Morgunblaðið - 14.05.2015, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015
ÍÞRÓTTIR
Handbolti Laufey Ásta Guðmundsdóttir, fyrirliði Gróttu, tók við stóru bikurunum þremur
á sömu leiktíð og þeim fyrstu í sögu Seltjarnarnesliðsins. Fullkomin leiktíð hjá Gróttu 4
Íþróttir
mbl.is
Landsliðsmað-
urinn Jón Daði
Böðvarsson opn-
aði markareikn-
ing sinn í norsku
úrvalsdeildinni á
þessari leiktíð
þegar hann skor-
aði síðara mark
Viking í 2:0-
útisigri gegn
Haugesund í
norsku úrvaldeildinni í knattspyrnu
í gær. Jón Daði kom inná á 64. mín-
útu og innsiglaði sigur sinna manna
á 84. mínútu en honum hafði ekki
tekist að skora í sjö fyrstu leikj-
unum. Steinþór Freyr Þorsteinsson
lagði upp fyrra mark liðsins og þá
lék fyrirliðinn, Indriði Sigurðsson,
allan leikinn í hjarta varnarinnar.
gummih@mbl.is
Jón Daði
loks á blað
Jón Daði
Böðvarsson
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Bikarmeistarar ÍBV í handknattleik fengu
heldur betur liðstyrkinn í gær þegar línumað-
urinn og landsliðsmaðurinn Kári Kristján
Kristjánsson skrifaði undir fjögurra ára samn-
ing við sitt gamla félag. Fyrir ári virtist Kári á
leið til ÍBV en á síðustu stundu slitnaði upp úr
viðræðunum og í kjölfarið urðu leiðindi á milli
hans og forráðamanna ÍBV. Stór orð voru látin
falla af beggja hálfu og í stað þess að klæðast
Eyjatreyjunni samdi Kári við Valsmenn.
„Það er mikil ánægja hjá okkur að hafa feng-
ið Kára. Hann er Eyjamaður í húð og hár og er
uppalinn hjá ÍBV. Það urðu leiðindi í fyrra en
það eru allir aðilar búnir að sættast og nú horf-
um við fram á veginn. Við Eyjamenn erum
þannig gerðir að við erum fljótir upp en erum
líka fljótir að gleyma,“ sagði Karl Haraldsson,
formaður handknattleiksráðs ÍBV, við Morg-
unblaðið.
Ljóst er að það verða nokkrar breytingar á
liðinu. Agnar Smári Jónsson er genginn í raðir
Mors/Thy, Guðni Ingvarsson mun ekki spila
áfram með liðinu og Andri Heimir Friðriksson
gæti verið á förum. Þá er Arnar Pétursson tek-
inn við þjálfun liðsins af Gunnari Magnússyni.
„Það er auðvitað eftirsjá í Agnari og Guðna
en það er ekki útséð með Andra Heimi. Við er-
um enn í samningaviðræðum við hann. En við
erum stórhuga og við ætlum okkur að fylla vel
í skörðin. Við höfum fundið smjörþefinn af því
að vinna titla og við ætlum okkur að vera
áfram í fremstu röð. Kári er fyrsta skrefið í að
styrkja hópinn fyrir næsta tímabil,“ sagði for-
maðurinn.
Kári Kristján, sem er þrítugur, snýr í sitt
gamla félag 10 árum eftir að hann yfirgaf það
og gekk í raðir Hauka. Hann lék með Haukum
til ársins 2009 og var í atvinnumennsku til árs-
ins í fyrra þar sem hann lék með Amicitia Zü-
rich, Wetzlar og Bjerringbro-Silkeborg.
„Þetta hafði sér ágætis aðdraganda og þessu
sem á undan er gengið hefur nú verið mokað
undir mottu. Við settumst niður og ræddum
saman og þær viðræður enduðu svona glæsi-
lega. Nú ganga allir hreint til verks og eru á
sömu blaðsíðu. Það sem gerðist heyrir nú sög-
unni til og nú er pressa að landa titli á næsta
tímabili,“ sagði Kári við Morgunblaðið.
Fljótir upp, fljótir að gleyma
Eyjamenn lönduðu stórum bita þegar Kári Kristján samdi til fjögurra ára
FÓTBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Möguleiki er á að landsliðsmaðurinn Ólafur Ingi
Skúlason muni yfirgefa belgíska liðið Zulte-
Waregem í sumar þó svo að hann eigi eitt ár eft-
ir af samningi sínum við félagið.
