Morgunblaðið - 26.02.2015, Qupperneq 1
FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikur Hart barist í Laugardalshöllinni í kvöld þegar kvennalið Gróttu, Hauka, ÍBV og
Vals leiða saman hesta sína í undanúrslitum Coca Cola-bikarsins. Valskonur eiga titil að verja 4
Íþróttir
mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Röggsamur Sigmundur hefur langa reynslu af dómgæslu.
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Tilkynnt var í gær að alþjóðadóm-
arinn Sigmundur Már Herbertsson
hefur verið tilnefndur af evrópska
körfuknattleikssambandinu til að
dæma í lokakeppni EM, EuroBasket
2015, í haust. Að öllu óbreyttu verð-
ur Sigmundur þá fyrsti Íslending-
urinn sem dæmir í lokakeppni hjá A-
landsliðunum í körfubolta.
„Ég er fullur þakklætis og til-
hlökkunar en er líklega ekki alveg
búinn að ná þessu ennþá. Þetta á eft-
ir að síast betur inn en þetta kom
verulega ánægjulega á óvart,“ sagði
Sigmundur þegar Morgunblaðið tók
hann tali í gær en hann fékk frétt-
irnar í gærmorgun.
Gældi við þennan möguleika
Sigmundur segist hafa gælt við
þann möguleika að hann gæti fengið
tækifæri eftir að Íslands vann sér
þátttökurétt í lokakeppninni. Hann
segist þó ekki hafa búist við því að
þetta yrði niðurstaðan enda sé þetta
langstærsta verkefni sem honum
hafi verið falið á ferlinum.
„Ég bjóst ekkert endilega við
þessu en í mínum huga jukust lík-
urnar þegar Ísland komst á mótið þó
ekki sé samasemmerki þar á milli.
Ég get alveg viðurkennt að ég gældi
við þennan möguleika og því var
mjög ánægjulegt að fá þessar fréttir
í morgun. Ég hef svo sem haft um
nóg annað að hugsa í vetur enda nóg
að gera í dómgæslunni hérna
heima,“ sagði Sigmundur sem hefur
verið alþjóðadómari frá árinu 2003.
Hefur hann notið mikillar virðingar
á meðal leikmanna í deildunum hér
heima og ótal sinnum verið kjörinn
dómari ársins á lokahófi KKÍ. Sig-
mundur dæmdi til að mynda bikar-
úrslitaleik kvenna á dögunum í
fimmta skipti og hefur átta sinnum
annast dómgæslu í bikarúrslitaleik
karla.
Hann segir að lokakeppni EM
verði langstærsta verkefnið til þessa
á ferlinum en spurður hvað kemst
næst því nefnir hann Evrópukeppni
félagsliða. „Ég hef dæmt í 16-liða úr-
slitum í Evrópukeppni félagsliða,
Eurochallenge, á vegum FIBA Eu-
rope. Þetta verður því langstærsta
verkefni mitt. Eurobasket er svo
risastórt og dómararnir í keppninni
eru eðlilega mjög sterkir. Í þessari
keppni eru þvílíkar stórþjóðir að
manni finnst hálfótrúlegt að sjá Ís-
landi í þessum hópi.“
Riðillinn skiptir ekki máli
Mér er sama hvar ég lendi þegar
ég dey, segir í frægri fyllirísvísu og
Sigmundi er nokk sama í hvaða riðil
hann verður sendur. Hann mun ekki
dæma í riðli Íslands en hinir þrír
riðlarnir verða í Frakklandi, Króatíu
og Lettlandi. „Mér er svo sem alveg
sama hvar ég lendi. Allt eru þetta
flottir riðlar. Sjálfsagt þurfum við
dómararnir að mæta eitthvað fyrr á
keppnisstaðinn, auk þess sem við
dæmum mögulega á æfingamótum í
ágúst,“ sagði Sigmundur ennfremur
en veit ekki nákvæmlega hvernig
undirbúningi dómara verður háttað.
„Risastórt verkefni“
Skrautfjöður í hatt Sigmundar Más Herbertssonar Fyrsti Íslendingurinn
sem valinn er til að dæma í lokakeppni A-landsliða í körfuknattleik
Ingibjörg Jak-
obsdóttir, bak-
vörður í bikar-
meistaraliði
Grindavíkur í
körfubolta, var
ein þeirra sem
runnu á dúknum
í Laugardalshöll-
inni um síðustu
helgi. Ingibjörg
fór meidd af velli
um tíma í úrslitaleiknum gegn
Keflavík en tókst þó að koma aftur
inn á og ljúka leiknum þar sem
Grindavík fagnaði sigri, 68:61.
