Morgunblaðið - 08.05.2015, Page 22

Morgunblaðið - 08.05.2015, Page 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ BÍLDSHÖF‹A 14 • 110 REYKJAVÍK • SÍMI 587 7000 • WWW.GASTEC.IS Þ að er gaman að segja frá því að varahlutirnir hjá okkur eru meira og minna allir vottaðir samkvæmt svonefndum BER- reglum. Og samkvæmt nýjum reglum og skilgreiningum Evrópu- sambandsins (ESB) ertu í raun að kaupa upprunalegan íhlut þegar þú kaupir varahlut hjá Bílanausti. Þetta er merkileg staðreynd sem fáir, fyrir utan fagaðila, virðast vita um, enn sem komið er.“ Þannig mælir Lárus Bl. Sigurðs- son, forstjóri Bílanausts, í samtali við Morgunblaðið. Fyrirtækið hefur verið leiðandi á varahlutamarkaði frá stofnun þess 1962. Árið 2006 sameinuðust Esso og Bílanaust undir nafninu N1 og Bílanausts- nafnið var látið hverfa af markaði. Síðan ákvað N1 að endurvekja nafnið í byrjun ársins 2013. Bíl- anaust var síðan selt tveimur fjöl- skyldum í maí 2013. Kjarnastarfsemin aftur í fókus „Eftir að nýir eigendur tóku við varð sú stefnubreyting í félaginu að við ákváðum að sækja aftur til upp- runans, að sinna aðalstarfsemi fé- lagsins sem er þjónusta við almenn- ing, umboð og verkstæði og einblína á kjarnastarfsemina sem eru varahlutir í bifreiðar og vörur tengdar bifreiðum. Við höfum hald- ið þessu striki síðan. Það kallaði á nokkra endurskipulagningu í fyr- irtækinu. Við þurftum að flytja skrifstofur okkar, þurftum að minnka búðina á Bíldshöfða 9 og færðum hana um nokkra tugi metra á Dvergshöfða 2. Og við end- urskiplögðum bæði innkaup og vöruval þannig að í dag má segja að Bílanaust sé með betra vöruúrval heldur en var vegna þess að áhersl- an hefur verið á varahluti og tengd- ar vörur. Við höfum aukið þjón- ustuna á þeim sviðum en tekið út aðrar vörur sem ekki voru nálægt kjarnastarfseminni, en á sínum tíma var meðal annars verið að selja hér sjónvörp, golfsett, grill svo eitthvað sé nefnt. Vegna nýju áherslnanna, sem byggjast þó á gömlum merg, er fyrirtækið eins öflugt og það er í dag. Við höldum ennþá gamla góða slagorði Bíl- anausts, Gæði, reynsla og gott verð, hátt á lofti. Á þessari braut ætlum við að halda ótrauðir áfram,“ segir Lárus. Allt annað umhverfi varahluta Bílanaust er að hans sögn stærsta varahlutaverslun landsins og með stærsta varahlutalager á Íslandi. Segir hann fyrirtækið stolt af því og telji sig vera í ákveðinni sérstöðu til að þjónusta bifreiðaeigendur. „Það sem mér þótti merkilegast eftir að ég tók við fyrirtækinu er að Evrópusambandið er búið að breyta reglum um varahluti. Í dag er það þannig að varahlutir eru ekki bara varahlutir. Í gamla daga var þetta þannig að umboðin og framleið- endur bíla höfðu ákveðið ægivald og vissa einokun á varahlutum í nýja og nýlega bíla. Til að ábyrgð héldist á bílunum þurfti að kaupa þá beint af framleiðanda. En með reglum og reglugerðum á allra síðustu árum þá hefur töluvert mikil breyting á þessu. Sjálfstæðir framleiðendur íhluta í bíla, sem í mörgum tilvikum eru þeir hinir sömu og framleiddu íhluti fyrir bílaframleiðendur, eru nú komnir með vottun á íhluti sem þeir smíða, séu þeir af sömu gerð. Þetta er í raun bylting frá því sem áður var. Bílaframleiðendur eru enn að aðlaga sig að þessum breyttu reglum, en á okkur sölu- aðilum hvílir sú skylda að upplýsa neytendur um að þeir varahlutir sem eru vottaðir og viðurkenndir jafngilda því að vera sem uppruna- legir íhlutir. Enda skilgreindir sem slíkir. Þetta þýðir einfaldlega að hinn almenni bifreiðaeigandi hefur nú tök á því að kaupa ódýrari vara- hluti fyrir sína bifreið og halda ábyrgðinni á henni samt sem áður. Við erum sem sagt með