Morgunblaðið - 08.05.2015, Side 16
16 | MORGUNBLAÐIÐ
A
ð sögn Sverris Viðars
Haukssonar hefur verið
góð stígandi í bílalánum
undanfarin misseri.
Sverrir er framkvæmda-
stjóri viðskiptaþróunar hjá Lýsingu
en fyrirtækið tók yfir rekstur Lyk-
ils fjármögnunar í júlí á síðasta ári
og hefur kynnt margar nýjar lána-
vörur bæði undir merkjum Lykils
og Lýsingar.
Vöxturinn hefur verið jafn og
stöðugur og segir Sverrir að það
geti skrifast bæði á batnandi efna-
hagsástand en líka að fjölbreyttari
lánamöguleikar gera fleirum kleift
að kaupa rétta bílinn. „Við höfum
t.d. verið að bjóða upp á lengri lán
til kaupa á notuðum og nýjum bíl-
um sem þýðir að mánaðarlegar
greiðslur verða lægri. Þess verður
vitaskuld að gæta að eftirstöðvar
lánsins haldist í hendur við virði
bílsins og þess vegna kalla lengstu
lánin á ákveðið traust á milli lána-
fyrirtækisins og viðskiptavinarins.“
Öryggi og hagkvæmni
Til að létta bílakaupin enn frekar
hefur Lykill komið fram með nýjar
tegundir lána, í sumum tilvikum í
nánu samstarfi við bílaumboðin.
Þannig hafa vaxtalaus lán bæst við
flóruna og eru í boði þegar bílar
eru keyptir hjá BL og Toyota. „Þar
er lánshlutfallið lægra en á móti
kemur að greiðslurnar eru fastar
og hægt að stóla á að allar
greiðslur verða ákveðin krónutala
samninginn á enda.“
Með Bílabúð Benna hefur Lýsing
boðið upp á lán á föstum 5,95%
vöxtum og í samstarfi við flest bíla-
umboð er boðið upp á flotaleigu
þar sem fyrirtæki geta gengið að
þægilegum pakka og bíll, trygg-
ingar, bifreiðagjöld og viðhald er
innifalið, allt á föstum greiðslum til
allt að þriggja ára. Getur jafnvel
bensínkort fylgt með samningnum
ef svo ber undir. „Það eina sem
viðskiptavinurinn þarf að sinna er
að fylla á rúðuvökvann eftir þörfum
og hugsanlega skipta um þurrku-
blöðin ef vinnukonurnar fara óvart
af stað í miklu frosti. Meira að
segja dekkjaskipti og dekkja-
geymsla eru innifalin.“
Stýra áhættunni
Sverrir segir kjör af þessu tagi
ekki áhættulaus fyrir lánveitand-
ann en sú stefnubreyting hafi orðið
í greininni að reyna að færa
áhættustýringuna frá neytandanum
og til sérfræðinga lánafyrirtækj-
anna.
„Í krafti stærðarinnar og sér-
þekkingar okkar höfum við leiðir til
að verja okkur gegn áhættunni og
tryggja að reksturinn líði ekki fyrir
það jafnvel þó að þær forsendur
sem lánasamningarnir miða við
þróist allar á versta veg fyrir okk-
ur.“
Fleiri lánamöguleikar eru á leið-
inni og ljóstrar Sverrir því upp að
spennandi nýir kostir verði kynntir
um helgina, bæði í auglýsingum og
á bílasýningunni í Fífunni. Hann
fæst ekki til að gefa upp smáatriðin
en segir þó að um sé að ræða fjár-
mögnunarkost sem ætti að henta
mörgum.
ai@mbl.is
Nýir lánamöguleikar létta kaupin
Lýsing og Lykill hafa
kynnt nýjar leiðir til bíla-
fjármögnunar á undan-
förnum misserum.
Vaxtalaus lán og flota-
leiga bjóða upp á áhuga-
verða möguleika.
Morgunblaðið/Eggert
Drossía Lykill og BL bjóða vaxtalaus lán. Viðskiptavinir skoða BMW X6 í sýningarsalnum.
Morgunblaðið/Kristinn
Kjör Vaxtalaus lán eru líka í boði hjá Toyota. Hvað með einn vaxtalausan Land Cruiser?
Morgunblaðið/Eggert
Fyrirsjáanlegt Sverrir segir flotaleigu áhugaverðan kost fyrir atvinnulífið. „Það eina sem viðskiptavinurinn þarf að sinna er að fylla á rúðuvökvann eftir þörfum og hugsanlega skipta um þurrkublöðin.“
Lýsing og Lykill eiga í samstarfi
við flest bílaumboð landsins.
Segir Sverrir að nær und-
antekningalaust eigi að vera
hægt að fjármagna draumabíl-
inn á hagstæðan máta.
Gott er líka að hafa í huga að
fjármögnunarmöguleikarnir ráð-
ast að sumu leyti af því hvernig
kaupandinn vill hafa bílinn. Ef
notkunin er til skamms tíma og
bíllinn látinn ganga aftur til lán-
veitandans þegar samningnum
lýkur þá verði t.d. að taka mið
af endursölumöguleikum bíls-
ins. „Ef viðskiptavinurinn vill
endilega heiðbláan bíl með gul-
um sætum þá myndum við
mögulega þurfa að ræða málin
aðeins nánar,“ segir Sverrir og
hlær.
Drauma-
bíllinn innan
seilingar