Morgunblaðið - 08.05.2015, Qupperneq 30
30 | MORGUNBLAÐIÐ
Þ
að var árið 2007 að Piero
Segatta og félagar eign-
uðust Pústþjónustu BJB í
Hafnarfirði. Um leið var
gerð lítilsháttar breyting á
nafni fyrirtækisins. „Við tókum upp
nafnið „Pústþjonusta BJB – aukin
þjónusta“, til að gefa það til kynna að
nú væri í boði hjá okkur margt fleira
en þjónusta tengd pústkerfinu,“ seg-
ir Piero. „Bættust við alls sex þjón-
ustuflokkar: smurþjónusta, viðgerðir
á bremsum og fjöðrunarbúnaði,
hjólastillingar, almennar viðgerðir,
rafgeymaþjónusta og það sem við
köllum „önnur þjónusta“ sem nær yf-
ir ýmis smáviðivik eins og að skipta
um perur og þurrkublöð.“
Þarf að fræða viðskiptavini
Pústkerfin skipa enn heiðurssess hjá
fyrirtækinu og eru rekin tvö verk-
stæði undir sama þaki þar sem annað
sinnir almennum bílaviðgerðum en
hitt er helgað pústviðgerðum. Piero
segir þörf á að fræða almenning bet-
ur um þann mun í gæðum og endingu
sem verið getur á pústviðgerðum eft-
ir því hvernig staðið er að verki:
„Í þessum geira er hörð verð-
samkeppni og því gildir sú regla að
viðskiptavinurinn fær það sem hann
borgar fyrir. Hingað hafa komið
kúnnar og spurt hvers vegna annað
fyrirtæki er kannski að bjóða sömu
viðgerð á 20% lægra verði, án þess að
skilja að munurinn getur t.d. legið í
því að við veljum að nota frekar vöru
sem uppfyllt hefur stranga staðla.
Okkar markmið er einfaldlega að
bjóða faglega þjónustu og notum
t.a.m. viðgerðar-framrör úr ryðfríu
stáli því þau endast margfalt lengur.“
Pústkerfið vill oft mæta afgangi
hjá bíleigendum enda eitthvað sem
þeir eru ekki með fyrir augunum
dags daglega, og freistandi að hugsa
sem svo, þegar kemur að viðgerðum,
að óhætt sé að fara ódýru leiðina því
það verði hvort eð er búið að selja bíl-
inn áður en pústkerfið gefur sig aft-
ur.
Piero segir borga sig að gefa púst-
kerfinu nánar gætur og láta athuga
málin um leið og vart verður við und-
arlegt hljóð, og hvað þá viðvör-
unarljós í mælaborðinu. „Bæði er það
öryggisatriði að hafa pústkerfið í lagi
og rækilega fest á sínum stað. Það er
ekkert grín ef t.d. pústið losnar af
bílnum á vegum úti og setur bílana
sem á eftir koma í mikla hættu,“ út-
skýrir Piero. „En pústkerfið getur
líka haft áhrif á skilvirkni bílvél-
arinnar og orðið til þess að ýmist
minnka kraft eða auka eyðslu.“
Þrengsli og titringur
Hann bendir á að pústkerfi séu hönn-
uð af framleiðanda til að gegna
ákveðnu hlutverki í samræmi við eðli
og afköst vélarinnar. Þarf pústkerfið
að geta tekið við öllu því heita gasi
sem vélin sendir frá sér eftir að
kveikt hefur verið í eldsneytinu í
sprengihólfi vélarinnar. „Ef ekki er
vandað til verka og því t.d. sleppt að
nota vörur með svokallaða E-
merkingu sem uppfyllir staðla bíla-
framleðandans, þá er ekki víst að við-
gerðin skili þeim árangri sem sóst er
eftir. Þá þarf að nota sérstaka barka
sem einangra titringinn í framröri
frá öðrum hlutum bílsins. Barkarnir
eru mjög mismunandi að gæðum og
ef ódýrasta leiðin er valin og rangur
barki notaður þá getur hann einfald-
lega rifnað og endist skemur en til
var ætlast.“
Að sögn Pieros ættu bíleigendur
að vita að þegar gert er við pústkerf-
ið má í grófum dráttum velja um
nokkra gæðaflokka. Ódýrast er að
nota svokallaða „universal“ íhluti
sem alla jafna hafa stystan ending-
artíma. „Þá er hægt að nota íhluti,
svo kölluð boltakerfi, sem eiga að
passa beint við það sem fyrir er.
