Morgunblaðið - 08.05.2015, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.05.2015, Blaðsíða 24
24 | MORGUNBLAÐIÐ R eglur um neytendalán hafa orðið strangari á undanförnum árum og lánveitingar háðar ýms- um skilyrðum. Thelma Harðardóttir og Rósalind María Gunnarsdóttir eru sérfræðingar hjá einstaklingsráðgjöf Arion banka: Bíla- og tækjafjármögnun og segir Rósalind María að það sé alls ekki orðinn óvinnandi vegur að fjármagna bílakaupin. Umfjöllun fjölmiðla gæti látið fólk halda að reglurnar væru óhóflega strangar en raunin er að svigrúmið til lán- veitinga er þannig að það ætti að vera hægt að koma til móts við flesta. „Til dæmis varðandi greiðslu- mat, þá kveða reglurnar á um að framkvæma þurfi greiðslumat ef einstaklingur tekur meira en tvær milljónir króna að láni, en þakið er sett við fjórar milljónir í tilviki hjóna. Fyrir þessar fjárhæðir má hæg- lega finna hentugan bíl fyrir heim- ilið.“ Þá segir Rósalind að neytendur virðist upp til hópa reyna að taka mjög skynsamlegar ákvarðanir um fjármögnun á bílakaupum og nær undantekningalaust að þeir spyrja hvort hægt sé að greiða hraðar inn á lánið án sérstakts uppgreiðslu- gjalds. „Auðvitað gengur fólki mis- vel að borga lánin upp hraðar, enda ýmislegt sem getur sett áætl- anirnar úr skorðum, þrátt fyrir góðan ásetning, en það er ljóst að þeir sem hafa svigrúm til þess reyna iðulega að borga inn á lánið og minnka þannig vaxtabyrðina,“ útskýrir hún og bætir við að bíla- lán Arion banka beri ekki upp- greiðslugjald. Rósalind segir skynsemina líka birtast í því að fólk virðist leita í praktíska bíla og vera tilbúið að minnka við sig. „Þeir sem voru á stóru jeppunum eru komnir á jepp- linga, og þeir sem voru á jepp- lingum í bíla í miðstærð.“ Fer bíllinn með út í heim? Að sögn Thelmu leggur Arion banki ríka áherslu á að gera vel við viðskiptavini sína og bjóða þeim sem hagstæðust kjör. Hluti af þjónustunni felst í því að leysa far- sællega úr málunum þegar breyt- ingar verða á högum viðskiptavin- arins. Þarf til dæmis að skoða lánamálin vel ef stendur til að flytja úr landi, eða flytja aftur til Íslands. Ef lán hvílir á bílnum þarf að fá leyfi lánveitandans til að fara með ökutækið úr landi. Segir Thelma að leyfið sé auðfengið ef um er að ræða t.d. stutta sumarferð, og að því gefnu að tryggingafélagið stað- festi að tryggingaverndin nái til þeirra svæða sem heimsótt verða. „Ef ætlunin er hins vegar að setjast að erlendis þarf að skoða málin nánar og getur í sumum til- fellum verið skynsamlegast að selja bílinn áður en haldið er af stað frekar en að ætla að taka hann með.“ ai@mbl.is Á að vera hægt að koma til móts við flesta Viðskiptavinir leggja mikla áherslu á að geta greitt hraðar inn á lánin án viðbótarkostnaðar. Ef stendur til að flytja úr landi þarf að skoða lánamálin vel en ef að- eins er farið í stutt ferðalag er yfirleitt auð- sótt að fá leyfi frá lána- fyrirtækinu. Morgunblaðið/Ernir Fjárfesting Íslendingar virðast láta skynsemina ráða í bílakaupum og eru tilbúnir að minnka við sig ef fjárhagurinn kallar á það. Svigrúm Thelma bendir á að hjón geti fengið lán uppað fjórum milljónum án greiðslumats.Hagsýn „Þeir sem hafa svigrúm til þess reyna iðulega að borga inn á lánið,“ segir Rósalind.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.