Morgunblaðið - 08.05.2015, Page 18
18 | MORGUNBLAÐIÐ
S
uzuki-umboðið ætlar að
nota tækifærið um
helgina til að kynna það
nýjasta frá framleiðand-
anum. Því verður bæði
forsýning og frumsýning í Fífunni.
Að sögn Sonju Ólafsdóttur, mark-
aðsstjóra Suzuki bíla hf., eru margir
spenntir fyrir spánnýjum Vitara og
geta áhugasamir skoðað hann að
innan og utan á forsýningu bílsins
sem er ánægjulegt því Vitara verð-
ur ekki frumsýndur fyrr en seinna í
sumar. „Við erum að hætta með
Grand og Vitara er að koma til okk-
ar aftur. Hann er alveg gjör-
breyttur,“ segir Sonja og það er
sannarlega ekki um að villast að
Vitara er æði breyttur frá kynslóð-
inni á undan.
Sumarlegir og sportlegir
Sumarið er sannarlega tíminn fyrir
sportbíla og frá Suzuki koma ein-
mitt nokkrir sportlegir bílar. „Við
munum frumsýna Swift Sport 4-
dyra en hann höfum við ekki verið
með áður og það verður líka mjög
spennandi,“ segir Sonja. Swift
Sport er með 1,6 l. bensínvél sem
skilar 136 hestöflum, sportfjöðrun,
tvöföldu pústkerfi og er með sport-
innréttingu. Þessi litli en spræki bíll
hefur fengið lof víða, meðal annars
hjá TopGear sem gaf honum átta
stjörnur af tíu mögulegum.
Það verður fleira sportlegt til
sýnis hjá Suzuki um helgina og er
það hinn fjórhjóladrifni Kizashi sem
kom á Evrópumarkað árið 2011.
Japanska orðið „kizashi“ merkir
„eitthvað magnað sem í vændum
er“ og státar Suzuki Kizashi af 185
hestafla 2,4 l. vél.
Suzumar og EL-GO
Auk alls bílaflotans ætlar umboðið
að sýna fleiri tæki sem gætu hitt í
mark hjá bílaáahugafólki. Mótorhjól
verða þar vissulega og rafmagns-
hjól og EL-GO rafmagnsvespur en
einnig einkar sparneytnar utan-
borðsvélar af ýmsum gerðum sem
og Suzumar-slöngubátar sem eru
sérlega sumarlegir á að líta svo ekki
sé minnst á nafnið.
malin@mbl.is
Mótorhjól, frumsýning og forsýning
Sportlegur
Kizashi, Swift
Sport og Suz-
umar í sumar
Það stendur mikið til hjá Suzuki umboðinu um
helgina, því bæði forsýning og frumsýning er í kort-
unum. Glænýr og gjörbreyttur Vitara verður í Fíf-
unni ásamt Swift Sport og loks hinn nýi Kizashi.
Tryllitæki Swift Sport er með 1,6 l. bensínvél sem skilar 136 hestöflum, sportfjöðrun, tvöföldu pústkerfi og er með sport-
innréttingu. Þessi sportlegi bíll hefur fengið lof víða, meðal annars hjá TopGear sem gaf honum átta stjörnur af tíu.
Eftirvænting Margir eru spenntir fyrir spánnýjum Vitara og geta áhugasamir skoðað hann í Fífunni um helgina.
Magnaður Japanska orðið „kizashi“ merkir „eitthvað magnað sem í vændum er“
og státar Suzuki Kizashi af 185 hestafla 2,4 l. vél. Hljómar eins og eitthvað.
H
elga Friðriksdóttir er for-
stöðumaður bíla- og
tækjafjármögnunar
Landsbankans. Hún seg-
ir greinilegt að líf sé að
færast í markaðinn og að hinn al-
menni neytandi sé farinn að taka
bílalán í auknum mæli. „Bílaleig-
urnar hafa verið fyrirferðarmiklar
síðustu ár og ekki að sjá að verði
nokkuð lát þar á enda stöðugur
straumur ferðamanna til landsins.