Þessi kerfi eru bæði til ómerkt og E-
merkt en E-merkt kerfi hafa verið
prófuð á tilraunastofum og vottað að
þau virka rétt með tilteknum bílum.
Sama á við um hvarfakúta og mjög
hæpið að nota ekki þar til gerða H-
merkta kúta sem hafa verið prófaðir
til síns brúks,“ segir Piero.
„Loks eru „original“ íhlutir frá
framleiðanda sem geta oft kostað tí-
falt á við hina en þá getur kaupand-
inn líka verið viss um að allt er í lagi.“
Hann segir oft óráðlegt að velja
ódýrustu lausnirnar. „Vinnan er oft
það dýr hluti af viðgerðinni, hvort
sem notaðir eru vandaðir eða minna
vandaðir íhlutir, og þeir sem reyna að
spara með því að fórna gæðum fyrir
lægra verð standa oft í þeim sporum
að pústkerfið bilar á ný áður en langt
um líður.“ ai@mbl.is
Ef þú hugsar vel um
pústkerfið hugsar
pústkerfið vel um þig
Ökumönnum hættir til að láta pústkerfið mæta afgangi og spara eyrinn en
kasta krónunni þegar kemur að viðgerðum. Piero hjá Pústþjónustu BJB segir
að þegar upp er staðið borgi sig sjaldan að fara ódýrustu leiðina
Hagur Piero Segotta segir harða verðsamkeppni í pústviðgerðum.
Einbeiting Þegar pústið er lagað þarf að vanda til verka og nota góða varahluti. Starfsmaður Pústþjónustu BJB mundar málmsuðutækið af nákvæmni svo allt verði eins og það á að vera.
Vinnustaður Að mörgu er að huga á verkstæðinu og fátt sem er ómögulegt.
Grip BJB flytur inn dekk frá þekktum
framleiðendum í Indlandi og Kína.
Pústþjónusta BJB er með sterka dekkjadeild og umboð fyrir áhugaverða
framleiðendur í Asíu. Eru það Vrederstein og Apollo frá Indlandi og Federal
frá Taívan. „Federal er það sem við köllum „budget“-merkið okkar sem við
teflum fram til að keppa við dekkin sem streyma til landsins frá kínverskum
framleiðendum og hafa reynst misgóð. En til að keppa við betri framleið-
endur notum við Vredestein og Apollo sem oftast eru í efstu tíu sætunum yfir
þær prófanir sem gerðar eru á dekkjum fyrir hvert tímabil,“ segir Piero.
Greinilegt er að Piero hefur sterkar skoðanir á dekkjamálum og þannig
segir hann lítið vit vera í því fyrir íslenska ökumenn að notast við svokölluð
heilsársdekk. „Það á best við íslenskar aðstæður að keyra um á sumar-
dekkjum á sumrin og vetrardekjum á veturna. Skilar það bæði betri endingu
og meira öryggi í akstri.“
Piero bendir á mælingar sem hafa sýnt að hemlunarvegalengd heilsárs-
dekkja í vætu er mun meiri en hemlunarvegalengd hefðbundinna sumar-
dekkja. Þá eru sumardekkin úr harðara gúmmíi sem slitnar ekki eins auðveld-
lega á heitu malbiki. „Þó að lofthitinn á Íslandi yfir sumartímann sé lægri en í
Mið-Evrópu er malbikið heitt og dregur í sig geisla sólarinnar. Íslenskt malbik
er oft 20-30°C heitt að sumri til og fer ekki vel með mjúkt gúmmí sem hefur
verið blandað með vetrarakstur í huga.“
Ekki hrifinn af heilsársdekkjum
Morgunblaðið/Eggert