Ægir - 01.08.2012, Side 23
23
„PD-5 Boost bætiefnið dregur
úr rekstrarkostnaði, sótið
hreinsast úr vélunum, þær
verða þýðgengari og þannig er
lagður grunnur að því að
draga úr eldsneytiseyðslu.
Þegar um skip er að ræða
spila margir þættir inn í elds-
neytiseyðsluna en við sjáum
mýmörg dæmi um t.d. vinnu-
vélar í landi þar sem umtals-
verður eldsneytissparnaður
hefur orðið með notkun PD-5.
Ég hef í mínu fyrra starfi, sem
útgerðarstjóri, oft fengið
kynningu á bætiefnum fyrir
eldsneyti sem ekki hafa vakið
áhuga minn fyrr en nú með
þessu efni. Tölurnar um
aukna nýtingu eldsneytisins,
aukna orku vélanna, sót-
hreinsun, minni mengun og
fleiri þætti vöktu áhuga minn
á PD-5 efninu,“ segir Harald-
ur E. Jónsson, sölufulltrúi hjá
Kemi ehf. Efnið er þar að auki
algerlega án allra kemískra
efna og því umhverfisvænt.
Hann hefur í starfi sínu fyrir
Kemi farið um landið síðustu
mánuði og kynnt notkun PD-5
Boost sem fyrirtækið hóf sölu
á þann 3. maí á þessu ári.
Einfalt og árangursríkt
„Efninu er blandað í geymslu-
tanka eldsneytisins í hlutföll-
unum 1:2.000 og það byrjar
strax að vinna á bakteríum
og gróðurmyndun. Eldsneytið
verður hreinna og þegar í
brunahólfið kemur verður
betri bruni og sót hreinsast
út. Spengikraftur eykst og
það er þessi aukni sprengi-
kraftur sem gefur meiri hita
til að hreinsa sót úr sprengi-
rými vélanna og afgas-
leiðslum. Sú reynsla sem við
höfum fengið í skipavélum,
bátavélum, vinnuvélum og
yfir 3.500 bifreiðum hér á
landi á þessu ári staðfestir
þetta. Eldsneytissparnaður er
umtalsverður en mismikill eft-
ir aðstæðum,“ segir Haraldur.
Kemi kynnti notkun PD-5 hér
á landi fyrr á árinu og náði
strax eyrum útgerðarfyrir-
tækja, verktaka og almenn-
ings. Ekki er að undra miðað
við að eldsneytiskostnaður er
oft á tíðum einn stærsti út-
gjaldaliður útgerða og verk-
taka. Haraldur segir að elds-
neytissparnaður hafi sýnt sig í
flestum tilfellum á bilinu 10-
20% og munar um minna.
Hann segir notkun efnisins
mjög einfalda.
Vinnur með öllum gerðum
jarðefnaeldsneytis
„PD-5 er ætlað til nota með
bensíni, dísel eða bio-dísel
og einfalt er að blanda því í
réttum hlutföllum í eldsneyt-
isgeyma. Notkun PD-5 út-
heimtir því ekki neinn frekari
búnað en sér til hagræðis
hafa stærri skipin komið sér
upp kútum með efninu til
íblöndunar. Nota má efnið
jafnt á heimilsbílinn sem
stærstu skipavélar. „Við erum
í öllum tilfellum að tala um
sparnað í rekstri en augljós-
lega er ávinningurinn mestur
hjá þeim sem nota mikið
eldsneyti. Einnig vegur mjög
þungt að lengja endingartíma
vélanna og draga úr viðhalds-
kostnaði. Að okkar mati sýnir
reynslan því ótvírætt að notk-
un PD-5 skilar góðum ávinn-
ingi,“ segir Haraldur.
Haraldur E. Jónsson, sölufulltrúi hjá Kemi ehf. með brúsa af PD-5 Boost. „Við erum í öllum tilfellum að tala um sparnað í rekstri en augljóslega er ávinningurinn mestur
hjá þeim sem nota mikið eldsneyti.“ Mynd: LalliSig
PD-5 Boost bætiefnið frá Kemi ehf. skilar lækkun rekstrarkostnaðar:
Þýðgengari skipavélar og
sparnaður í eldsneyti
T Æ K N I