„Ég hef fengið leyfi hjá félaginu til að kíkja í
kringum mig og ég ætla að skoða hvort það sé
einhver áhugi hjá öðrum félögum að fá mig. Ef
Zulte-Waregem vill fá einhvern pening fyrir mig
þá er það núna eða ég fer frítt eftir eitt ár,“
sagði Ólafur Ingi við Morgunblaðið en hann hef-
ur leikið með belgíska liðinu undanfarin fjögur
keppnistímabil. Tímabilinu hjá Ólafi og félögum
lauk um síðustu helgi en það var í aukakeppni
um að komast í úrslitaleik um sæti í Evr-
ópudeildinni. Zulte-Waregem lenti í 3. sæti síns
riðils og komst þar með ekki áfram en Ólafur
skoraði í tapleik á móti Genk sem gæti hafa ver-
ið hans síðasti leikur með liðinu.
Rétti tímapunkturinn
„Ég er svo sem alveg rólegur yfir þessu
ennþá. Ég er með fast land undir fótum þar sem
ég á eitt ár eftir af samningi mínum en mér
finnst að það sé nú rétti tímapunkturinn að fara
eitthvað annað. Ég veit að það er áhugi hjá öðr-
um liðum í Belgíu og víðar en það er ekkert
komið á neitt stig og þetta er allt opið. Það getur
vel verið að ég verði bara hér áfram og klári
þetta síðasta ár eða þá að ég hasli mér völl á
nýjum vettvangi. Tímabilinu hérna er rétt að
ljúka og það fer ekkert að gerast í þessum mál-
um alveg strax. Ég og Magnús Agnar umboðs-
maður minn erum því að skoða mín mál í róleg-
heitum en ég tel mig þurfa að fá nýja áskorun,“
sagði Ólafur Ingi sem segir að ekki komi til
greina að gera nýjan samning við Zulte-
Waregem.
Hálfgert skítatímabil í ár
„Það er alveg klárt að ég verð í mesta lagi eitt
ár til viðbótar hjá liðinu. Ég er búinn að eiga
góðan tíma hjá félaginu þessi fjögur ár. Okkur
gekk brösulega eftir áramótin og botninn datt
svolítið úr þessu hjá okkur þegar ljóst var að við
héldum sæti okkar í deildinni. Þetta endaði sem
hálfgert skítatímabil hjá okkur en síðustu tvö ár-
in voru frábær þar sem við komumst meðal ann-
ars í úrslit í bikarnum og spiluðum í Evr-
ópukeppni,“ sagði Ólafur Ingi.
Ólafur er 32 ára gamall uppalinn Fylkismaður
sem hóf sinn atvinnumannaferil hjá Arsenal þar
sem hann spilaði með unglinga- og varaliði fé-
lagsins á árunum 2001-05 en var í millitíðinni
lánaður til Fylkis. Hann var síðan á mála hjá
Brentford, Helsingborg, SönderjyskE og samdi
svo við Zulte-Waregem árið 2011.
Tel mig þurfa nýja áskorun
Ólafur Ingi Skúlason hefur fengið leyfi hjá Zulte-Waregem til að kíkja í kring-
um sig eftir nýju liði Á þó eitt ár eftir og gæti spilað áfram með belgíska liðinu
Morgunblaðið/Eggert
Belgía Ólafur Ingi Skúlason hefur spilað með Zulte-Waregem frá 2011 en nú leitar hugurinn annað.
Héðinn Gilsson skoraði fjögur
mörk þegar Ísland gerði jafntefli,
26:26, við Austur-Þýskaland í vin-
áttulandsleik karla í handknattleik í
Berlín 14. maí 1989.
Héðinn fæddist 1968 og lék lengst
af með FH, þar sem hann varð Íslands-
meistari 1990, en einnig með þýsku
liðunum Düsseldorf, Fredenbeck og
Dormagen og lauk ferlinum með Fram
2002 til 2004. Hann var í íslenska
landsliðinu sem vann B-keppnina í
Frakklandi 1989 og varð í 4. sæti á ÓL í
Barcelona 1992. Héðinn lék 138 lands-
leiki og skoraði í þeim 300 mörk.
ÍÞRÓTTA-
MAÐUR-
DAGSINS
Geir Sveinsson
og lærisveinar
hans í þýska
handknattleiks-
liðinu Magde-
burg tryggðu sér
í kvöld farseð-
ilinn í Evrópu-
keppnina á
næstu leiktíð
með því að vinna
Balingen, 32:25,
á útivelli í þýsku deildinni í gær.
Þegar fjórar umferðir eru eftir
er Magdeburg í fjórða sæti deild-
arinnar með 48 stig, 10 stigum á
undan Melsungen sem er í fimmta
sæti deildarinnar.
Geir og strákarnir hans létu von-
brigði síðustu helgar ekki slá sig út
af laginu en Magdeburg tapaði bik-
arúrslitaleiknum á móti Flensburg
þar sem úrslitin réðust í vítakeppni.
Robert Weber, sá eini sem tókst
ekki að skora í vítakeppninni, var
markahæstur leikmanna Magde-
burg í gær með átta mörk.
gummih@mbl.is
Geir í Evrópu-
keppnina
Geir
Sveinsson