Húnavaka - 01.05.1992, Page 122
120
HUNAVAKA
æviloka, en bjó lengstum á eignarjörð sinni Holtastöðum og varð
bráðkvaddur þar í bæjardyrum“ 1746.
Kona hans var Þuríður Einarsdóttir frá Hraunum í Fljótum.
„Dætur þeirra, Helga og Elín, þóttu efnilegar, en rétt eftir lát föð-
ur þeirra urðu þær geðbilaðar og náðu sér aldrei, ógiftar og barn-
lausar, og gengu Holtastaðir dl framfæris þeim“.
0-0-0
SKAUT GÖNGUSTAF SÍNUM AFTUR Á MILLI FÓTA SÉR
Ámundi hét galdrasnápur nokkur á Kötlustöðum í Vatnsdal. Vissi hann lítið
í kunnáttu sinni en fór illa með til að hrekkja og hræða fólk. Einhvern tíma hitti
hann mann sem var að leita að fé, skaut hann þá göngustaf sínum aftur á milli
fóta sér og narraði manninn til að setja sig á stafinn fyrir aftan sig. Reið hann
svo af stað og fram af Kötlustaðaklettum. Lá þá manninum við öngviti enda hafði
Ámundi gjört þetta til að hræða hann.
Af völdum Ámunda er mælt að smalamaður hafi líka orðið úti í Sauðadalsdrögum,
á veginum fyrir Axlir, milli Vatnsdals og Svínadals. Þykir þar síðan vandratað
í myrkri og kafaldi því draugurinn villir menn.
Um þessar mundir bjó ekkja nokkur á Guðrúnarstöðum. Að henni sótti Ámundi
nú með göldrum sínum, gjörði hann það af illmennsku og rælni því engar sakir
átti hann við ekkjuna. Hafði fólkið á þessum bæ engan frið á sér og sumir segja
að maðurinn sem varð úti á Sauðadalsdrögum væri þaðan. Nágrönnum Ámunda
fór nú að standa stuggur af. Fengu þeir þá Jón frá Hellu að norðan á móti honum.
Jón þessi haföi numið galdur af Sigurði á Urðum er sífellt fékkst við ristingar og
rúnir. Það er sagt um hann að fingur hafi kalið af honum og hélt hann þá keldusvíns-
fjöðrinni með töng og skrifaði svo galdrarúnir og þegar hann dó reið hann um
sveitir á líkkistu sinni.
Aftur segja aðrir að Sigurður þessi og Jón hafi ást glettur við en hvorugur unnið
á öðrum. Jón kom nú vestur að Guðrúnarstöðum að kvöldi dags. Sá hann þá hvar
beljandi graðungur kom og stefndi á hann, en hann hleypti mórauðum rakka undan
hempulafi sínu á graðunginn og snéri hann þá undan. Jón var um kyrrt í þrjá
daga. Sendi hann þá enga sendingu frá sér, en Ámundi sendi honum þrjár og
tók Jón þær allar. Hafði Ámundi þá ekki fleiri til. Seinasta sendingin var fluga,
settist hún á askbarm hjá Jóni þegar hann var að drekka mjólk. Greip Jón hana
og magnaði og sendi svo Ámunda aftur. Um daginn var elduð súpa á Kötlustöðum.
Datt hælrófubiti niður hjá konunni þegar hún ætlaði að láta hann í ask Ámunda.
Bar fluguna að í þessu og skreið hún inn í bitann, greip konan upp bitann og
lét hann í askinn. Ámunda þótti bitinn góður, gætti sín ekki og gein yfir honum,
en í sama bili flaug sendingin upp í hann. Gaus þá blóð út af nösum og munni
Ámunda og var hann þegar dauður. Jón var sæmdur góðum gjöfum af Vatnsdælum
og snéri svo heim aftur.
Þjóðsögurjóns Árnasonar.