Austurland - 30.04.2014, Blaðsíða 6

Austurland - 30.04.2014, Blaðsíða 6
6 30. apríl 2014 Ekki missa af ... Útskurðarsýningunni Tré- skurður – Handverk og list í Gunnarshúsi á Skriðuklaustri. Á sýningunni eru fjölbreytt skurðarverk eftir tólf félagsmenn í Félagi áhugamanna um tréskurð, sex karlmenn og sex konur. Sýningin verður til 4. maí. Ljósmyndasýningunni Úlfaspor sem feðgarnir Úlfur Björnsson og Björn Ingv- arsson standa saman að. Myndirnar tóku þeir feðgar á austurströnd Grænlands í júlí 2012. Sýningin er í Slát- urhúsinu og er til 8. maí. Leiksýningu Leikfélags Fljótsdalshéraðs Gull í tönn eftir Ásgeir Hvítaskáld sem jafnframt er leikstjóri. Um er að ræða gamandrama um afdalabónda sem ákveður að leggjast fyrir og deyja og flykkist þá ólíklegasta fólk á staðinn til að ná í hluta af gullinu. Sýnt er í Vala- skálf og lokasýning verður föstudaginn 9. maí. Ljóðastund í Bókakaffi laugardaginn 10. maí kl. 15.00. Um er að ræða síðustu ljóðastund Félags ljóðaunnenda á Austurlandi á þessum vetri og vegna hátíðarinnar Listar án landamæra eru menn hvattir til að dusta rykið af austfirskum þjóðsögum við ritsmíðar sínar. Leiksýningu Leikfélags Norðfjarðar Skvaldri eft- ir Michael Frayn. Verkið er sýnt í Egilsbúð, Neskaupstað og leikstjóri er Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir. Verkið Skvaldur er gríðarlega fjör- ugur gamanleikur sem fjallar um uppsetningu á leikriti sem heitir Allslaus. Síðasta sýning verður 12. maí. Viðburðum og sýningum tengdum List án landamæra – listahátíð með áherslu á fjölbreytileika mann- lífsins en hún stendur frá 10. – 25. maí víða um Austurland, m.a. á Fljótsdalshéraði, í Fjarða- byggð, á Borgarfirði, Seyðisfirði og víðar. Sjá nánar á www.listin.is. Öllu því sem ekki er upp talið hér en það er örugglega margt. Rímur og rokk til Vesterålen í Noregi Dagana 14. – 20. apríl sl. fóru níu íslensk ungmenni á aldrinu 15-17 ára af norðausturhorni landsins til Vesterålen í Norður-Noregi þar sem þau kynntu íslenskar rímur. Ferðin var lokahnykkur þriggja ára verk- efnis undir yfirskriftinni „Rímur og rokk“. Undanfarin tvö ár hafa ungmenni af norðausturhorni landsins unnið með rímur og þjóðlög. Síðastliðið sumar bættust í hópinn ungmenni frá Vesterålen í Norður-Noregi og saman unnu þau undir stjórn Stein- dórs Andersens kvæðamanns, Hilm- ars Arnar Hilmarssonar tónskálds, Baldvins Eyjólfssonar tónlista- kennara og Sigrid Randers-Pehrson þjóðlagasöngkonu. Að sögn Hrundar Snorradóttur var ferðin í alla staði vel heppnuð og tóku Norðmenn tóku vel á móti þeim. Unnið var í vinnusmiðju frá þriðjudegi til föstudags við að æfa klukkutíma dagskrá sem sýnd var á sviði í Kino í Sortland á föstudaginn langa. Á dagskránni voru nokkur rímnalög, íslensk og norsk þjóðlög, dægurlög og samískt jóðl. Sum lögin voru flutt bæði á norsku og íslensku, sumt var alfarið á íslensku og annað alfarið á norsku. Í einu tilfelli var norska þjóðlaginu Svein Svane flétt- að saman við íslenska þjóðlagið Vís- ur Vatnsenda-Rósu og var það alveg einstaklega skemmtileg og falleg út- setning. Sýningin heppnaðist vel og er tilefni til að vera stolt af fulltrúum Vopnfirðinga í verkefninu, bæði