Morgunblaðið - 08.05.2015, Side 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ
B
ílarnir frá Toyota hafa
lengi fallið í kramið hjá Ís-
lendingum. Í ár fagnar
Toyota 50 árum á Íslandi
og eins að bílaumboðið
heldur upp á þann árangur að hafa í
25 ár í röð verið með söluhæsta bílinn
hér á landi.
Bjartur Máni Sigurðsson er mark-
aðsstjóri Toyota í Kauptúni og segir
hann að í tilefni af þessum tímamót-
um verði meðal annars boðið upp á
ríkulega búnar afmælisútgáfur af
vinsælum bifreiðum og rausnarleg
tilboð í boði út árið. Nú þegar hafa
verið haldnar tvær afmælissýningar
og á stóru bílasýningunni í Fífunni
verður öllu tjaldað til.
„Viðtökurnar hafa verið mjög góð-
ar og meðal annars hafa gestir fengið
að prufa skemmtilegan aksturshermi
og fengið að sjá ekta hybrid-
kappakstursbíl. Til þessa hafa rúm-
lega sjö þúsund manns haldið upp á
afmælið með okkur hér í Kauptúni.“
Bjartur segir að afsláttartilboðin
birtist m.a. í 25% afslætti á völdum
vörum í hverjum mánuði, og end-
urspeglar afsláttartalan þann ára-
fjölda sem söluhæsti bíllinn hefur
komið frá Toyota. Um þessar mundir
eru það dráttarbeisli og farang-
ursbox sem fást með þessum ríflega
afslætti.
„Í tilefni afmælisins seljum við
Toyota Land Cruiser í sérstakri af-
mælisútgáfu með 33" dekkjum og
breytingapakka að verðmæti 750.000
kr. Í breytingapakkanum felast m.a.
dráttarbeisli, húddhlíf og króm-
skreytingar sem gera bílinn mjög
vígalegan. Allt fylgir þetta með í
kaupunum án þess að hækka verð
bílsins,“ útskýrir Bjartur. „Einnig
erum við með afmælisútgáfu af Yar-
is, sem við köllum Yaris Trend. Kem-
ur bíllinn með svokölluðum trend-
pakka sem inniheldur m.a. álfelgur,
filmur í rúður, heilsársdekk og króm-
lista að aftan og á hliðum.“
Nýr bíll á þægilegum kjörum
Afmælisbílarnir verða til sýnis í Fíf-
unni um helgina og að auki verða
sýndir allir helstu bílarnir í Toyota-
vörulínunni svo sem Hilux, RAV4,
Avensis, Corolla, Auris og Aygo. „Við
kynnum gestum og gangandi líka
nýja leið til að eignast Toyota-bíl sem
kallast Toyota FLEX,“ segir Bjart-
ur.
„Viðskiptavinurinn greiðir
ákveðna lágmarksupphæð inn á
Toyota FLEX-samninginn og borgar
í framhaldinu fastar mánaðarlegar
greiðslur í tvö eða þrjú ár. Að því
tímabili loknu getur hann valið að
eiga bílinn áfram, skila honum eða
endurnýja samninginn með nýjum
bíl. Viðskiptavinurinn stýrir ferðinni
og þetta er sniðug leið til að aka nýj-
um Toyota-bíl á tveggja eða þriggja
ára fresti.“
Hitti í mark hjá landanum
Það er vert að staldra við og reyna að
svara þeirri spurningu hvernig jap-
anskur bílaframleiðandi náði að hitta
svona rækilega í mark hjá lítilli þjóð
nyrst í Atlantshafinu. Bjartur skrifar
árangur Toyota hérlendis ekki síst á
vandaða þjónustu sem viðskiptavin-
irnir hafa lært að hægt er að treysta.
„Alla daga kappkostum við að mæta
ýtrustu þörfum viðskiptavinanna og
leitum nýrra leiða til að gera enn bet-
ur í bæði þjónustu og vöruúrvali.“
Einnig virðist Toyota hafa tekist
að smíða bíla sem falla vel að íslensk-
um aðstæðum og á verði sem hentar.
