Morgunblaðið - 08.05.2015, Blaðsíða 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ
B
L státar af mesta úrvali
rafbíla hér á landi og hef-
ur auk þess umsjón með
hvers konar viðhaldi á
ýmsum gerðum rafbíla
sem hér á landi eru. Hvað rafbíla
varðar er bílaumboðið einna þekkt-
ast fyrir sölu á hinum vinsæla Niss-
an Leaf sem hefur selst býsna vel
hér á landi. Á sýningunni um helgina
verður einmitt sérstakur rafbílabás
frá BL og þar verða þeir bílar sem í
boði eru. „Þar verður í fyrsta skipti
sýndur NV200 sem er sendibíll af
millistærð frá Nissan en hann er
fimm manna rafbíll,“ segir Loftur
Ágústsson, markaðsstjóri BL.
Heiður að vera með Jaguar
Trompið í flota BL á sýningu helg-
arinnar hlýtur eftir sem áður að vera
Jaguar F-TYPE sportbíllinn sem er
forsmekkurinn af því sem koma skal
því BL er umboðsaðili tegund-
arinnar og mun opna sérstakt rými á
Sævarhöfðanum undir tegundina
með haustinu. F-TYPE er fyrsti bíll-
inn úr Jaguar-línunni sem umboðið
flytur inn og er hann í S Coupé-
útfærslu og kemur 380 hestafla 6
strokka vélin honum úr kyrrstöðu í
100 kílómetra hraða á 4,9 sekúndum.
Það verður að teljast býsna gott og
er togið 460 Nm. Efast maður ekki
um það eitt augnablik að hljóðið í
honum sé fallegt. En hvaða þýðingu
skyldi það hafa fyrir stórt umboð
eins og BL að bæta Jaguar við það
úrval tegunda sem fyrir er?
„Við vitum það í raun og veru ekki
ennþá en það sem við skynjuðum
fyrir um ári þegar Land Rover-
menn komu til okkar að þeir vildu
gjarnan vita hvenær við myndum
kynna Jaguar,“ segir Loftur. Í öllum
samskiptum var spurt að því og að
lokum opnaði BL fyrir þann mögu-
leika að kynna tegundina hér á landi.
„Þá kom í ljós að Jaguar af milli-
stærð, sem er í svipaðri stærð og
fimman frá BMW, var á fínu verði og
við höfum líka pláss fyrir Jaguar í
sýningarsalnum okkar.“
Fífan þrýsti á
Í lok síðasta árs þegar undirbún-
ingur sýningarinnar Allt á hjólum
hófst, hugsaði Loftur með sér að
skemmtilegt væri að geta kynnt
Jaguar í Fífunni 2015. „Þannig að
við keyptum einn bíl til að forkynna
Jaguar til sögunnar í Fífunni og nota
tækifærið þar. Fífan rak á eftir okk-
ur,“ segir Loftur og án efa eiga
margir eftir að njóta þess að skoða
þennan rennilega sportbíl sem og
úrvalið af rafbílum nú um helgina.
malin@mbl.is
Með flestar gerðir rafbíla á markaðnum
Bílasýningin dró Jaguar loks til landsins
Búnaður Stjórntækin í F-TYPE eru tilkomumikil, eins og við er að búast.
Töffari Jaguar F-TYPE fangar augað, hvert sem sjónarhornið er.
Jaguar Millistærð, sem er í svipaðri stærð og fimman frá BMW, var á fínu verði og
við höfum líka pláss fyrir Jaguar í sýningarsalnum okkar,“ segir Loftur hjá BL.
Morgunblaðið/Eggert
Augnayndi F-TYPE er fyrsti bíllinn úr Jaguar-línunni sem umboðið flytur inn og er hann í S Coupé-útfærslu og kemur 380 hestafla 6 strokka vélin honum úr kyrrstöðu í
100 kílómetra hraða á 4,9 sekúndum. Það verður að teljast býsna gott og er togið 460 Nm. Efast maður ekki um það eitt augnablik að hljóðið í honum sé fallegt.
Rafbíll Í Fífunni verður NV200 frumsýndur, en hann er 5 manna rafsendibíll af millistærð frá Nissan. Vinsæll BL er einna þekktast fyrir sölu á hinum vinsæla Nissan Leaf sem hefur selst vel hér á landi.
Á sýningarsvæði BL
verða allra augu líkast
til á nýjasta meðlimi
BL-fjölskyldunnar.
Hann heitir Jaguar.