Morgunblaðið - 08.05.2015, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.05.2015, Blaðsíða 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ H ljóðið er gott í þeim Ás- grími Helga Einarssyni og Þorgeiri R. Pálssyni hjá Öskju. Þorgeir er sölustjóri Kia en Ás- grímur sölustjóri Mercedes-Benz. Að sögn Ásgríms eru það minni bílarnir í Mercedes-Benz-línunni sem hafa selst best en með batn- andi tíð eru viðskiptavinir farnir að færa sig upp í stærðar- og verð- flokkum. Það hafi líka hjálpað til að Mercedes-Benz framleiðir mjög breitt framboð af bílum og hægt að eignast þýskan gæðafák á mjög hagstæðu verði. „Einnig hefur mikill áhugi verið á nýjum módelum eins og GLA- jepplingnum. Þar er á ferð snið- ugur bíll fyrir íslenskar aðstæður sem hægt er að fá með allt að 19 cm upp í lægsta punkt, mjög góður borgarjeppi og umfram allt virki- lega fallegur bíll. Ganga sumir svo langt að kalla GLA villidýr á hjól- um af því hann hefur góða torfæru- eiginleika til viðbótar við sporteig- inleikana.“ Ásgrímur nefnir B-Class sem vinsælan fjölskyldubíl, rúmgóðan og hentugan fyrir þau heimili þar sem börn eru komin í spilið. „Í grunn-útgáfu kostar B-Class 5.890 þús, mjög vel útbúinn og með fjöldamörgum möguleikum til að breyta og bæta við. Að fjárfesta í Mercedes-Benz á þessu verði er mjög góður kostur.“ Klassískir litir ofan á Gaman er að skjóta því inn að þeir sem velja Mercedes-Benz virðast vera íhaldssamir í litavali. Þessir þýsku eðalvagnar virðast eins og gerðir fyrir hefðbundna og sígilda bílaliti og segir Ásgrímur að lang- vinsælustu litirnir séu hvítur, svartur og grár. „Í minni bílunum gerist það stöku sinnum að fólk bið- ur um sterka liti á borð við rauðan, og svo er alltaf einn og einn sem biður um alveg sérstakan lit. Þann- ig var einn að panta bíl á dögunum í skemmtilegum „emerald green“ lit. Í þeim tilvikum er fólk búið að liggja vandlega yfir litaprufum og skoða litavalið alveg ofan í öreindir áður en ákvörðun er tekin,“ bætir hann við. Af spennandi nýjungum hjá Mercedes-Benz nefnir Ásgrímur væntanlegar plug-in hybrid- útgáfur af stærri bílunum. S-Class með hybrid-vél er nú kominn til landsins og verður frumsýndur í Fífunni. Það verður áhugavert að sjá bæði hvað bíllinn á eftir að kosta út úr búð og hvernig við- skiptavinir Benz bregðast við þegar þeim stendur til boða umhverf- isvænni og sparneytnari drossía. „Þetta er bíll sem á eftir að bera lægri vörugjöld sem þýðir að verðið á S-Class hybrid verður töluvert lægra en á venjulegum S-Class sem ber 50% vörugjöld. Útkoman gæti verið að bíllinn kosti í kringum 20 milljónir frekar en að kosta rúmar 30.“ Hver veit nema þarna verði t.d. kominn hinn fullkomni ráðherrabíll. „Hægt er að fara á rafhleðslunni einni saman í innanbæjarferðum en svo ef skjótast þarf millilandshluta að heimsækja kjördæmin þá tekur bensínvélin við með hefðbundið drægi og mikið afl.“ Kia komið á toppinn Þorgeir sölustjóri Kia hefur ástæðu til að vera brattur. Markaðs- hlutdeild Kia hefur vaxið hratt að undanförnu. Hlutdeildin var 8,6% á síðasta ári en er nú 11,6% það sem af er ári. Er Kia þar með orðið ann- að stærsta merkið á íslenskum bíla- markaði. „Söluhæsti bíllinn und- anfarin ár er Kia Rio-smábíllinn en svo hefur Cee‘d-inn komið fast á hæla honum. Einnig hafa jepparnir gengið mjög vel í sölu, hvort sem umer að ræða Kia Sportage eða So- rento. Að auki hafa verið að koma spennandi bílar inn eins og KIA Soul sem fæst bæði sem rafmagns- og dísilbíll.“ Lengsti ábyrgðartíminn Að sögn Þorgeirs hjálpar það til að auka söluna að Kia-bílarnir hafa reynst mjög sparneytnir og flytur Askja einkum inn bíla með dísil- vélar. Þó að heimsmarkaðsverð á olíu hafi farið lækkandi skiptir það íslenska neytendur enn mjög miklu máli að velja bíl sem eyðir sem minnstu á hundraðið enda hefur eldsneytisnýtingin mikið að segja um rekstrarkostnaðinn yfir allan endingartíma bílsins. „Þá koma bílarnir með sjö ára ábyrgð sem er lengasta ábyrgð sem nokkur bílaframleðiandi veitir hér- lendis. Þetta getur Kia boðið þökk sé miklum fjárfestingum í vönd- uðum framleiðsluferlum sem eru að skila mjög áreiðanlegum bílum með litla bilanatíðni.“ Loks þykir hönnun bílanna vera vel heppnuð og hafa Kia-bílarnir á sér sportlegan evrópskan blæ. Nú síðast hlaut Sorrento Red Dot hönnunarverðlaunin eftirsóttu. Segir Þorgeir að eftir að hinn virti þýski bílahönnuður Peter Schreyer tók til starfa hjá Kia árið 2006 hafi hönnun bílanna tekið nýja stefnu sem hafi reynst mjög farsæl. Á Schreyer t.d. heiðurinn að lög- uninni á grilinu sem hann kallar „tígrisnef“ eða „tiger nose“. „Þegar saman fara sparneytni, lengsta fá- anlega ábyrgð og falleg hönnun þá er viðbúið að salan gangi vel eins og raunin hefur verið,“ bætir Þor- geir við. ai@mbl.is Þýskur lúxus og suður- kóreskur áreiðanleiki Kia hefur verið sölhæsta merkið á íslenska bíla- markaðinum það sem af er árinu. Askja kynnir hybrid S-Class um helgina en bíllinn ber mun lægri vörugjöld en hefðbundinn S-Class. Morgunblaðið/Kristinn Úrval Í sýningarsalnum kennir ýmissa grasa. Margir sækja í sjö ára ábyrgð á Kia-bílunum og þeim þykir sparneytnar vélarnar heldur ekki skemma fyrir. Karakter Sumir leyfa sér að velja ögrandi liti, eftir mjög vandaða rannsóknarvinnu. Nebbi „Tígrisnefið“ setur auðþekkjanlegan svip á framhluta bílalínunnar frá Kia. Uppgangur Ásgrímur og Þorgeir. Mercedes-Benz og Kia standa vel að vígi hér á landi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.