Morgunblaðið - 12.03.2015, Blaðsíða 1
spyrnu, við Morgunblaðið eftir ósig-
urinn, 0:2, gegn heimsmeisturum
Japans í Algarve-bikarnum í Portú-
gal í gær.
Hún kom aftur inní lið Íslands fyrir
mótið eftir 17 mánaða barneignarfrí,
kom inná sem varamaður gegn Sviss í
fyrsta leiknum og spilaði síðan fyrri
hálfleik gegn bæði Noregi og Japan,
en var hvíld í leiknum við Bandaríkin.
Varnarleikurinn upp á 9,5
Margrét kvaðst sjá miklar breyt-
ingar á liðinu. „Mér finnst liðið vera
ALGARVE-BIKAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Það er frábært að vera komin aftur í
þennan hóp og fá að taka þátt í þess-
ari mögnuðu þróun sem liðið er í und-
ir stjórn Freys og Ásmundar. Eðli-
lega á ég ennþá mikið inni bæði í
formi og tæknilega séð en það kemur
með hverjum deginum og á bara eftir
að verða betra,“ sagði Margrét Lára
Viðarsdóttir, landsliðsfyrirliði í knatt-
búið að bæta sig mikið á þeim tíma
sem ég var frá. Varnarleikurinn er
upp á 9,5 ef svo má segja frá aftasta
til fremsta manns. Síðan þurfum við
að bæta sóknarleikinn og þá tel ég
okkur verða erfiðar viðureignar fyrir
hvaða þjóð sem er. Breiddin er orðin
meiri sem leiðir af sér meiri sam-
keppni sem er af hinu góða,“ sagði
Margrét.
Förum heim og pússum skóna
Íslenska liðið náði ekki að skora
mark í fjórum leikjum á mótinu en
hún kvaðst vona að það væri ekki eitt-
hvað til að hafa áhyggjur af.
„Nei, ég vona ekki. Við lögðum
mikið upp úr varnarleik á þessu móti
og að spila í ákveðnu skipulagi. Við
þurfum að vinna í sóknarleiknum og
það kemur, ég treysti þjálfarateym-
inu fullkomlega fyrir því. Við fengum
færin á þessu móti en þetta datt ekki
fyrir okkur. Við sóknarmennirnir för-
um nú heim að pússa skóna og verð-
um klárar fyrir undankeppnina í
haust,“ sagði Margrét Lára Viðars-
dóttir.
Liðið hefur bætt sig mikið
Margrét Lára er ánægð með þróun landsliðsins Meiri breidd og samkeppni
Segir að sóknarmennirnir verði klárir í að skora fyrir undankeppni EM
FIMMTUDAGUR 12. MARS 2015
ÍÞRÓTTIR
Egilsstaðir Höttur leikur í úrvalsdeildinni í körfubolta næsta vetur. Sjálfstraustið jókst með hverjum
sigurleiknum. Ætluðu upp í fyrra og búist var við meira basli í vetur. Kynning fyrir sveitarfélagið. 4
Íþróttir
mbl.is
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Frakklandsmeistarar Paris St. Germain
gerðu sér lítið fyrir og slógu Chelsea út
úr 16 liða úrslitum Meistaradeildar
Evrópu í gærkvöldi og það á Stamford
Bridge. Liðin voru jöfn að loknum
tveimur leikjum en PSG kemst áfram á
fleiri mörkum skoruðum á útivelli.
Rimmu liðanna lauk 3:3 eftir fram-
lengdan leik í Lundúnum. 1:1 jafntefli
varð í báðum leikjum liðanna að loknum
90 mínútum og því þurfti að framlengja
síðari leikinn í gærkvöldi. Þar skoruðu
liðin sitt markið hvort. Dramatíkin var
allsráðandi í leiknum og hófst með því
að einni stærstu stjörnu fótboltans,
Zlatan Ibrahimovic, var vikið af velli
fyrir litlar sakir eftir einungis 32 mín-
útna leik. Gary Cahill kom Chelsea yfir
á 81. mínútu en David Luiz, fyrrverandi
leikmaður Chelsea, jafnaði á 86. mín-
útu.
