Morgunblaðið - 08.05.2015, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 08.05.2015, Blaðsíða 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ H já Heklu verður fókusinn heilt yfir á umhverf- isvæna bíla,“ segir Jó- hann Ingi um þátttöku Heklu í sýningunni Allt á hjólum. „Við erum með gríðarlega breiða línu, gegnum mismunandi bílaframleiðendur, af umhverf- isvænum valkostum. Nægir þar að nefna e-Golfinn rafknúna og litla bróður hans, VW e-Up. Einnig vor- um við að fá til okkar hinn nýja Audi A3 e-Tron sem er svokallaður plug- in hybrid-bíll. Hann var bara að koma til landsins í vikunni sem leið og verður frumsýndur á sýning- unni.“ Jóhann útskýrir að A3 e-Tron sé einfaldlega rafmagnsbíll sem aki alfarið á rafhleðslu í allt að 50 kíló- metra og þá taki sparneytin bensín- vél við sem dregur ökumann að landi ef á þarf að halda. „Við sjáum því fyrir okkur að hér sé kominn bíll sem getur verið eini valkosturinn á heimilinu.“ Hann bætir við að bíllinn sé þegar farinn að rokseljast í for- sölu og ljóst að hér sé á ferðinni bíll sem muni láta að sér kveða á næstu mánuðum og misserum. Margt áhugavert í Fífunni Í Mitsubishi-deildinni sýnir Hekla nýjan Outlander sem er sömuleiðis plug-in hybrid bíll. „Þá var Skoda nýverið að frumsýna Octavia-bílinn í G-Tec útfærslu, sem er metanbíll. Af bílaumboðunum á Íslandi erum við því í það heila komnir með einna stærstu heildarlínuna af umhverf- isvænum valkostum. Það má segja að við séum orðnir stærstir í grænu deildinni,“ bætir Jóhann við og hlær. Það er því ekki skrýtið að fók- usinn hjá Heklu sé einna helst á um- hverfisvænu bílana á sýningunni um helgina. Jóhann Ingi bætir því við að Hekla muni frumsýna talsvert marga bíla á sýningunni um helgina og margt sem mun því bera fyrir augu sýningargesta í fyrsta sinn. „Frá Volkswagen munum við frum- sýna VW Golf R, sem er spennandi tæki úr sportbíladeildinni, um 300 hestöfl undir húddinu, fjórhjóladrif- inn og bíllinn ekki nema 4.9 sek- úndum í hundraðið. Bíll ársins í Evrópu, nýr VW Passat, verður á sínum stað og hann verður kynntur rækilega í Fífunni. Einnig munum við sýna VW Touareg með nettri andlitslyftingu. Goðsögn í sinni nýjustu mynd Allt frá því Audi TT var fyrst kynnt- ur til sögunnar seint á 10. áratug síðustu aldar hefur hann verið eft- irlæti þeirra sem kunna að meta sportbíla sem einkennast af naum- hyggjulegri hönnun. Það mun því væntanlega gleðja marga að nýr Audi TT verður sýndur í Fífunni. „Þetta er fjórhjóladrifinn quattro með 230 hestafla vél og ljóst að hann mun trekkja gesti að enda hef- ur hann alla tíð notið vinsælda hér á landi. Með honum munum við frum- sýna glænýjan Audi A6, sem er einkar vel útbúinn lúxusbíll og að góðu kunnur hér á landi.“ Fleiri frumsýningar verða hjá Jó- hanni og félögum og Skoda Fabia er þar á meðal. „Þessi bíll var meðal annars valinn Bíll ársins hjá What Car? og hlaut einnig hönn- unarverðlaunin Red Dot og hafa viðtökurnar í Evrópu verið gríð- arlega góðar enda hin nýja hönnun hörkuvel heppnuð, dálítið töffaraleg, og við hlökkum til að sýna Íslend- ingum bílinn. Ekki má gleyma for- sýningu á glænýjum Skoda Superb, stærri og rúmbetri. Þetta er einfald- lega nýr bíll frá grunni, spennandi glæsivagn, enda flaggskipið frá Skoda. Við fáum þennan ekki til af- greiðslu fyrr en seinna í sumar en tókst að fá eitt eintak til að forsýna á Allt á hjólum.“ jonagnar@mbl.is Stærstir í „grænu deildinni“ Flaggskipið Skoda Superb er stærstur og best búinn allra Skoda bílanna, forsýndur um helgina. Umhverfisvænn Audi A3 e-Tron er rafmagnsbíll sem aki alfarið á rafhleðslu í allt að 50 kílómetra. Goðsögnin Audi TT vekur athygli hvar sem hann fer og hefur gert frá upphafi. Traustur Volkswagen Touareg hefur verið í framlínu lúxusjeppa síðan 2003.Gæjalegur Skoda Fabia var valinn Bíll ársins hjá What Car? og hlaut einnig hönnunarverðlaun Red Dot. Morgunblaðið/Árni Sæberg Umhverfið „Fókusinn verður heilt yfir á umhverfisvæna bíla,“ segir Jóhann Ingi um þátttöku Heklu í sýningunni Allt á hjólum. Hekla hyggst frumsýna 7 nýja bíla um helgina og umhverfisvænir bílar verða ekki síst í sviðs- ljósinu, segir Jóhann Ingi Magnússon, sölu- stjóri Audi. Við erum með gríðarlega breiða línu, gegnum mis- munandi bílaframleið- endur, af umhverfisvænum valkostum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.