Morgunblaðið - 08.05.2015, Page 8

Morgunblaðið - 08.05.2015, Page 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ V ið munum kynna okkar besta á sýningunni og er- um búnir að fá fjóra glæsi- lega sýningargripi til lands af því tilefni,“ segir Björn Ragnarsson, framkvæmdastjóri bíla- sviðs hjá Bílabúð Benna. Eins og al- kunna er hefur Bílabúðin nokkra bílaframleiðendur á sínum vegum og verður margt nýtt og spennandi kynnt frá hverjum þeirra. Dakar-jeppi frá Opel á staðnum „Meðal þess sem við sýnum frá Opel er blæjubíllinn glæsilegi, Opel Cas- cada, ásamt þrælöflugum 280 hest- afla Opel Astra OPC [sem stendur fyrir Opel Performance Center]. Einnig erum við með sérlega áhuga- vert eintak af jeppanum Opel Mokka, í Dakar-útfærslu sem styrktur er af Toyo dekkjaframleiðandanum sem Bílabúð Benna er umboðsaðili fyrir. Eins og nafnið gefur til kynna er um að ræða tryllitæki sem er sérútbúið til þátttöku í þessum erfiðasta ral- lýakstri veraldar og með bílnum kem- ur sjálfur ökuþórinn, Balasz Szalay frá Búdapest, sem á að baki kringum 20 þátttökur í Dakar-rallinu og það sem meira er, hefur best náð 19. sæt- inu,“ bætir Björn við. Það er að sönnu aðdáunarverður árangur þegar haft er í huga að Szalay er sjálfstæður keppandi og yfirleitt eru það lið bíla- framleiðanda sem raða sér þétt í efstu 20 sætin. Tækifærið til að virða þennan keppnisbíl fyrir sér er því af- ar fágætt hér á landi.“ 911 Targa er kominn á klakann Eflaust bíða margir spenntir eftir því að heyra hvað Bílabúð Benna ætlar að sýna úr Porsche-deildinni og óhætt að fullyrða að enginn bíla- áhugamaður ætti að verða svikinn af því sem þar verður stillt upp. „Við er- um til dæmis búnir að fá eitt eintak af nýjum Porsche 911 Targa til landsins sem við hlökkum til að sýna gestum á sýningarbás okkar.“ 911 Targa er víðfrægur sportbíll, kynntur fyrst til sögunnar 1965. Eitt helsta einkenni bílsins var hinn stál- litaði veltigrindarbogi sem setur svo sterkan svip á þessa gerð 911. „Í gegnum árin hefur týpan tekið ákveðnum breytingum, meðal annars var hann með glerþaki um hríð, en með þessari gerð er horfið aftur til upprunans og boginn aftur orðinn stállitaður, óháð því hvernig bíllinn sjálfur er á litinn. Þá er tæknin sem fellir niður þakið virkilega áhugaverð og gaman að sjá það gerast, segir Björn.“ Ekki má gleyma því að í tilefni af Allt á hjólum mun Bílabúð Benna sömuleiðis hafa til sýnis 1970 árgerð af Porsche 911 Targa. „Þetta er bíll með upprunalega útlitinu, í eigu Ís- lendings, og búið er að taka hann í gegn skrúfu fyrir skrúfu, ef svo má segja. Ég held að það megi segja að þarna er um að ræða einn glæsileg- asta Porsche-bílinn á landinu. Alveg virkilega fallegur og spennandi dýr- gripur.“ Auk 911 Targa nefnir Björn að á staðnum verður ennfremur til sýnis glæsilegur Porsche 911 Carrera. Hann er 350 hestöfl og aðeins 4,4 sek í 100 km hraða. Geri aðrir betur. Áhugasamir geta því skoðað þess- ar tvær nafntoguðu gerðir þessa frægasta sportbíls sögunnar og borið þær saman á sýningunni. Björn tiltekur sérstaklega að á sýningunni muni Bílabúð Benna leggja sérstaka áherslu á hybrid- rafmagnsbílatækni þegar Porsche er annars vegar. Bæði Porsche Pana- mera og Cayenne sem búnir eru þessari tækni verða til sýnis fyrir gesti Allt á hjólum, en alls verða 9 Porsche-bílar til sýnis. Opel Corsa slær í gegn Af Opel er það annars að frétta að þetta sögufræga þýska merki hefur minnt rækilega á sig á markaðnum síðustu misseri, bæði erlendis og ekki síður