Morgunblaðið - 14.05.2015, Qupperneq 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 þriðjudaginn 26.maí.
GARÐAR OG GRILL
Blaðið verður með góðum upplýsingum um garðinn,
pallinn, heita potta, sumarblómin, sumarhúsgögn
og grill ásamt girnilegum uppskriftum.
SÉRBLAÐ
Morgunblaðið
gefur út
glæsilegt
sérblað um
garða og grill
föstudaginn
29. maí
HANDBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Þetta var alltaf svo fjarlægt
manni. Ég er eiginlega ekki búin að
átta mig á þessu ennþá, og því að
þetta hafi í raun alltaf verið mark-
miðið þó að maður hafi ekki þorað
að skrifa það niður,“ sagði Laufey
Ásta Guðmundsdóttir, fyrirliði nýk-
rýndra Íslandsmeistara Gróttu í
handbolta, við Morgunblaðið í gær.
Laufey varð fyrsti fyrirliðinn í sögu
Gróttu til að hefja Íslandsmeist-
arabikarinn á loft, en hún er orðin
vön þess háttar „ísbroti“ eftir deild-
ar- og bikarmeistaratitil í vetur.
Leiktíðin var sem sagt svo til full-
komin fyrir Gróttukonur:
„Maður fattar eiginlega ekki
hvað maður er búinn að afreka.
Þetta var kannski aftast í höfðinu á
manni en ég þorði ekki að vona
neitt. Maður tók þetta bara skref
fyrir skref allt tímabilið, og ég held
líka að það sé gott að vera ekki of
öruggur með sig heldur vita að allt
getur gerst,“ sagði Laufey, nývökn-
uð af værum svefni eftir sigurhátíð-
ina. En hverja telur hún helstu
ástæðuna fyrir afrekum vetrarins?
„Það er sennilega það að við er-
um allar frábærar vinkonur. Við
þekkjumst allar vel, flestar upp-
aldar í Gróttu, og það skiptir rosa-
lega miklu máli að þekkjast bæði
innan og utan vallar. Við erum með
liðsheild og „dýnamík“ sem er al-
veg extra góð,“ sagði Laufey.
Þær vissu að við gætum þetta
Fyrir tímabilið endurheimti
Grótta landsliðskonurnar Önnu Úr-
súlu Guðmundsdóttur og Karólínu
Bæhrenz Lárudóttur úr þáverandi
meistaraliði Vals. Sigurhefðin sem
þær bjuggu yfir smitaði út frá sér:
„Það er mikilvægt að því leyti að
þær vissu alveg að þetta gæti
gerst. Þetta er svo rosalega fjar-
lægt manni þegar maður hefur
aldrei upplifað þetta, en þær vissu
að við gætum þetta. Þær drógu
mann með sér með sína reynslu,“
sagði Laufey.
„Anna Úrsúla er mjög góð í að
rífa fólk með sér. Hún segir akk-
úrat réttu orðin til að maður kom-
ist í einhvern svona eldmóð. Það
finnst mér skipta miklu máli,“ bæt-
ir hún við. Hin 15 ára gamla Lovísa
Thompson var hins vegar senuþjóf-
urinn í lokaleik úrslitakeppninnar,
skoraði sigurmarkið í blálokin gegn
Stjörnunni:
„Lovísa er náttúrlega ótrúlegt
undrabarn. Ég hefði ekki getað
skrifað handritið betur, að hún
skuli klára þetta svona fyrir okk-
ur,“ sagði Laufey. Hún leggur ríka
áherslu á að allt Gróttuliðið hafi
lagt þung lóð á vogarskálarnar við
að gera liðið að þreföldum meist-
ara. Sjálf var hún næstmarkahæst
liðsins í deildinni í vetur, tveimur
mörkum á eftir Karólínu, og átti
frábæra leiktíð, sína bestu á ferl-
inum. Þær meiddust báðar í úr-
slitakeppninni en píndu sig til að
geta lagt sitt af mörkum í loka-
leiknum, Laufey meidd í kálfa og
Karólína tognuð í læri.