Eden Hazard kom Chelsea í 2:1 með
marki úr vítaspyrnu í framlengingunni
en Frakkarnir höfðu næga orku til að
skora annað mark og fyrirliðinn Thiago
Silva skallaði boltann glæsilega í netið á
116. mínútu. PSG lék með tíu menn
gegn ellefu á Stamford Bridge í liðlega
90 mínútur en skoraði tvisvar og kom-
ast áfram. Verður það að teljast býsna
vel af sér vikið.
Einnig rautt spjald í München
Þýskalandsmeistarar Bayern Münc-
hen völtuðu yfir Shakhtar Donetsk, 7:0,
en fyrri leikur liðanna var markalaus. Á
3. mínútu fengu Bæjarar vítaspyrnu og
Oleksandr Kucher, leikmaður Shakhtar,
fékk rautt spjald. Ógnarsterkt lið Bay-
ern lætur ekki slíkt happ úr hendi
sleppa og eftirleikurinn var auðveldur.
Sex leikmenn skoruðu mörkin sjö en
Thomas Müller skoraði tvívegis. Jé-
rome Boateng, Franck Ribéry, Holger
Badstuber, Robert Lewandowski og
Mario Götze skoruðu einnig.
AFP
Angist Boltinn svífur í mark Chelsea á 116. mínútu eftir skalla fyrirliðans Thiago Silva og örlög Lundúnar-
liðsins í keppninni innsigluð. Angistin leynir sér ekki í svip Thibaut Courtois markvarðar.
Stórtíðindi á Stamford-brúnni
Chelsea úr leik eftir tvö jafntefli Brottrekstur Zlatans kom ekki að sök hjá
PSG Bayern München skoraði sjö sinnum gegn Shakhtar Donetsk Hildur Björg
Kjartansdóttir,
landsliðskona í
körfuknattleik,
var heiðruð fyrir
frammistöðu
sína á fyrsta
tímabili sínu í
bandaríska há-
skólakörfubolt-
anum. Var hún
valin í fimm
manna nýliðalið ársins í riðlinum:
Western Athletic Conference en
Hildur leikur með UTPA Broncos í
Texas. Netmiðillinn Karfan.is
greindi frá. kris@mbl.is
Hildur í hópi
bestu nýliða
í sínum riðli
Hildur Björg
Kjartansdóttir
Landsliðsmað-
urinn Kolbeinn
Sigþórsson fór
ekki með Hol-
landsmeisturum
Ajax til Úkraínu í
gærmorgun en
Ajax mætir í
kvöld Dnipro
Dnipropetrovsk í
fyrri viðureign
liðanna í 16 liða
úrslitum Evrópudeildarinnar.
Kolbeinn er enn að jafna sig af
meiðslum í hné en í viðtali við
Morgunblaðið í síðustu viku sagðist
hann vera byrjaður að æfa og von-
aðist til að geta spilað með vara-
liðinu á næstu dögum. Kolbeinn er í
kapphlaupi við tímann að ná fullri
heilsu fyrir næsta leik Íslendinga í
undankeppni EM en sá leikur verð-
ur í Kasakstan hinn 28. þessa mán-
aðar. gummih@mbl.is
Kolbeinn fór
ekki með í
Evrópuleikinn
Kolbeinn
Sigþórsson
Dóra María Lárusdóttir lék sinn
100. A-landsleik þegar Ísland sigraði
Svíþjóð, 2:1, í leiknum um brons-
verðlaun Algarve-bikarsins í knatt-
spyrnu í Portúgal 12. mars 2014.
Dóra María fæddist 1985. Hún er ein
farsælasta knattspyrnukona landsins
og náði m.a. að verða fyrst íslenskra
kvenna til að leika 100 landsleiki fyrir
þrítugt. Auk þess að leika með Val og
vera margfaldur Íslands- og bikarmeist-
ari lék Dóra María um skeið með Djurg-
ården í Svíþjóð og Vitoria í Brasilíu. Hún
er næstleikjahæsta landsliðskona Ís-
lands með 108 landsleiki og hefur skor-
að í þeim 18 mörk.
ÍÞRÓTTA-
MAÐUR-
DAGSINS