Morgunblaðið - 08.05.2015, Qupperneq 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ
Þ
etta er tiltölulega óþekkt
fyrirbæri hér á landi þó
svo að lausnin hafi notið
gríðarlegra vinsælda er-
lendis,“ segir Bogi Jóns-
son hjá Topptjald.is. Lausnin sem
um ræðir er svefntjald sem haft er á
þaki bílsins og milli gististaða er
tjaldið einfaldlega fellt niður.
„Í Ástralíu og Afríku eru topp-
tjöld af þessu tagi mjög vinsæl því
þar horfa menn til þess að komast í
var frá skordýrum og skriðdýrum
sem þar fara um jörðina, ekki síst í
skjóli nætur. Það má segja að það sé
meginpælingin með þessu þar. En
hér á landi þarf vitaskuld ekki að
hafa sömu áhyggjur af ókræsilegum
skorkvikindum en ávinningurinn
sem lausnin felur í sér umfram hefð-
bundin tjöld er að þú kemst upp úr
mesta næturkuldanum sem er niðri
við jörðina. Það getur munað heil-
miklu.“
Sérstaða í bílaleigubransanum
Bogi segir nafngiftina á þessari ný-
stárlegu gistilausn – topptjöld –
heimatilbúna en tjöldin kallast „ro-
oftop tents“ upp á ensku. „Þetta er
nú bara eitthvað sem okkur datt í
hug en nafnið fangar í raun það sem
lausnin gengur út á og hefur loðað
við síðan þetta kom upp.“
Bogi bætir við að hann starfi einn-
ig í bílaleigubransanum hjá Camp-
ingCars og tjöldin hafi þannig komið
til í fyrstu; þá félaga sem reka fyr-
irtækið langaði að marka sér
ákveðna sérstöðu á markaðnum með
því að bjóða upp á þessa sérstæðu
gistilausn meðfram bíl til leigu. Eitt
leiddi af öðru og fyrr en varði voru
þeir félagar komnir með umboð fyr-
ir tjöldin hér á landi.
„Þetta eru ítölsk tjöld og nú þegar
maður hefur farið vandlega í gegn-
um framboð mismunandi framleið-
enda á þessum markaði þá held ég
að ég geti alveg sagt að þetta merki
sem við erum með, Autohome, sé
rjóminn af þessum bransa þó að ég
segi sjálfur frá. Þetta er allt saman
handunnið og útkoman er hágæða-
vara. Seglin eru sérlega þykk og
vönduð, og svo er einangrun bæði í
lokinu og botninum. Þetta hentar
því einstaklega vel á Íslandi því
tvær manneskjur hita tjaldið fljótt
og vel upp.
Þolir vel íslenska veðráttu
Stóru spurningarnar fyrir íslenska
ferðalanga snúast svo væntanlega
um plássið sem topptjald tekur og
svo hvort uppsett tjald standist ís-
lensk veður þegar þau taka sig til og
blása af krafti. Bogi er snöggur til
svars.
„Ef við tökum vinsælasta boxið
okkar til dæmis þá er það 130 senti-
metrar á breidd og 200 sentimetrar
á lengd. Þetta er því ekki fyrirferð-
armeira á ferðalagi en vel útilátið
farangursbox, svokallað tengda-
mömmubox. Boxinu skellir maður á
bílinn á vorin og tekur svo aftur af
þegar ferðalögin eru að baki.“
Bogi bendir á að sum stærri tjöld-
in snúi maður einfaldlega upp með
sveif, ekki ósvipað því sem gert er
með dæmigerð fellihýsi. „Tjöldin
sem við höfum verið mest með, hafa
að mínu viti gefið besta raun og hafa
verið mest tekin á bílaleigubílana,
nefnast Columbus. Þau eru á heilli
löm í annan endann og opnast þá
upp í hinn endann, og það eru loft-
tjakkar sem opna tjaldið þegar kem-
ur að því að setja það upp. Það tekur
því ekki nema um 3 sekúndur að
tjalda því þú losar bara um spennu
að aftan og tjaldið poppar svo bara
upp á eigin spennu og er klárt. Svo
þarf ekki annað en að festa það í op-
inni stöðu og þá er það klárt. Þau
henta líka sérlega vel upp á íslenska
veðráttu því það er svo hentugt að
snúa skelinni einfaldlega upp í veðr-
ið. Þá tekur tjaldið miklu minni vind
á sig.“
Þessa gerð hafa Bogi og félagar
boðið upp á í þrjú ár og tjöldin hafa
staðið af sér öll veður á þeim tíma.