vottorð um það í dag að okkar varahlutir jafn- gilda því að vera upprunalegir vara- hlutir. Það gætu fyrirtæki, eins og bílaumboðin og bílaleigur, nýtt sér sem möguleika vegna þess að með því væri verið að tryggja það að bíllinn haldist í ábyrgð með því að nota varahluti sem eru við- urkenndir. Ástæðan fyrir því að við erum í þessari góðu stöðu er kannski sú að við erum aðilar að innkaupa- sambandi sem heitir ATR sem er eitt stærsta ef ekki stærsta inn- kaupasamband veraldar á sviði varahluta. Með aðild að því tryggir það okkur aðgang að fremstu vara- hlutaframleiðendum heims og ég held að allir bílaframleiðendur kaupi íhluti í sína bíla af þessum sömu framleiðendum,“ segir Lárus. Mikið um að vera vor og sumar Hann segir mikil umsvif í fyrirtæki sínu á vorin og sumrin. „Það er okkar tími. Bæði eru menn að græja bílana sína fyrir ferðalög og dytta að fyrir komandi sumar. Við leggjum mikla áherslu á að þjón- usta bæði almenning og fagmenn, sem eru okkar stærsti við- skiptahópur. Við höfum lagt á það áherslu síðastliðin tvö ár að þjóna fagaðilunum betur. Við teljum okkur vera að vinna jafnt og þétt að því að gera Bíl- anaust að ómissandi áfangastað fyr- ir fagaðila. Við erum með afar breiða vörulínu fyrir allan geirann; bílaverkstæði, bílaumboð, bílaleig- ur, málningar- og réttingaverk- stæði. Og vegna vörulínunnar víð- tæku er annar iðnaður einnig stór viðskiptavinur hjá Bílanaust. Við erum með mjög öflug merki og vöruvalið það breitt að við getum boðið upp á mjög gott vöruúrval frá leiðandi framleiðendum í veröldinni og við höfum verið að kynna það betur og betur fyrir aðilum sem tengjast ekki beint í bílgreininni en þar er um að ræða mjög breiðan hóp viðskiptavina. Það má segja að vel flest fyrirtæki landsins kaupi eitthvað í Bílanaust á hverju ári.“ Lárus bendir á að þótt Bílanaust sé stærsta fyrirtækið á mark- aðinum ríki mikil samkeppni á varahlutamarkaði. „Við erum með bílaumboðin öll sem í sjálfu sér eru varahlutasalar. Og svo erum við með sérfyrirtæki sem flytja inn varahluti fyrir bifreiðar, eins og við, og síðan minni fyrirtæki sem eru að flytja inn afmarkaðar flokka vara- hluta, eins og síur, eða bremsur, rafala eða eitthvað slíkt eða kaupa inn fyrir ákveðin vörumerki, fyrir ákveðnar bílategundir. Þessi mikla samkeppni hefur gert það að verk- um, að verð á varahlutum hefur nánast staðið í stað í tvö ár,“ segir Lárus. Þjónum öllu landinu Hjá Bílanaust starfa rúmlega 50 manns. „Við rekum sjö verslanir. Aðalverslunin er á Dvergshöfða 2 í Reykjavík en einnig eru verslanir í Kópavogi, Hafnarfirði, Keflavík, á Selfossi, Akureyri og Egilsstöðum. Auk þess erum við með öflugt þjón- ustusímver sem og sölumenn sem heimsækja okkar viðskiptavini. Með þessu erum við að þjóna öllu land- inu og við erum vonandi að standa okkur í því að auka við þessa þjón- ustu,“ segir Lárus að lokum. agas@mbl.is Allir varahlutirnir þeir sömu og upprunalegir Þegar Bílanaust var opnað á ný var ákveðið að sækja aftur til upp- runans, að sinna að- alstarfsemi félagsins sem er þjónusta við al- menning, umboð og verkstæði, segir for- stjórinn, Lárus Bl. Sig- urðsson. Fyrirtækið hef- ur haldið þessu striki allar götur síðan. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sumar „Það er okkar tími. Bæði eru menn að græja bílana sína fyrir ferðalög og dytta að fyrir komandi sumar. Við leggjum mikla áherslu á að þjónusta bæði almenning og fagmenn, sem eru okkar stærsti viðskiptahópur. Við höfum lagt á það áherslu síðastliðin tvö ár að þjóna fagaðilunum betur,“ segir Lárus Sigurðsson hjá Bílanausti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.