Margt fólk á bak við þetta
„Ég er svolítið stíf í kálfanum en
að öðru leyti góð. Hinar stelpurnar
spiluðu hins vegar sumar 60 mín-
útur í öllum leikjum. Það er nátt-
úrlega rosalegt álag sem fylgir
því,“ sagði Laufey. Hún er eins og
flestir leikmanna liðsins uppalin hjá
Gróttu en lék um skamma hríð með
Fylki og hjá Molde í Noregi, 2009-
2011.
„Þá var Grótta bara í einhverjum
uppbyggingarpælingum. Liðið tók
eitt tímabil í 1. deild og svona, en
þessi uppgangur hefur svo átt sér
stað jafnt og þétt. Þetta tekur gríð-
arlega orku og tíma en það skilar
sér að lokum. Það er margt fólk á
bak við þetta, fólk á bak við tjöldin
sem setur markið hátt, enda gerist
svona ekkert af sjálfu sér,“ sagði
Laufey, sem ætlar sér að halda
áfram með Gróttu og verja titlana
á næstu leiktíð:
„Við munum halda áfram að vera
á meðal efstu liða í deildinni, í
toppbaráttunni. Vonandi náum við
að halda í sem flestar stelpurnar í
sumar og jafnvel bæta við.“
„Var alltaf svo fjarlægt“
Laufey Ásta tók við stóru bikurunum þremur á sömu leiktíð, þeim fyrstu í
sögu Gróttu Lovísa ótrúlegt undrabarn Anna Úrsúla rífur alla með sér
Morgunblaðið/Eggert
Fyrirliði Laufey Ásta Guðmundsdóttir er orðin Íslandsmeistari með uppeldisfélagi sínu eins og svo margar aðrar í
Gróttuliðinu og hún segir að stefnan sé sett á að vinna fleiri titla á næstu árum.
Grótta
» Grótta stofnaði meistara-
flokk kvenna árið 1987 en hann
lagðist af 1993. Sameinað lið
Gróttu og KR mætti til leiks
1997 undir stjórn Ágústs Jó-
hannssonar.
» Samstarfinu við KR var slitið
fyrir tímabilið 2005-06. Grótta
náði 6. sæti það tímabil, undir
stjórn Kára Garðarssonar sem
nú þjálfar liðið.
» Grótta féll niður um deild ár-
ið 2009 en vann sig strax upp
aftur. Liðið lenti í 9. sæti efstu
deildar 2011, 6. sæti 2012, 7.
sæti 2013, 5. sæti 2014 og 1.
sæti 2015.
Ég gleðst yfir því þegar ný
nöfn eru skráð á Íslandsmeist-
aratitla hvort sem það er í ein-
staklings- eða flokkaíþrótt. Í
fyrra varð Stjarnan Íslandsmeist-
ari karla í fótbolta í fyrsta sinn
og í fyrrakvöld var brotið blað í
handboltasögunni þegar Grótta
frá Seltjarnarnesi hampaði Ís-
landsmeistaratitlinum í hand-
bolta kvenna.
Það er vel við hæfi að óska
Gróttu innilega til hamingju með
frábæran árangur á leiktíðinni en
liðið vann alla þrjá stóru titlana,
deildarkeppnina, bikarkeppnina
og Íslandsmótið. Það eru spenn-
andi tímar á Nesinu en karlalið
Gróttu tryggði sér sæti í efstu
deild og það má reikna með
glæsilegri uppskeruhátíð Grótt-
unnar þetta árið.
Ég fylgdist með leik Breiða-
bliks og KR í Pepsi-deild karla á
mánudaginn. Ég varð vitni að
fjörugum og nokkuð skemmti-
legum leik þar sem leikmenn
beggja liða buðu upp á ágæt til-
þrif sem lofa góðu fyrir sumar.
En augu mín beindust ekki
ósjaldan að varamannabekk KR-
inga meðan á leik stóð. Danski
markvarðarþjálfarinn Henryk
Boedker, sem kom til KR-inga frá
Íslandsmeisturum Stjörnunnar í
vetur, sá til þess að beina sjón-
um mínum að varamannabekkn-
um og boðvangi KR-inga.
