Austurland - 30.04.2014, Blaðsíða 4
4 30. apríl 2014
Síðasta ljóðastund vetrarins
Síðustu átta vetur hefur hópur á veg-
um Félags ljóðaunnenda á Austur-
landi hist einu sinni í mánuði og lesið
ljóð og vísur, ýmist frumsamið efni
eða annarra. Lengi vel hittist hópur-
inn í ME en síðustu tvo vetur hafa
ljóðastundirnar verið í Bókakaffi kl.
15 annan laugardag í hverjum mánuði
frá hausti til vors. Þótt ljóðastund-
irnar séu haldnar á vegum Félags
ljóðaunnenda eru allir velkomnir,
hvort sem þeir eru í félaginu eða ekki.
Aprílstundin var helguð afrakstri
ritlistarnámskeiðs sem haldið var
á vegum félagsins og Gunnars-
stofnunar í samstarfi við ME og
Rithöfundasamband Íslands í mars
og apríl. Nemendur námskeiðsins
stigu í pontu og lásu efni sem varð
til á námskeiðinu í bland við annað
frumsamið efni.
Síðasta ljóðastund vetrarins
verður í Bókakaffi laugardaginn 10.
maí næstkomandi. Þar sem menn-
ingarhátíð List án landamæra hefst
þennan dag verða verk eftir nemend-
ur úr Fellaskóla til sýnis í Bókakaffi.
Verkin verða byggð á þjóðsögum úr
Fellum og annars staðar af Fljóts-
dalshéraði. Vegna þessa sagði for-
maður Félags ljóðaunnenda, Magnús
Stefánsson, að gaman væri ef verkin
sem flutt yrðu á ljóðastundinni 10.
maí væru tengd þjóðsögum af ein-
hverju tagi en mönnum væri auð-
vitað frjálst að flytja hvað sem þeir
vildu. a
Blómstrandi menning á Seyðisfirði
Vilhjálmur Jónsson tók vel í að svara
spurningum Austurlands um hvern-
ig gengið hefði hjá Seyðfirðingum
á því kjörtímabili sem væri að líða
og hvaða væntingar hann hefði til
þess næsta.
Gott samstarf og skuldir að
minnka
Að mörgu leyti hefur vel tekist til,
ýmiss mál þokast nokkuð og þjón-
ustan eflst. Ég vil byrja á að nefna
þann árangur sem náðst hefur varð-
andi samgöngubætur við Seyðisfjörð
með því að Alþingi hefur ákveðið
að ráðist verði í undirbúningsrann-
sóknir við Fjarðarheiðargöng milli
Seyðisfjarðar og Fljótsdalshéraðs.
Mikil og góð samstaða hefur ver-
ið hjá bæjarstjórninni um að bæta
rekstur kaupstaðarins og aðlaga
umfang starfseminnar að þeim
breytingum sem orðið hafa vegna
fólksfækkunar undanfarna tvo ára-
tugi. Það skipti miklu máli og ekki
síður þátttaka starfsmanna kaup-
staðarins í aðgerðum til að ná settu
marki. Áætlanir gera ráð fyrir að
skuldir sem hafa verið of miklar
lækki umtalsvert á næstu árum og
viðmiðum um skuldahlutfall verði að
óbreyttu náð á árinu 2017. Samstarf
við sveitarfélög á svæðinu á ýmsum
sviðum hefur verið farsælt.
Ekki var ráðist í miklar fram-
kvæmdir á kjörtímabilinu
Vegna erfiðrar fjárhagsstöðu hefur
mikils aðhalds verið gætt varðandi
framkvæmdir og helst lögð áhersla á
viðhald og endurbætur. Hafnarsjóð-
ur byggði við olíu og lýsisbryggju við
Síldarvinnsluna sem bætir viðlegu
og aðstöðu í landi nokkuð verulega.
Samgöngubætur og jákvæð ímynd
Seyðisfjarðar
Eitt stærsta sóknarfærið liggur í
samgöngubótum með Fjarðarheiðar-
göngum. Fyrir hendi er ein besta
höfn landsins sem getur tekið við
auknum verkefnum. Innviðir; mann-
virki og stofnanir bæjarins svo sem
skólar og íþróttamannvirki geta
tekið við umtalsverðri viðbót án
mikils tilkostnaðar. Hátt menntun-
arstig íbúa. Blómstrandi menning
og listir sem laða að fólk, erlendis
frá sem innanlands. Mikil og rómuð
náttúrufegurð sem ásamt viðburðum
ýmsum dregur að fjölda ferðamanna
á hverju ári og Seyðisfjörður hefur
fengið einstaklega jákvæða umfjöll-
un í erlendum útgáfum fyrir ferða-
menn sem og innlendum fjölmiðlum.
Erfiðar vetrarsamgöngur
Erfiðar vetrarsamgöngur eru
hamlandi þrátt fyrir góða vetrar-
þjónustu Vegagerðarinnar við oft
erfið skilyrði. En með bættum sam-
göngum er ekki vafi að léttara yrði
að byggja upp margvísleg atvinnu-
tækifæri.