hér heima. Björn nefnir að þau eintök sem komu til landsins af Opel Corsa hafi hreinlega selst upp og Bílabúð Benna því átt tímabundið við það lúxusvandamál að hafa selt upp þá bíla sem til landsins komu. Það horfir þó til betri vegar og vænt- anlegir um helgina eru fleiri bílar af hinni vinsælu Corsa-gerð, sem verða tilbúnir til afgreiðslu í næstu viku. „Það er ótvíræður kostur að vera í sambandi við evrópskan bílaframleið- anda því þá er tiltölulega fljótleyst að fá bíla til landsins, samanborið við það þegar við erum að versla við As- íu. Þá er afgreiðslufresturinn fimm til sex mánuðir á meðan fresturinn frá Evrópu er í mesta lagi tíu til tólf vik- ur.“ Björn bætir því við að Opel sé jafnt og þétt að hasla sér völl hér á landi eftir mögur ár og gaman að sjá hve landinn taki bílnum vel. „Það þarf svo sem ekki að koma á óvart því Opel hafa gert feikigóða hluti í vé- laþróun, gírkassaþróun og síðast en ekki síst hönnun ytra útlits. Merkið er á mikilli uppleið.“ Loks verður at- vinnubílalínan frá Opel kynnt en Bíla- búð Benna ætla sér stóra hluti þar á næstu misserum. Spark vinsælasti smábíllinn Hvað Chevrolet áhrærir verður smá- bíllinn Spark í aðalhlutverki enda einn vinsælasti bíllinn í sínum flokki á landinu. „Þessi bíll hefur fyrir löngu sannað sig hér á landi og selst eig- inlega hraðar en mjólkin í Bónus,“ segir Björn og kímir við. Spurður um ástæður þess hve Spark hefur notið mikilla vinsælda segir Björn það nokkuð augljóst frá sínum bæj- ardyrum séð. „Við höfum getað boðið þarna vel búinn bíl, svona eins og fólk vill hafa bílinn sinn, á verði undir tveimur milljónum króna. Það er nú svo einfalt. Samkeppnisaðilar okkar hafa velflestir getað boðið bíla á sama verði en það eru þá bílar í ódýrustu útfærslu með búnaði í takt við það. Betur búnar útfærslur hafa aftur á móti verið yfir tveimur milljónum króna. Þá hefur fólk einfaldlega verið einstaklega ánægt með Spark í akstri og allri notkun. Þú situr frekar hátt í bílnum því hann er hátt byggður, út- sýni er gott og það er auðvelt að stíga inn og út. Reksturinn er þá gríð- arlega hagkvæmur. Spark hefur fall- ið í kramið að öllu leyti.“ Loks nefnir Björn að frá Ssan- gYong verði nýji Korando-jeppinn helsta útspilið á sýningunni, mjög vel búinn fjórhjóladrifinn díselbíll með læstum millikassa, ásamt Rexton sem er jeppi í stærri flokki með hefð- bundnum millikassa, læsanlegu háu og lágu drifi. Það verður því nóg að skoða og kynna sér á 650 fermetra sýning- arsvæði Bílabúðar Benna í Fífunni um helgina. jonagnar@mbl.is Porsche 911 Targa þá og nú Það kennir ýmissa grasa hjá Bílabúð Benna á sýningunni sem hefst á laugardag í Fífunni en á engan bíl er hallað þeg- ar sagt er að líkast til sé einna mest spennandi að skoða tvo Porsche 911 Targa, annan glæ- nýjan og hinn frá árinu 1970. Glæsivagnar Það er breið flóra bíla sem verður til sýnis á 650 fermetra svæði Bílabúðar Benna í Fífunni um helgina, allt frá Dakar-útfærslu af Opel Mokka jeppa til Porsche 911 Targa. Morgunblaðið/Kristinn Stígandi Opel sé jafnt og þétt að hasla sér völl hér á landi eftir mögur ár. „Það þarf svo sem ekki að koma á óvart því Opel hafa gert feikigóða hluti í vélaþróun, gírkassaþróun og síðast en ekki síst hönnun ytra útlits,“ segir Björn Ragnarsson. Eitt helsta einkenni Porsche 911 Targa er hinn stállitaði veltigrindarbogi sem setur svo sterkan svip á þessa gerð 911, alls óháð því hvernig bíllinn sjálfur er á litinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.