Morgunblaðið - 26.02.2015, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.02.2015, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2015 Valskonur eru í mikilli baráttu um sæti í úr- slitakeppni Dominos-deildarinnar í körfuknattleik og gefa ekkert eftir um þessar mundir. Valur vann öruggan útisigur á KR 60:46 í gærkvöldi og hefur nú unnið sex af síðustu átta leikjum sínum. „Ég reyni aðallega að hugsa um mitt lið og und- irbúa það vel fyrir hvern leik fyrir sig. Ég reyni að velta mér eins lítið og ég get upp úr stöðu annarra liða. Eins og staðan er í dag þá erum við í þeirri stöðu að þurfa ekki að treysta á aðra. Ef við vinnum okkar leiki þá förum við í úrslitakeppnina og við er- um að spila nokkuð vel um þessar mundir,“ sagði Ágúst Björgvinsson, þjálfari Vals, við Morgunblaðið í gærkvöldi en lið hans virðist vera að finna taktinn á heppilegum tímapunkti. „Þannig hefur það verið síðustu árin hjá okkur að við höfum spilað best eftir áramót. Vonandi kláruðum við niðursveifluna fyrir áramót. Við erum í það minnsta að spila betur núna en fyrir áramót og meiri liðsbolta. Til dæmis er liðsvörnin miklu betri hjá okkur núna held- ur en fyrir áramót og sóknarleik- urinn ekki eins einhæfur,“ sagði Ágúst ennfremur en Valur er í 3. sæti með 26 stig. Bikarmeistarar Grindavíkur eru einnig með 26 stig og Haukar 24 en bæði eiga leik til góða. Keflavík minnkaði í gærkvöldi forskot Snæfells niður í tvö stig á toppnum með stórsigri á Breiðabliki 80:58 í Keflavík. Tveimur leikjum var hins vegar frestað vegna veðurs. kris@mbl.is Sex sigrar í átta leikjum hjá Valskonum Ágúst Björgvinsson enda eru frönsku liðin alla jafna frem- ur skynsöm í leik sínum. Sagan er ekki á bandi Arsenal í þessu tilfelli. Stað- reyndin er sú að ekkert lið, sem tapað hefur fyrri viðureign á heimavelli á út- sláttarstigi Evrópukeppni með tveim- ur mörkum, hefur komist í næstu um- ferð síðan Ajax gerði það árið 1969. Misstu alla rökhugsun „Þriðja markið mun gera þetta verkefni mjög erfitt fyrir seinni leik- inn. Það virtist sem við færum á taug- um og misstum alla rökhugsun á vell- inum. Tilfinningar náðu tökum á skynseminni og það má ekki. Andlega vorum við ekki nógu tilbúnir í leikinn og við fengum að gjalda fyrir það,“ sagði Wenger við fjölmiðla að leiknum loknum og útilokar ekki að leikmenn hans hafi gerst sekir um vanmat. „Ég vona að leikmenn mínir hafi ekki komið kærulausir inn í leikinn, en það virðist vera miðað við hvað það vantaði mikinn brodd í okkar leik. Fótbolti er ekki á pappírum, sama hver mótherjinn er þá skiptir frammi- staðan máli. Mónakó sýndi góða frammistöðu í kvöld en við ekki,“ sagði Wenger ennfremur. Til að bæta gráu ofan á svart fyrir stuðningsmenn Arsenal, skoraði göm- ul Tottenham-hetja, Dimitar Berbatov eitt af mörkum Mónakó í leiknum. „Við vitum alveg hvað við getum og í fullri alvöru áttum við þetta skilið. Við nýttum okkar tækifæri og þegar upp er staðið kræktum við í frábæran sig- ur. Þetta er ekki búið, við eigum seinni leikinn í Mónakó eftir