„Ég nefni sem dæmi hörðustu
haustlægðina sem brast á fyrir síð-
ustu áramót. Þá var einn bandarísk-
ur herramaður á ferð um landið á bíl
frá okkur með einmitt svona tjald á
toppnum. Honum leist ekki betur á
blikuna en svo, þegar veðrið skall á,
að hann skreiddist inn í bílinn, án
þess að fella tjaldið því hann þorði
það ekki fyrir óveðrinu, og svaf þar
ósköpin af sér. En tjaldið stóðst all-
an veðurofsann og stóðst um leið
stærsta prófið sem við hefðum getað
lagt fyrir það. Það var ekki nokkurn
hlut að sjá að því að þegar slotaði.“
Eldskírn við íslenskar aðstæður!
Sömu sögu er að segja af of-
urlægðinni ógurlegu sem skall á í
mars síðastliðnum. Þau tjöld sem þá
voru í umferð stóðu sína plikt, segir
Bogi, og því sannað að tjöldin má
nota árið um kring, ekki bara í sum-
arblíðunni.
Passar öllum bílum
Aðspurður segir Bogi að hægt sé að
festa Autohome-tjöldin á alla bíla
sem á annað borð er hægt að festa
þverboga á. „Tjöldin eru fest á þver-
bogana, í rauninni eins og tengda-
mömmuboxin eru fest. Meðan bílar
bera slík box þá bera þeir topp-
tjöldin vandamálalaust.“
Að endingu nefnir Bogi að þau
tjöld sem í mestri notkun séu vegi
60 kíló. „Svo er gefin einhver burð-
argeta á bílana en þar er verið að
miða við þyngd í akstri – ekki upp-
settu tjaldi með einstaklingum í, svo
því sé haldið til haga. Fólk áttar sig
stundum ekki á því að ef burð-
argetan er gefin upp 60 til 80 kíló, þá
er átt við lokað box þegar bíllinn er
á ferð. Fólk er þá smeykt um að
geta ekki sofið í tjaldinu því burð-
argetan sé svo takmörkuð en það er
öðru nær. Burðargetan á bara við
frágengið box á ferð.“
Með í boxinu fylgja svo álstigi til
að auðvelda uppstig inn í topp-
tjaldið, dýna og tveir koddar.
„Tjöldin eru því afhent algerlega
klár. Þú þarft ekkert nema svefn-
pokann þinn.“
jonagnar@mbl.is
Handhægt „Ef við tökum vinsælasta boxið okkar til dæmis þá er það 130 sentimetrar á breidd og 200 sentimetrar á lengd. Þetta er því ekki fyrirferðarmeira á ferðalagi en vel útilátið farangursbox, svokallað
tengdamömmubox. Boxinu skellir maður á bílinn á vorin og tekur svo aftur af þegar ferðalögin eru að baki,“ segir Bogi Jónsson hjá Topptjaldi.is um lausnina sem felst í tjaldboxunum frá Autohome.
Allt klárt nema svefnpokinn
Tjald sem slegið er upp
á þaki bíls er ekki algeng
sjón hér á landi en um
er að ræða lausn sem
vel gæti rutt sér til rúms
í náinni framtíð. Bogi hjá
Topptjald.is segir nánar
frá þessu „heimili að
heiman“ sem kynnt
verður í Fífunni um
helgina.
Ferðalangar Hér sjást þrjú tjöld á toppnum við náttúruperluna Dynjanda í Arnarfirði á Vestfjörðum. Topptjaldboxin fást í
ýmsum gerðum og útfærslum og gætu vel rutt sér til rúms í auknum mæli hér á landi á næstu mánuðum og árum.
Notalegt Hvað er huggulegra en að njóta ljósaskiptanna við opin varðeld, vitandi að uppi á toppi bíður notaleg hvíld í skjóli
sem þolir vel íslenskar aðstæður og hefur sannað sig við vályndustu veður síðustu missera? Það er ekki ýkja margt.
Topptjaldmenn Þeir Bogi og Hörður fara fyrir rekstri Topptjalda og halda um leið
utan um bílaleiguna CampingCars. Þetta tvennt fer vitaskuld prýðilega saman.