Þannig er t.d. Land Cruiserinn í há-
vegum hafður í samfélagi jeppadellu-
fólks. „Við höfum ýtt undir þennan
áhuga með reglulegum viðburðum
fyrir jeppasamfélagið. Íslendingar
eru mikið jeppafólk og hafa ræktað
ákveðinn kúltúr í kringum það að
skoða landið á öflugum bílum sem
ráða við erfiða færð, en eru um leið
þannig úr garði gerðir að mjög vel
fer um ökumann og farþega, eins og
upplifun okkar á Land Cruiser hefur
verið.“
Hybrid hefur sannað sig
Í seinni tíð hefur Toyota líka skipað
sér í fremstu röð hvað snýr að
hybrid-bílum. Fyrirtækið reið á vað-
ið með Prius en í dag má fá Toyota
með hybrid-kerfi í flestum stærð-
arflokkum og von á hybrid-RAV4 á
næsta ári.
Bjartur segir hybrid-tæknina hafa
reynst mjög vel. Bilanatíðni sé lág og
bíleigendur meðvitaðir um eldsneyt-
issparnaðinn. „Tæknin í bílnum vinn-
ur stöðugt að því að minnka elds-
neytiseyðsluna, óháð aksturslagi
ökumannsins, en ef fólk vill getur það
líka valið að vinna með tækninni og
gera bílinn enn sparneytnari með því
að aka á réttan hátt.“
ai@mbl.is
Halda upp á 50 ár á íslenska markaðinum
Toyota býður upp á veg-
legar afmælisútgáfur af
Land Cruiser og Yaris í
tilefni af tímamótunum.
Kynnir Toyota FLEX,
nýja leið til að eignast
nýjan bíl og vel heppn-
aðan NX-jeppling frá
Lexus sem þykir bylting-
arkenndur í útliti.
Morgunblaðið/Eggert
Brautryðjandi Toyota hefur leitt iðnaðinn í þróun bíla með svk. hybrid-tækni.
Þjóðarbíllinn? Toyota Land Cruiser þykir henta íslensku jeppafólki sérlega vel. Lipur Yarisinn á sér dyggan hóp aðdáenda enda hagkvæmur borgarbíll.
Morgunblaðið/Eggert
Metnaður „Alla daga kappkostum við að mæta ýtrustu þörfum viðskiptavinanna,“ segir Bjartur Máni.
Unnendur hraðskreiðra sportbíla hljóta að gleðjast yfir þeim fréttum að Toyota hyggst leggja aukna
áherslu á sportbílahliðina á næstu árum. „Toyota hefur um nokkurt skeið lagt sig fram um að hanna og
smíða bíla sem höfða jafnt til allra en látið mæta afgangi að bregða á leik með rennilegum ofur-
sportbílum. Vissulega eru þó til í úrvalinu hjá þeim mjög sportlegir og hraðskreiðir bílar eins og GT 86 en
hugmyndabílarnir sem kynntir hafa verið að undanförnu, eins og FT-1 og PM gefa til kynna að gengið
verði enn lengra á þessu sviði,“ segir Bjartur og bætir við að þeir sem hafa ástríðu fyrir mótorsporti og
geggjuðum bílum ættu að fylgjast vel með Toyota næstu misserin.
Er von á geggjuðum sportbíl?
Áhugaverðir hlutir hafa verið að gerast hjá lúxusmerkinu Lexus. Smám saman hafa bílarnir fengið á sig
sportlegra útlit og ófá spennandi ökutæki sem rúlla út af færibandinu. „Á sýningu helgarinnar verðum
við m.a. með NX200T F-sport-jepplinginn sem er ákaflega glæsilegur bíll með kröftuga vél. Er bíllinn ekki
síst byltingarkenndur hvað hönnunina varðar, en hann býr líka að frábærum aksturseiginleikum,“ segir
Bjartur.
Jepplingur sem eftir er tekið