miklu efnisminni en vetrarfötin. Ég er aftur á
móti þvílík kuldaskræfa að dúnúlpunni er aldrei pakkað
niður heldur hangir hún uppi í anddyrinu allt sumarið.
Það var í raun í fyrsta sinn í fyrra sem úlpan fékk að hanga
óáreitt allt sumarið en ekki kom til mála að færa hana úr
anddyrinu. Ég treysti því ekki að veðrið héldist gott dag
eftir dag. Enginn veit hvernig sumarið í ár verður en það
sem einum þykir gott finnst öðrum vont. En hvernig sem
sumarið verður er eitt víst: Það verður nóg um að vera.
Í þessu blaði er minnst á ýmislegt sem hefur verið í
gangi í apríl sem og annað sem er á döfinni. Listin og
menningin blómstrar í formi alls kyns sýninga, málverka-,
ljósmynda- og leiksýninga og ráðstefnur, námskeið, að-
alfundir og íþróttamót eru næstum daglegur viðburður.
Svo mikið er um að vera að óvinnandi vegur er að gera
því öllu skil. Á málþingi sem var haldið í byrjun apríl um
svæðisbundna fjölmiðla sagði einn frummælenda að á
svæðismiðlunum væru yfirleitt einyrkjar að störfum og
starfið því slítandi til lengdar auk þess sem ómögulegt væri
að segja frá öllu sem væri að gerast.
Í lok maí verða sveitarstjórnarkosningar um allt land
og framboðsfrestur rennur út þann 10. maí. Þegar næsta
blað kemur út verður því ljóst hvaða listar verða í fram-
boði hér á Austurlandi. Gaman verður að fylgjast með því
hvort einhver ný framboð líta dagsins ljós en eitt er víst að
einhverjir nýgræðingar verða á listum í bland við eldri og
reyndari. Þótt ég sé lítið fyrir stjórnmál þá fyllist ég alltaf
einhverri spennu þegar kosningar eru en hvort það er bara
tilhlökkun vegna sumarsins skal ósagt látið.
Halldóra Tómasdóttir
LEIÐARI
Vorið á
næsta leiti
Vaxtarsamningur Austurlands auglýsir eftir umsóknum
Auglýst er eftir umsóknum í Vaxtarsamning Austurlands.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní 2014 og umsóknir skilist
rafrænt til Vaxtarsamnings Austurlands, vaxa@austurbru.is
Umsóknareyðublað er hægt að nálgast á heimasíðu Vaxtar-
samningsins www.austurbru.is og eru umsækjendur einnig
hvattir til að kynna sér samninginn og viðauka hans á sömu
heimasíðu, en úthlutun fer fram skv. ákvæðum samningsins frá
2010-2013 og viðaukum.
Verkefnastjóri Vaxtarsamnings verður með viðveru á Djúpavogi
og í Fjarðabyggð þriðjudaginn 20. maí og á Borgarfirði eystri og
Egilsstöðum fimmtudaginn 22. maí. Tímapantanir í síma 470-3851
fyrir 16. maí (Djúpivogur og Fjarðabyggð) og 19. maí (Borgarfjörður
og Egilsstaðir).
Nánari upplýsingar og ráðgjöf veitir Hrund Snorradóttir hjá
Austurbrú, netfang: vaxa@austurbru.is eða í síma 470-3851
Heimsfrumsýning
Leikfélag Fljótsdalshéraðs frum-
sýndi nýtt íslenskt leikrit í Valaskjálf
laugardaginn 26. apríl síðastliðinn.
Um er er að ræða nýjasta verk Ás-
geirs Hvítaskálds. Hann segir verkið
hafa verið að gerjast til fjölda ára
en hann fór þó ekki að skrifa það
fyrr en hann flutti á Fljótsdalshérað.
Lokasýning verður föstudaginn 9.
maí kl. 20.30.
Gull í tönn segir frá gömlum
hestabónda sem hefur tilkynnt
að hann ætli að deyja og það sé í
rauninni góður dagur í dag til þess.
Við þessar fréttir gerir fólk sér upp
erindi við kallinn, því hann er með
þeim ósköpum að vera með gulltenn-
ur í munninum og allir vilja fá sinn
hlut í gullinu. Erfðagræðgin bloss-
ar upp og uppgjör um gamlar sakir
komast á yfirboðið.
Sýningar eru í félagsheimilinu
Valaskjálf á Egilsstöðum þar sem all-
ur sveitabærinn hefur verið reistur
og meira að segja reisulegt hesthús.
Verkið flokkast sem gaman/drama
og ætti því að höfða til allra, þá sér-
staklega hestamanna, peningamanna
og kjaftakellinga.