og Arsenal er frábært lið en við virtumst vilja sig- urinn meira í kvöld. Við börðumst um allan völl, unnum okkar einvígi og skoruðum mörkin sem skiptu máli. Við vorum í heildina mjög góðir. Lið eins og Arsenal má ekki við því að vanmeta okkur. Ef það var málið í kvöld þá er það þeirra mál,“ sagði Berbatov við fjölmiðalmenn í London. Galopið eftir 1:0 úrslit Þýsku liðin hafa undirstrikað styrk- leika þýsku deildarinnar í Meist- aradeildinni í vetur. Leverkusen hafði sigur á Atletico í gærkvöldi og sú rimma er galopin. Leverkusen vann með minnsta mun en Atletico skoraði ekki á útivelli. Nánast ómögulegt er að spá fyrir um framvinduna í síðari leiknum en Atletico fór alla leið í úr- slitaleik keppninnar síðasta vor. Hak- an Calhanoglu skoraði eina markið á 57. mínútu en Tiago fékk rautt spjald hjá Atletico á 76. mínútu. Ljósmynd/AFP Hressir Leikmenn Mónakó fagna innilega marki Berbatovs á Emirites-leikvanginum í gærkvöldi. „Virtist sem við færum á taugum“  Arsene Wenger sendi sínum mönnum tóninn MEISTARADEILDIN Kristján Jónsson kris@mbl.is Þegar komið er í 16 liða úrslit Meist- aradeildar Evrópu eru einungis öflug lið eftir sem geta unnið hvaða lið sem er. Engu að síður hljóta úrslitin í gær- kvöldi að teljast óvænt. Arsenal tapaði á heimavelli 1:3 fyrir Mónakó og Spán- armeistarar Atletico Madrid töpuðu fyrir Bayer Leverkusen á útivelli 1:0. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, lenti illa í sínu gamla félagi Mónakó í gærkvöldi. Var þetta í fyrsta skipti sem Wenger mætir liði sem hann hefur áður þjálfað. Wenger kom hingað til Íslands sem þjálfari Mónakó haustið 1988 og tapaði þá 1:0 fyrir Val. Enskur kollegi minn tjáði mér að þar væri um fyrsta Evrópuleik Wengers að ræða. Mónakó vann síðari leikinn 2:0 og komst áfram og skoraði George Weah annað markið. Nú er spurning hvort Wenger getur reddað sér í síðari leiknum í Frakk- landi eins og hann gerði árið 1988. Út- litið er skelfilegt fyrir Arsenal eftir að hafa fengið á sig þrjú mörk á heima- velli. Ekki verður auðvelt að fara til Frakklands og raða inn mörkunum Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur ekki í hyggju að greiða knattspyrnuliðum í Evrópu bæt- ur vegna þeirrar röskunar sem verður á mótahaldi í flestum löndum álfunnar þegar heimsmeistara- mótið í knattspyrnu karla fer fram í Katar undir lok ársins 2022. „Við ætlum ekki að greiða bætur vegna þess að HM er flutt til á árinu. Knattspyrnusamböndin hafa sjö ár til þess að skipuleggja mót sín í kring- um heimsmeistaramótið í Katar,“ sagði Jerome Valcke, framkvæmdstjóri FIFA, í gær. „Þessi breyting er ekki gerð til framtíðar heldur í eitt skipti. Við sjáum ekki að það muni hafa alvarleg áhrif á fótboltamót víða um heim,“ sagði Valcke ennfremur. Karl-Heinz Rummenigge, sem er í forsvari fyrir Stál í stál vegna HM LærisveinarAlfreðs Gíslasonar hjá Kiel endurheimtu toppsæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik eftir stórsigur á liði Balingen, 37:18, í gær- kvöldi. Aron Pálmarsson skoraði