Meiðsli Ingibjargar virðast ekki
ætla að draga dilk á eftir sér að
sögn Sverris Þórs Sverrissonar,
þjálfara Grindavíkur. Þegar Morg-
unblaðið ræddi við hann í gær sagði
Sverrir að Ingibjörg hefði ekki æft
með liðinu eftir bikarúrslitaleikinn
vegna lærmeiðslanna en ekki væri
útlit fyrir annað en að hún gæti
spilað næsta leik. kris@mbl.is
Ætti að spila
næsta leik
Ingibjörg
Jakobsdóttir
FÓTBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Þetta er bara hundleiðinlegt. Það er
mikil óvissa í gangi akkúrat núna,“
sagði Matthías Vilhjálmsson, knatt-
spyrnumaður hjá Start í Noregi, við
Morgunblaðið í gærkvöld. For-
ráðamenn Start hafa lýst því yfir að
allir leikmenn félagsins séu til sölu
vegna afar slæmrar fjárhagsstöðu, og
það þýðir að Matthías, Guðmundur
Kristjánsson og Ingvar Jónsson gætu
verið á förum. Fréttirnar komu sem
þruma úr heiðskíru lofti en Matthías
og Guðmundur skrifuðu undir nýja
samninga síðasta haust sem gilda út
árið 2017, og Ingvar kom frá Stjörn-
unni í vetur.
„Eins og stendur þá verð ég áfram
hjá félaginu. Ég var bara að koma
heim úr æfingaferð til Spánar, og gekk
mjög vel þar, en svo ætlar stjórnin að
vinna í þessum málum núna og ég veit
ekkert hvað verður. Það er ekki þægi-
legt fyrir fjölskyldumenn að standa í
þessum sporum,“ sagði Matthías sem
var einmitt í miðjum klíðum við að
koma börnum í háttinn þegar Morg-
unblaðið hafði samband.
Matthías er lykilmaður í liði Start og
raðaði inn mörkum í æfingaferð liðsins
til La Manga á Spáni. Ætla má að
fréttir af fjárhagsstöðu félagsins hafi
haft áhrif á stemninguna í ferðinni.
„Við fengum þessar fréttir tveim-
ur tímum fyrir brottför til Spánar.
Þá vorum við allir kallaðir inn á fund
og sagt frá þessu. Það var því ekkert
verið að gefa okkur sérstaka orku
fyrir ferðina, en það gekk mjög vel
þrátt fyrir það,“ sagði Matthías,
sem byrjar árið af miklum krafti eft-
ir að hafa glímt við meiðsli í fyrra.
Magnús Agnar Magnússon, um-
boðsmaður Matthíasar og Guð-
mundar, segir mikinn áhuga á þeim
báðum hjá félögum í Noregi og Sví-
þjóð. Þau bíði nú færis á meðan mál
Start skýrist.
Óþægilegt í þessum sporum
Íslendingarnir á förum frá Start?
Norsk og sænsk félög fylgjast með
Morgunblaðið/Golli
Óvissa Guðmundur Kristjánsson og Matthías Vilhjálmsson á æfingu með
íslenska landsliðinu. Þeir gætu báðir átt eftir að flytja sig um set brátt.
Þorgerður Anna
Atladóttir spilaði
sinn fyrsta leik í
fimmtán mánuði
í gærkvöldi þeg-
ar lið hennar, HC
Leipzig, vann
þriggja marka
útisigur á Trier,
29:26, í þýsku úr-
valsdeildinni í
handknattleik.
Þetta var jafnframt fyrsti leikur
Þorgerðar með liðinu, en hún gekk
til liðs við félagið í júlí á síðasta ári
frá Flint/Tönsberg í Noregi. Þrálát
meiðsli í öxl hafa hins vegar haldið
henni frá keppni lengi vel og mörg
bakslög hafa komið í það bataferli.
Þorgerður var ekki á meðal
markaskorara í sigrinum í gær-
kvöldi en Leipzig er í þriðja sæti
deildarinnar. yrkill@mbl.is
Fyrsti leikur
Þorgerðar
Þorgerður Anna
Atladóttir
Alfreð Gíslason skoraði 7 mörk
fyrir íslenska landsliðið í handknatt-
leik þegar það sigraði Pólland 29:26 í
úrslitaleik B-heimsmeistarakeppn-
innar í París 26. febrúar 1989.
Alfreð fæddist 1959 og lék með KA
og KR, Essen í Þýskalandi og Bidasoa
á Spáni en lauk ferlinum sem spilandi
þjálfari KA. Alfreð lék 190 landsleiki.
skoraði 542 mörk og lék á ÓL 1984 og
1988. Hann hefur síðan þjálfað Ha-
meln, Magdeburg, Gummersbach og
Kiel í Þýskalandi, auk íslenska lands-
liðsins 2006-2008, og unnið fjölda
Þýskalands- og Evróputitla. Alfreð var
kjörinn íþróttamaður ársins 1989.
ÍÞRÓTTA-
MAÐUR-
DAGSINS