Undanfarin misseri hafa svo bílalán
til almennra viðskiptavina verið að
aukast. Meðalupphæð lánanna hefur
aðeins farið hækkandi og er núna í
kringum þrjár milljónir og með-
allánshlutfallið er um 68% af kaup-
verði bílsins.“
Munar um sparneytnina
Bendir Helga á að vegna lítillar end-
urnýjunnar sé bílafloti landsmanna
orðin gamall og margir búnir að átta
sig á því að þegar dæmið er reiknað
til enda, þá borgar sig að kveðja
gamla bílinn og kaupa nýjan með
láni. „Það munar auðvitað mest um
bensínkostnaðinn en nýju bílarnir
eru mun sparneytnari og af þeim
sökum mun ódýrari í rekstri. Að fara
úr bíl sem eyðir 12-15l/100km niður í
5l/100 km getur margborgað sig,
jafnvel þó að við tökum með í reikn-
inginn afborganir af nýja bílnum.“
Eins og aðrir lánveitendur býður
Landsbankinn upp á bílalán sem eru
að hámarki til sjö ára, ef um er að
ræða nýja bíla, og allt að 80% láns-
hlutfall. Ef keyptur er umhverf-
isvænn bíll má viðskiptavinurinn
eiga von á ögn betri lánskjörum.
„Það er hluti af þeirri stefnu bank-
ans að rækja samfélagslega ábyrgð
sína að ýta undir kaup á umhverf-
isvænum bílum. Þetta gerum við
með því að veita 50% afslátt af lán-
tökugjaldi fyrir slíka bíla og bætist
það við þá afslætti sem við-
skiptavinir bankans njóta þegar þeir
fjármagna bílakaupin hjá okkur.“
Hinn dæmigerði bílakaupandi hef-
ur um tvær fjármögnunarleiðir að
velja hjá Landsbankanum. Annars
vegar má taka hefðbundið bílalán,
með venjulegu veðskuldabréfi, og
hins vegar gera svokallaðan bíla-
samning. Bílasamningurinn er svip-
aður og kaupleiga. Segir Helga að
þar til nýlega hafi um 95% allra lána
verið bílasamningar en aðeins 5%
verið bílalán.
„Við riðum á vaðið fyrir ári og
gerðum bílalánin samkeppnishæfari.
Í dag eru hlutföllin allt önnur og um
60% velja að fjármagna kaupin með
bílasamningi en 40% taka bílalán.“
Helga segir þó að fyrir viðskipta-
vininn sé munurinn á bílaláni og
bílasamningi ekki stórvægilegur.
Með bílaláni er bíllinn skráður eign
lántakandans en með bílasamningi
helst Landsbankinn skattalegur eig-
andi ökutækisins út samningstím-
ann.
Bílakaupin hafa forgang
Hjá Landsbankanum má einnig fjár-
magna kaup á bifhjóli, fjórhjóli, felli-
hýsi, tjaldvagni eða húsbíl. Helga
segir að þar sé vöxturinn minni en í
bílalánunum. „Það er ekki ólíklegt
að veðrið skipti máli. Hefur veðrið
ekki verið gott síðustu sumur og
minni hugur í fólki að bregða sér í
ferðalag með nýjan tjaldvagn eða
njóta lífsins á mótorhjóli. Svo er ekki
hægt að neita því að þetta eru lúx-
usvörur í margra huga sem eðlilega
mæta afgangi ef fjárhagslegt svig-
rúm er af skornum skammti og
nauðsynlegt að endurnýja þrettán
ára gamlan fjölskyldubíl.“
ai@mbl.is
Getur margborgað sig að endurnýja
Þar sem nýir bílar eru
mun sparneytnari getur
verið ódýrara, þegar allt
er tekið með í dæminu,
að kaupa nýjan bíl en að
aka áfram á þeim
gamla.
Ljósmynd/Heimur
Þægindi „Meðalupphæð lánanna hefur aðeins farið hækkandi og er núna í kring-
um þrjár milljónir,“ segir Helga um þróunina á markaðinum að undanförnu.
Hægt er að fá allt að 80% lán fyr-
ir kaupum á nýjum bíl en lánshlut-
fallið fer lækkandi með aldri bíls-
ins og samanlagður aldur bíls og
lánstími getur aldrei farið um-
fram 12 ár. Helga segir ekki leng-
ur í boði að fjármagna allt að
100% af kaupunum með láni eins
og hægt var á hátindi góðærisins.
Neytendur hugsa líka öðru vísi í
dag, að sögn Helgu, og vita vel að
það er ekki endilega sniðugt að
skulda of mikið í bílnum. Fáir vilja
í raun fá svo hátt lán. „Með því að
eiga að lágmarki 20% í ökutæk-
inu skapast frekar svigrúm fyrir
fólk ef að eitthvað fer úrskeiðis
við heimilisreksturinn og eins er
eignastaðan betri ef skipta þarf
um bíl á samningstímanum.“
Mjög hátt
lánshlutfall
skapar hættu