þrjú marka Kiel í leiknum, en Rune Dahmke var markahæstur með ell- efu mörk. Kiel missti toppsætið til Rhein- Neckar Löwen á markatölu í gær, en liðið hefur nú tveggja stiga for- ystu á toppnum með 42 stig, og bætti markatöluna verulega. Evrópumeistararnir í Flensburg eru sex stigum á eftir Kiel en eiga leik til góða. Fólk sport@mbl.is Meistaradeild Evrópu 16 liða úrslit, fyrri leikir: Leverkusen – Atlético Madrid................1:0 Hakan Calhanoglu 57. – Rautt: Tiago 76. Arsenal – Mónakó.....................................1:3 Alex Oxlade-Chamberlain 90. – Geoffrey Kondogbia 38., Dimitar Berbatov 53., Yan- nick Ferreira-Carrasco 90. England B-deild: Nottingham Forest – Bournemouth .......2:1 Staða efstu liða: Derby 33 19 8 6 66:33 65 Middlesbrough 33 18 9 6 50:22 63 Ipswich 33 17 9 7 54:34 60 Bournemouth 33 17 8 8 67:37 59 Norwich 33 17 8 8 64:37 59 Watford 33 18 5 10 66:40 59 Brentford 33 18 4 11 53:43 58 Wolves 33 15 9 9 46:40 54 Nottingham F. 33 12 11 10 53:48 47 Blackburn 33 11 11 11 43:44 44 Sheffield Wed. 33 10 13 10 28:32 43 Huddersfield 33 11 9 13 44:53 42 Cardiff 33 10 11 12 39:44 41 Leeds 33 11 8 14 34:42 41 Reading 33 11 7 15 36:49 40 Charlton 33 8 15 10 34:43 39 Birmingham 33 9 12 12 38:50 39 Brighton 33 8 13 12 38:42 37 Svíþjóð Bikarkeppnin, undanriðlar: Häcken – Öster .........................................2:0  Gunnar Heiðar Þorvaldsson var í liði Häcken. KNATTSPYRNA 1. deild karla: Mílan – Víkingur....................................16:30 Staðan: Grótta 19 18 1 0 556:407 37 Víkingur 19 17 0 2 558:381 34 Selfoss 18 10 3 5 453:411 23 Fjölnir 18 10 1 7 450:433 21 KR 19 8 3 8 471:472 19 Hamrarnir 19 7 1 11 426:465 15 Mílan 19 3 2 14 429:500 8 Þróttur 19 3 1 15 423:582 7 ÍH 18 2 0 16 406:521 4 Þýskaland Kiel – Balingen .....................................37:18  Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir Kiel. Alfreð Gíslason er þjálfari liðsins. Staðan: Kiel 24 21 0 3 731:579 42 RN Löwen 23 20 0 3 695:559 40 Flensburg 23 17 2 4 676:568 36 Magdeburg 23 17 1 5 683:615 35 Göppingen 23 12 2 9 628:625 26 Melsungen 24 11 3 10 703:677 25 Hamburg 25 11 2 12 686:673 24 Gummersbach 23 11 2 10 631:639 24 Füchse Berlín 23 11 2 10 626:630 24 Wetzlar 23 9 4 10 603:597 22 H-Burgdorf 24 9 4 11 666:673 22 Bergischer 23 10 1 12 616:669 21 Balingen 24 9 2 13 584:644 20 N-Lübbecke 23 7 4 12 641:653 18 Lemgo 24 6 4 14 693:697 16 Friesenheim 23 7 1 15 577:670 15 Erlangen 24 6 3 15 585:661 15 Minden 23 7 0 16 607:668 14 Bietigheim 24 3 1 20 617:751 7 A-deild kvenna: Trier – Leipzig .....................................26:29  Þorgerður Anna Atladóttir lék sinn fyrsta leik fyrir Leipzig en skoraði ekki. Svíþjóð Alingsås – Guif......................................30:23  Atli Ævar Ingólfsson skoraði 6 mörk fyr- ir Guif. Aron Rafn Eðvarðsson ver mark liðsins. Kristján Andrésson þjálfar Guif. Danmörk Skjern – Midtjylland ............................29:19  Vignir Svavarsson skoraði 1 mark fyrir Midtjylland. Austurríki Krems – West Wien ..............................25:38  Erlingur Richardsson er þjálfari West Wien. Frakkland Bikarkeppnin: Créteil – Sélestat ..................................28:18  Snorri Steinn Guðjónsson lék ekki með Sélestat vegna meiðsla. HANDBOLTI KR – Valur 46:60 DHL-höllin, Dominos-deild kvenna, 25. febrúar 2015. Gangur leiksins: 2:4, 2:14, 5:16, 7:20, 7:25, 9:29, 16:36, 19:42, 21:42, 23:44, 28:46, 30:48, 34:51, 39:52, 41:56, 46:60. KR: Simone Jaqueline Holmes 20/6 frá- köst, Björg Guðrún Einarsdóttir 11/7 frá- köst, Bergþóra Holton Tómasdóttir 10/13 fráköst/5 varin skot, Helga Einarsdóttir 3/ 11 fráköst, Sara Mjöll Magnúsdóttir 2. Fráköst: 31 í vörn, 9 í sókn. Valur: Taleya Mayberry 25/10 fráköst, Margrét Ósk Einarsdóttir 7, Ragna Mar- grét Brynjarsdóttir 7/14 fráköst, Ragn- heiður Benónísdóttir 6/7 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 4/7 fráköst, Regína Ösp Guð- mundsdóttir 4/4 fráköst, Kristrún Sigur- jónsdóttir 4/4 fráköst, Sóllilja Bjarnadóttir 3. Fráköst: 37 í vörn, 12 í sókn. Keflavík – Breiðablik 80:58 TM höllin, Dominos-deild kvenna, 25. febr- úar 2015. Gangur leiksins: 0:2, 2:7, 9:11, 15:13, 15:19, 21:23, 32:27, 38:34, 46:36, 52:39, 55:42, 61:47, 63:49, 70:55, 76:55, 80:58. Keflavík: Bryndís Guðmundsdóttir 24/9 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 19/7 frá- köst, Marín Laufey Davíðsdóttir 8/11 frá- köst, Hallveig Jónsdóttir 7, Sandra Lind Þrastardóttir 6/7 fráköst, Ingunn Embla Kristínardóttir 4/7 fráköst, Elfa Falsdóttir 4, Thelma Dís Ágústsdóttir 3, Lovísa Fals- dóttir 3, Bríet Sif Hinriksdóttir 2. Fráköst: 36 í vörn, 13 í sókn. Breiðablik: Berglind Karen Ingvarsdóttir 15/6 fráköst, Arielle Wideman 12/10 frá- köst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 10/11 fráköst, Isabella Ósk Sigurðardóttir 10/5 fráköst, Kristbjörg Pálsdóttir 6, Aníta Rún Árnadóttir 5. Fráköst: 23 í vörn, 12 í sókn. Staðan: Snæfell 21 19 2 1617:1292 38 Keflavík 22 18 4 1852:1392 36 Valur 22 13 9 1637:1538 26 Grindavík 21 13 8 1523:1488 26 Haukar 21 12 9 1442:1381 24 Hamar 21 5 16 1136:1530 10 KR 22 4 18 1311:1556 8 Breiðablik 22 2 20 1334:1675 4 Þýskaland Oldenburg – Mitteldeutscher .............79:72  Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði 13 stig fyrir Mitteldeutscher. NBA-deildin Washington –Golden State...............107:114 Detroit – Cleveland .............................93:102 Oklahoma – Indiana ............................105:92 Dallas – Toronto ....................................99:92 KÖRFUBOLTI HANDKNATTLEIKUR Coca Cola-bikarinn, undanúrslit kvenna: Laugardalshöll: Valur – Haukar..........17.15 Laugardalshöll: ÍBV – Grótta...................20 KÖRFUKNATTLEIKUR Dominos-deild karla: Sauðárkrókur: Tindastóll – Grindavík 19.15 Hertz-Hellirinn: ÍR – Snæfell ..............19.15 Njarðvík: Njarðvík – Haukar...............19.15 DHL-höllin: KR – Skallagrímur..........19.15 1. deild karla: Iða: FSu – Breiðablik............................19.15 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.