Mikilvægt að treysta fjárhag
sveitarfélagsins
Það skiptir afar miklu að áfram verði
unnið að því að treysta fjárhag kaup-
staðarins. Í því sambandi er mjög
mikilvægt að góð eining verði áfram
um megin viðmið og markmið þar
að lútandi. Ég tel að það verði mjög
mikilvægt að fylgja eftir þeirri stefnu
sem nú er unnið eftir hvað varðar
lausn samgöngumála Seyðfirðinga,
Austfirðinga og annarra vegfar-
enda með Fjarðarheiðargöngum. Ég
vek athygli á mikilvægi samstarfs
sveitarfélaga á svæðinu sem skiptir
svæðið, sveitarfélögin á því og íbúa
þeirra miklu Mörg stærri framfara-
mál svæðisins og uppbygging hafa
orðið að veruleika vegna þess sam-
starfs. Miklu skiptir að ganga til þess
samstarfs af heilindum. Hluti þeirra
verkefna og þar með tækifæra sem
sveitarfélögin á svæðinu sinna væru
ekki framkvæmd hér án samstarfs.
Störf í sveitarstjórnum eru fjölþætt,
krefjandi og vandasöm en um leið
gefandi. Miklu skiptir því þó tekist
sé málefnalega á um viðfangsefnin
að leitast við að hafa og efla góðan
anda manna á milli. a
Sveitarfélögin á Austurlandi
Vegna sveitarstjórnarkosninganna
sem fram fara þann 31. maí næstkom-
andi ákvað ritstjóri að hafa samband
við forystumenn sveitarfélaganna á
Austurlandi og spyrja þá aðeins út í
það hvernig gengið hefði á því kjör-
tímabili sem nú væri að ljúka og hvaða
væntingar þeir hefðu til komandi
kjörtímabils. Í þessu blaði birtast svör
frá Seyðisfjarðarkaupstað. Í næsta
tölublaði Austurlands munu vonandi
birtast svör frá þeim sveitarfélögum
sem eftir eru því margt áhugavert og
fróðlegt hefur komið fram í svörunum
sem hafa birst hingað til. Eftirfarandi
spurningar voru lagðar fyrir forystu-
mennina:
» Hvað finnst þér hafa gengið
vel á því kjörtímabili sem er
að verða búið?
» Viltu nefna eitthvað sem
ráðist var í?
» Er eitthvað sem þér finnst að
hefði mátt ganga betur?
» Hvar liggja helstu sóknarfæri
samfélagsins?
» Er eitthvað sem þú telur
að standi samfélaginu
fyrir þrifum t.d. fólksfjöldi,
samgöngur, atvinnutækifæri,
ójöfn kynjaskipting eða
eitthvað annað?
» Hvaða væntingar/
ráðleggingar hefurðu til
sveitarstjórna/bæjarstjórna
komandi kjörtímabils?
Ég vek athygli á mikilvægi
samstarfs sveitarfélaga á
svæðinu sem skiptir svæð-
ið, sveitarfélögin á því og
íbúa þeirra miklu.
Nýr kosninga
vefur á RÚV
Á nýjum kosningavef RÚV: http://
www.ruv.is/kosningar er að finna
ítarlegar upplýsingar um öll 74
sveitarfélög landsins. Hægt er
að velja sveitarfélag af korti og
fá nánari upplýsingar um það.
Upplýsingar, sem sóttar eru í
ýmis opinber gagnasöfn, eru sett
fram með myndrænum hætti og
bornar saman við landsmeðal-
tal – þetta á til að mynda við um
kynjaskiptingu í sveitarfélögum,
meðaltekjuskatt (sem segir til um
meðaltekjur í sveitarfélaginu) og
aldursdreifingu. Auk þess má sjá
þróun íbúafjölda síðasta ára-
tuginn.
Þetta verður lifandi vefur og
upplýsingum verður bætt þang-
að inn fram að kosningum, með-
al annars fréttaskýringum um öll
sveitarfélög landsins, þar sem
búa fleiri en 500 íbúar. Þá verða
settar inn upplýsingar um alla
framboðslista en framboðsfrestur
rennur út 10. maí næstkomandi .
Oddvitum allra framboða verður
boðið að senda inn stutta mynd-
bandsupptöku með ávarpi. Sem
gerð verður aðgengileg á kosn-
ingavefnum.
Það er von þeirra, sem að
vefnum standa, að íbúar allra
sveitarfélaga landsins finni þar
áhugaverðar og gagnlegar upplýs-
ingar í aðdraganda kosninganna
31.maí. a
SKAFTFELL ER ÞEKKT um allt land og út fyrir landsteinana
FRÁ LJÓÐASTUNDINNI Í apríl.
TÓNLISTARSKÓLINN ER UNDIRSTAÐA
blómlegs tónlistarlífs
STAFDALUR ER VINSÆLT skíðasvæði