Daninn skemmtilegi, sem
hefur verið duglegur að koma
með gæðaleikmenn frá heima-
landi sínu í íslenska fótboltann,
var á köflum hálf-trylltur, en
hvað eftir annað stökk hann út
úr varamannaskýlinu og lét leik-
menn KR heyra það og ekki síst
beindi hann orðum sínum til
landa sinna þriggja sem leika
með KR-liðinu. Það var engu lík-
ara en að Boedker væri þjálfari
liðsins og þeir Bjarni Guðjónsson
og Guðmundur Benediktsson að-
stoðarmenn hans.
BAKVÖRÐUR
Guðmundur
Hilmarsson
gummih@mbl.is
anlega á hægri
kantinum og
Björn Bergmann
í framlínunni hjá
FCK í dag.
Eggert er
óhemju mikil-
vægur
Eggert er hins-
vegar í stóru hlut-
verki hjá liði
Vestsjælland eftir að hann kom
þangað um áramótin. „Já, Eggert er
óhemju mikilvægur fyrir þeirra lið
og er kominn í virkilega gott form.
Hann var í banni þegar við unnum þá
1:0 síðasta mánudag í deildinni og
það styrkir þá mikið að fá hann aftur
inn,“ sagði Rúrik. Í röðum Vestsjæll-
and er einnig Frederik Schram,
markvörður úr 21-árs landsliði Ís-
lands, en hann hefur verið varamark-
vörður liðsins.
Allt bendir til þess að FCK fái silf-
urverðlaun í dönsku úrvalsdeildinni
annað árið í röð og í fyrra tapaði liðið
bikarúrslitaleiknum. Rúrik sagði að
hjá félaginu væri ekkert annað en
efsta sæti ásættanlegt.
„Við spilum alltaf undir þeirri
pressu að félagið og stuðningsmenn
okkar gera kröfur um efsta sætið, í
deild og bikar. Þannig er þetta bara
hjá FCK. Það er ekki lengur í okkar
höndum að vinna deildina og fyrir
vikið er mætingin ekki alveg eins góð
á heimaleikina okkar og áður. En úr-
slitaleikurinn er á okkar heimavelli,
Parken, og það kemur okkur vonandi
til góða. Það er geysilega gaman að
spila á Parken þegar stemningin er
góð og ég trúi ekki öðru en okkar fólk
mæti vel á þennan úrslitaleik þegar
titill er í húfi.
Ég hlakka mikið til að spila leik-
inn, ég er kominn í virkilega gott
form eftir að hafa orðið fyrir smá-
vægilegum meiðslum í kjölfarið á
landsleikjunum í vor,“ sagði Rúrik
Gíslason sem hefur unnið einn meist-
aratitil og þrisvar fengið silfur í deild
og bikar eftir komu sína til félagsins
árið 2012.
Silfur ekki ásættanlegt
Rúrik, Björn og Eggert í danska bikarúrslitaleiknum í dag
Rúrik
Gíslason
BIKARÚRSLIT
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Rúrik Gíslason, Björn Bergmann
Sigurðarson og Eggert Gunnþór
Jónsson verða allir í sviðsljósinu á
þjóðarleikvangi Dana, Parken, í dag
þegar FC Köbenhavn og Vest-
sjælland mætast þar í úrslitaleik
dönsku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu.
Þeir verða örugglega allir í byrj-
unarliðum félaganna sem hafa átt
ólíku gengi að fagna. FC Köbenhavn
er í öðru sæti úrvalsdeildarinnar en
FC Vestsjælland er næstneðst og sex
stigum frá því að komast úr fallsæti.
„Við erum vissulega taldir líklegra
liðið á pappírunum, og gerum allt
sem í okkar valdi stendur til að færa
félaginu bikarinn, en fyrir leikmenn
Vestsjælland er þetta leikur lífsins.
Við verðum að mæta til leiks með
sama hugarfari,“ sagði Rúrik við
Morgunblaðið en hann verður vænt-