fyrir árangurinn en ekki síður fyrir góða og kurteisa framkomu í ferðinni allri. Ferðin var þó ekki eintóm vinna, heldur gafst tækifæri til að heim- sækja samískt hreindýrabú, keyra um Vesterålen og skoða náttúruna og bæina í kring, fara í gallerí, á jazztónleika, í keilu og félagsmið- stöð og síðast en ekki síst að versla í H&M sem er sívinsæl iðja meðal Íslendinga. Rímur og rokk er samstarfsver- kefni milli menningar- og fræðaset- ursins Kaupvangs á Vopnafirði og Menningarráðs Vesterålen Regienråd í Noregi. Markmið verkefnisins er að viðhalda menningararfleifðinni sem felst í rímum og þjóðlögum ásamt því að þróa áfram þessi fornu kvæða- form með margvíslegri tónlist við ýmis kvæðalög Íslendinga og Norð- manna og flétta þessar tvær menn- ingararfleifðir saman. Hugmyndasmiður verkefnisins er Sigríður Dóra Sverrisdóttir og hefur hún notið aðstoðar Hrund- ar Snorradóttur hjá Austurbrú við verkefnastjórnun. Verkefnið hefur sem fyrr segir verið unnið í samstarfi við Menningarráð Austurlands og Menningarráð Vesterålen og not- ið bæði fjárhagslegs stuðnings og hvatningar. Fjölmargir aðilar hafa lagt sitt að mörkum til að gera hópn- um kleift að halda til Noregs til að ljúka þessu þriggja ára verkefni. Þau eru HB Grandi, Bílar og vélar ehf., Samfélagssjóður Alcoa-Fjarðaráls, Vopnafjarðarhreppur og Ísfélagið. Menningarráð Austurlands hefur í tíu ár verið í samstarfi við Menn- ingarráðið í Vesterålen í Noregi. Fyrir tilstuðlan samstarfsins hefur fjöldi listamanna dvalið í listamannaí- búðum í báðum löndum auk fjölda samstarfsverkefna á sviði tónlistar, myndlistar, karnivals, dans og leik- listar. Unnið upp úr fréttatilkynningu frá Austurbrú og vefnum www. vopnafjardarhreppur.is ÚTBOÐ Göngustígur og stofnlagnir í Fellabæ Hitaveita Egilsstaða og Fella óskar eftir tilboðum í verkið GÖNGUSTÍGUR OG STOFNLAGNIR Í FELLABÆ. Verkið felst í lagningu á 580 m löngum göngustíg samhliða endurnýjun á 750 m af stofnlögnum hitaveitu og vatnsveitu meðfram hringvegi frá Smiðjuseli að Lagarbraut í Fellabæ ásamt 250 m af öðrum lögnum. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Egilsstaða og Fella, Einhleypingi 1, 700 Egilsstöðum, frá og með miðvikudegi 9. apríl 2014, eða samkvæmt samkomulagi. Nánari upplýsingar á heimasíðu HEF, www.hef.is. Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 7. maí 2014 kl. 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska (ath. breytt dagsetning). Atvinna Málmiðnaðarmaður Hitaveita Egilsstaða og Fella óskar eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi til starfa, góð þekking á logsuðu og rafsuðu góður kostur. Helstu verkefni • Málmsmíði og lagnavinna • Endurnýjun lagna í hitaveitubrunnum • Tenging húsa við veitukerfin og uppsetning tengigrinda • Vinna tengd dælustöðvum, fráveitu og vatnsveitu • Þjónusta við viðskiptavini Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Davíðsson framkvæmdastjóri í síma 470 0787 eða gudmundur@hef.is. Umsóknarfrestur er til 6. maí 2014.

x

Austurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austurland
https://timarit.is/publication/1094

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.