Morgunblaðið - 08.05.2015, Page 25

Morgunblaðið - 08.05.2015, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ | 25 Hagkvæm bílafjármögnun Við bjóðum kaupleigu og bílalán til að fjármagna bílakaup. Viðskiptavinir í Vildarþjónustu Arion banka njóta hagstæðra kjara. Reiknivélin á arionbanki.is hjálpar þér að sjá hvaða fjármögnunarkostir henta þér. Hafðu samband í síma 444 8800 eða sendu fyrirspurn á bilar@arionbanki.is Nánari upplýsingar er að finna á arionbanki.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 5 -1 0 2 1 S érsmíðaðir trukkar, far- artæki hönnuð fyrir suð- urskautið, jeppadekk og akstursþjálfun eru dæmi um það sem íslenska fyr- irtækið Arctic Trucks er þekkt fyr- ir. Starfsmenn Arctic Trucks hafa í heil tuttugu og fimm ár breytt bíl- um og flutt út íslenskt hugvit í tonn- avís í formi ofurjeppa sem til dæmis hafa farið um þvert og endilangt suðurskautið. Það er vissulega nóg að gera hjá þeim á Kletthálsinum eins og heyra mátti þegar blaðamaður náði í vik- unni tali af Steinari Sigurðssyni, sölu- og þjónustustjóra Arctic Trucks. Þá var verið að breyta bíl sem verður á sýningunni um helgina og allt á fullu. „Það er Sprinter á 46 tomma dekkjum og hann lítur allsvakalega út!“ segir Steinar en bíllinn er sá fyrsti þess- arar gerðar sem þeir breyta með þessum hætti. „Þessi breyting er spennandi fyrir menn sem eru í þessum smíðum og þeim sem hafa séð þetta finnst útkoman mjög flott.“ Algjört vígatröll Maður veltir því fyrir sér hverjir kynnu að vilja Sprinter á 46" dekkj- um. Hann er vissulega ekki það fyrsta sem manni dettur í hug sem hentugur bíll fyrir fjölskylduna, enda var það nú ekki kveikjan að hugmyndinni. „Þetta er aðallega út af ferðaþjónustunni. Hann er orðinn vinsæll þar og hentar vel til að koma tólf til fjórtán manns upp á fjöll. Sprinter er eiginlega að taka við af gamla Econoline,“ segir Steinar sem lýsir bílnum sem „al- gjöru vígatrölli“ og geta gestir skoð- að smíðina nokkuð vandlega um helgina. Nýtt pallhús lítur dagsins ljós Auk hins vígalega Sprinters verða á sýningunni 33" breyttur Land Crui- ser með brettaköntum og fagna því eflaust margir að nú sé hægt að fá brettakanta með einföldustu breyt- ingunni. „Síðan verðum við með 6x6 Hilux með nýrri gerð af plasthúsi sem í þessari útfærslu er vinnuhús með hillum og slíku, innréttað eins og lít- ið verkstæði,“ segir Steinar. Út- færslur hússins geta verið með ýmsu móti og er hugmynd Arctic Trucks-manna sú að með tiltölulega lítilli breytingu á húsinu sé hægt að nota það sem farþegahús. „Við get- um sennilega komið fyrir níu farþeg- um. Þetta er alveg frábær bíll þegar koma þarf fólki yfir erfiðar slóðir.“ Auk þess er í smíðum önnur gerð af húsi, sérhönnuð fyrir kínversku heimskautastofnunina en framleitt hér á landi. Á meðal verkefna sem framundan eru hjá Arctic Trucks má einmitt nefna akstursþjálfun fólks frá kínversku heimskauta- stofnuninni sem fær afhenta tvo sex hjóla trukka á næstu vikum. Einnig er í smíðum sex hjóla trukkur fyrir þýsku heimskautastofnunina og ljóst að eftirspurnin eftir sex- hjóladrifnum ofurjeppum fer vax- andi. malin@mbl.is 25 ára afmæli Arctic Trucks Sprinter á 46" fyrir ferðaþjónustuna Morgunblaðið/Árni Sæberg Fagmenn Arctic Trucks hafa í heil tuttugu og fimm ár breytt bílum og flutt út íslenskt hugvit í tonnavís í formi ofurjeppa sem m.a. hafa farið um endilangt suðurskautið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.