Ritstjóri brá sér upp í Valaskjálf
á generalprufuna og átti þar ágætis
kvöldstund. Leikmyndin er virki-
lega fín og gefur stóru leikhúsunum
í Reykjavík ekkert eftir í skiptingum
þótt líklega reyni meira á áhugaleik-
arana í Leikfélagi Fljótsdalshéraðs
heldur en atvinnumennina fyrir
sunnan. Leikrit Ásgeirs á sína góðu
spretti en stundum verður málfar-
ið aðeins of háfleygt. Leikararnir
standa sig flestir vel en best voru
Freyja Kristjánsdóttir í hlutverki
hinnar misskildu ráðskonu og Al-
mar Blær Sigurjónsson í hlutverki
hins pínda útfararstjóra. Það verður
gaman að fylgjast með Almari Blæ
í framtíðinni og minnast þessara
frumrauna hans á austfirsku leik-
sviði en hann lék einnig einn ræn-
ingjanna í Kardimommubænum
sem LF setti upp í fyrra auk þess
sem hann fór með aðalhlutverkið í
Vælukjóa Leikfélags ME fyrr á þessu
ári. a
Skvaldur á Norðfirði
Þann 1. - 12. maí sýnir Leikfélag
Norðfjarðar farsann Skvaldur (öðru
nafni Allir á svið) eftir Michael Frayn.
Verkið er sýnt í Egilsbúð, Neskaup-
stað og leikstjóri er Bryndís Ósk Þ.
Ingvarsdóttir. Verkið Skvaldur er
gríðarlega fjörugur gamanleikur sem
fjallar um uppsetningu á leikriti sem
heitir Allslaus. Vandinn er sá að leik-
hópurinn í Allslaus er samansettur af
persónum sem eru bæði of dramat-
ískar og barnalegar til að geta unnið
saman án þess að allt fari í háaloft.
Ekki bætir úr skák að leikstjórinn er
algjör harðstjóri. Þetta er skotheld
uppskrift að rosalegum hamagangi
og allskonar misskilningi þar sem
sviðið er yfirtekið af buxnalausum
mönnum, slepjulegum sardínum og
hurðaskellum.
Leikfélag Norðfjarðar var stofn-
að upp úr 1880 og hefur það ver-
ið starfrækt síðan með nokkrum
hléum. Árið 1998 sýndi leikfélagið
sýninguna Rjúkandi ráð sem tókst
með eindæmum vel en lagðist svo í
dvala. Árið 2013 komu saman þrír
metnaðarfullir leikhúsáhugamenn
sem þráðu að endurvekja Leikfélag
Norðfjarðar. Hugmyndum var kastað,
spenningurinn jókst og hópnum
tókst að fá til liðs við sig fleiri list-
hneigða einstaklinga. Þann 1. maí
2013 leit leiksýningin Allt í plati
dagsins ljós og naut mikillar hylli
hjá öllum aldurshópum. Svo mikill
var áhuginn í samfélaginu að leik-
félagið ákvað að einskorða sig ekki
við eina sýningu á ári heldur færa út
kvíarnar og byrja með unglingastarf
sem hefur gengið mjög vel. a
List án landamæra
á Austurlandi
Lagarfljótsormurinn var valinn
sem aðalviðfangsefni hátíðarinnar
á Fjótsdalshéraði í ár en þemað er
annars „Vættir og þjóðsögur“. Því má
sjá fjölbreyttar útfærslur af ormin-
um víðs vegar um Fljótsdalshérað
í bland við aðrar vættir og þjóð-
sagnapersónur. Hátíðin stendur frá
10. – 25. maí næstkomandi víða um
Austurland.
Laugardaginn 10. maí verða opn-
unarhátíðir á ýmsum stöðum m.a. á
Gistihúsinu á Egilsstöðum þar sem
boðið verður upp á tónlistarsmiðju,
listasmiðjur og ormadans svo fátt eitt
sé nefnt. Í Sláturhúsinu verður opn-
uð sýning þátttakenda í Hugmynda-
samkeppni Austurlands á útfærslu
lyklakippu sem minjagrips. Einnig
verða ýmsar útfærslur leikskóla-,
grunnskóla- og menntaskólanem-
enda á Fljótsdalshéraði á þjóðsögum
af Héraði til sýnis. Í Bókakaffi Hlöð-
um verður sýning á skúlptúrum nem-
enda í Fellaskóla og leikskólabörn af
Hádegishöfða sýna verk. Á Salt Bi-
stro verður skúlptúr eftir nemendur
Hússtjórnarskólans á Hallormsstað
til sýnis sem og vegglistaverk sem
er samstarfsverkefni Hlymsdala og
Stólpa og á Heilbrigðisstofnun Aust-
urlands verða verk leikskólabarna til
sýnis. Einnig verður hægt að finna
listaverk úti í náttúrunni, á Kaffi
Egilsstöðum og á Skriðuklaustri. Á
Djúpavogi sýna grunnskólanemend-
ur og eldri borgarar verk og atriði
tengd þjóðsögum á Hótel Framtíð
og í Tryggvabúð. Sjá nánar á www.
listin.is. a