Ægir - 01.08.2012, Qupperneq 17
17
S A L A F I S K A F U R Ð A
um borð og skila honum full-
unnum. Fyrirtækið á einnig
öflugan flota fjögurra skipa til
veiða á uppsjávarfiski; síld,
loðnu, makríl og kolmunna
sem landa aflanum að mestu
í vinnslur fyrirtækisins á
Vopnafirði en einnig á Akra-
nesi. Lögð er sérstök áhersla
á afurðir til manneldis en
framleiðsla fiskmjöls og lýsis
er einnig mikilvægur þáttur í
starfsemi fyrirtækisins.
Markaðir taka stöðugum
breytingum
Svavar Svavarsson, markaðs-
stjóri, segir þá verðaðlögun
sem orðið hefur á fiski í
helstu viðskiptalöndum Ís-
lendinga mikilvæga til að við-
halda neyslu og spurn eftir
fiski. Erfiðar markaðsaðstæð-
ur á Spáni, Portúgal og
Grikklandi hafa ekki haft telj-
andi áhrif á HB Granda þar
sem félagið er ekkert í salt-
fiski og aðeins um 3 - 4% af
framleiðslu fyrirtækisins sé í
dag að fara inn á markaði í
þessum löndum.
- Er einhver munur á sölu-
möguleikum sjófrysts fisks og
fisks sem unninn er í landi í
ykkar frystihúsum eða verk-
smiðjum?
„Nei, það er ekki svo. Við
erum að selja allan okkar fisk
hvort sem hann er unninn til
sjós eða lands. Við seldum til
40 landa á síðasta ári en 10 af
þeim löndum kaupa fyrir um
80% af söluverðmætinu en
hin 30 eru með restina, 20%.
Flest þessara landa eru utan
Evrópusambandsins en Rúss-
land var á síðasta ári lang-
stærsta markaðsland okkar og
það stefnir allt í að svo verði
einnig á þessu ári. Þangað
seljum við ekki aðeins síld,
makríl, loðnu og loðnuhrogn
heldur einnig bolfiskafurðir
eins og karfi og gulllax.
Auðvitað taka markaðirnir
breytingum, verð lækka, m.a.
vegna kreppu í Evrópu, og
þá fylgjum við því bara eftir.
Á hverjum virkum degi erum
við að selja frá okkur afurðir
fyrir um 1 milljón dollara svo
það er gríðarlega mikilvægt
að salan gangi hikstalaust og
það sé stöðugt vöruflæði. Í ár
hefur orðið veruleg aukning
á framleiðslu loðnuhrogna.
Það voru framleidd um
16.000 tonn hér á Íslandi og í
Noregi, sem er verulega
meira magn en markaðurinn
er vanur að nota svo það hef-
ur orðið lækkun frá þeim
himinháu verðum sem voru
áður að fást fyrir þessa vöru.
En það er ekki vit í neinu
öðru en að nýta það tækifæri
sem gefst til að framleiða há-
gæða hrogn. Við verðum svo
að fylgja óhjákvæmilegri nið-
ursveiflu í verðum þó við sé-
um að framleiða loðnuhrogn
í hæsta gæðaflokki. Verð á
öðrum vörum okkar hefur í
flestum tilfellum hækkað í er-
lendri mynt undanfarin ár en
verð einstakra vara hefur gef-
ið eftir uppá síðkastið.“
Aukinn þorskkvóti skapar
virðisaukningu
- Hefur þessi verðþróun leitt
til þess að þið hafið verið að
leita nýrra markaða?
„Það er stöðugt verið að
því. Við erum í dag að selja
til 40 landa og með tilkomu
makrílsins höfum við bætt við
viðskiptasamböndum í nýjum
löndum. Tíu af okkar við-
skiptalöndum eru langstærst
með um 80% hlutdeild af
söluverðmæti.
Það er um 200 þúsund
tonna aukning i þorskkvótan-
um í Atlantshafi strax á næsta
ári, en 20% aukning getur
leitt af sér verðlækkun en þó
er ólíklegt að hún verði veru-
leg.“
Svavar segir að stærð fyrir-
tækisins hjálpi í markaðsmál-
um, að vera með mikið magn
á bak við sig og fjölbreytt úr-
val vörutegunda styður heild-
ina og geta ávallt afgreitt það
sem beðið er um á hverjum
tíma. Það styðji líka við í
sölumálunum að vera bæði í
bolfiski og uppsjávarfiski því
vara selur gjarnan aðra vöru.
Um 40% af tekjum félagsins
koma frá uppsjávarfiski og
um 60% botnfiski.
Svavar telur að viðskipta-
vinir íslenskra sjávarútvegs-
fyrirtækja erlendis séu al-
mennt mjög hæfir í alþjóða
viðskiptum. Þátttaka HB
Granda í sjávarútvegssýning-
um erlendis, eins og á sýn-
ingunni í Brussel, er liður í
því að halda góðu sambandi
við viðskiptavinina, afla
nýrra, og einnig að kanna
nýja markaði.
„Það eru engar blikur á
lofti um sölutregðu eða um-
talsvert verðfall á einstaka
vörutegundum, en markaðs-
deildin sýnir auðvitað fyllstu
árvekni enda mikil verðmæti
sem verið er að selja á hverj-
um einasta degi.“
Vottun afar mikilvæg
Vottun á sjálfbærni íslensks
fisks er gríðarlega mikilvæg
undir merkjum Iceland Res-
ponsible fisheries. Nú eru
komnar á borð atvinnumála-
ráðherra tillögur að aflareglu
fyrir karfa, ufsa og ýsu sem
bíða þess að stjórnvöld stað-
festi þessar aflareglur form-
lega. Aflaregla felur í sér stað-
fasta stefnu stjórnvalda á nýt-
ingu þessara fisktegunda til
langs tíma. Í framhaldi munu
þær fisktegundir fá alþjóðlega
vottun um sjálfbærni svipað
því sem hefur verið í þorski
undanfarin ár með mjög góð-
um árangri.
Vottun á sjálfbærni er afar
mikilvæg. Ef fiskistofnarnir fá
að vaxa og dafna verður
ódýrara að sækja fiskinn og
auðveldara að selja hann því
kaupendur eru stöðugt með-
vitaðri og gera þær kröfur að
við getum sýnt fram á að
fiskurinn sem þeir kaupa sé
ekki ofveiddur. Þetta er annar
mikilvægur útgangspunktur
og eykur stöðugleikann,“ seg-
ir Svavar Svavarsson.
HB Grandi.