Morgunblaðið - 29.06.2015, Blaðsíða 15
Ferðamenn og Túnisbúar votta hinum látnu
virðingu sína á ströndinni þar sem tæplega 40
manns létust í hryðjuverkaárás um helgina. Ríki
íslams hefur lýst yfir ábyrgð á ódæðinu. Vitni
sögðu árásarmanninn hafa brosað á meðan hann
skaut hvert fórnarlambið á fætur öðru.
AFP
Vitni sagði árásarmanninn hafa skartað breiðu brosi
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 2015
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Lars Løkke Rasmussen, formaður stjórn-
málaflokksins Venstre í Danmörku, gekk á fund
Margrétar Danadrottningar í gær í Amalíuborg
og tilkynnti henni að hann hefði myndað minni-
hlutastjórn í landinu.
Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar munu
koma úr röðum Venstre, sautján talsins, þar af
fimm konur og tólf karlar. Staða ríkisstjórnar-
innar verður að öllum líkindum veik á þinginu, þar
sem hún hefur aðeins 34 af 179 þingsætum.
Venstre er þriðji stærsti flokkur þingsins á eftir
Jafnaðarmannaflokknum og Danska þjóðar-
flokknum.
Ekki er þetta eina minnihlutastjórn Dan-
merkur þar sem Venstre situr einn að borði. Árið
1973 myndaði Venstre minnstu minnihlutastjórn í
sögu Danmerkur með aðeins 22 þingsætum, sem
sat í 14 mánuði áður en hún féll og vinstristjórn
tók við.
Fram hefur komið í dönskum fjölmiðlum að
ein stærsta ástæða þess að ekki náðist stjórnar-
samkomulag milli Venstre og annarra flokka er
stefna Venstre að lækka hátekjuskatt. Ljóst er að
það verður erfitt fyrir Venstre að koma málum
sínum í gegnum þingið án mikilla málamiðlana við
aðra flokka, en í hvert sinn sem ríkisstjórnin vill
koma lögum í gegnum þingið mun hún þurfa að
semja við Danska þjóðarflokkinn, Íhaldsflokkinn
og hin frjálshyggnu Samtök frjálslyndra.
Rasmussen sagði við fjölmiðla eftir athöfnina hjá
drottningunni að honum væri fullkomlega ljóst að
hann væri í minnihlutastjórn sem þyrfti að vinna
með öðrum flokkum.
Venstre myndar minnihlutastjórn
Allir ráðherrar ríkisstjórnar koma úr röðum Venstre Stefnt að því að stöðva skuldasöfnun
ríkissjóðs árið 2020 Síðast þegar Venstre sat einn í minnihlutastjórn féll stjórnin eftir 14 mánuði
AFP
Amalíuborg Venstre er með 34 af 179 þingsætum og mun þurfa að vinna náið með öðrum flokkum.
Stjórnarsáttmálinn
» „Sammen for fremtiden“
er yfirheiti stjórnarsáttmálans,
sem leggur áherslu á vöxt og
öryggi Danmerkur.
» Koma á reglu á fjármál
danska ríkisins. Rétta á af
halla á ríkissjóði Danmerkur
þannig hann nái jafnvægi árið
2020.
» Hækka á eftirlaunaaldur-
inn.
» Öflugri aðgerðir boðaðar
gegn skipulagðri glæpastarf-
semi.
» Engar skattahækkanir á
kjörtímabilinu.
» Landamæraeftirlit Dan-
merkur verður styrkt.
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Evrópski seðlabankinn ákvað í gær að
halda lánalínum opnum til Grikklands
en upphæðir munu haldast óbreyttar.
Grískir bankar eru háðir lausafjárað-
stoð evrópska seðlabankans, ELA,
gegn áhlaupi almennings og fjár-
magnseigenda á bankakerfið.
Forsætisráðherra Grikklands til-
kynnti í gær að bönkum yrði lokað og
fjármagnshöftum komið á. Talið er að
bankarnir verði lokaðir til 7. júlí,
tveimur dögum eftir að þjóðarat-
kvæðagreiðslu um aðhaldsaðgerðir
sem lánardrottnar setja sem skilyrði
fyrir frekari neyðarlánum, kemur
fram hjá BBC.
Vantrú almennings og fjárfesta á
gríska bankakerfinu jókst talsvert
eftir að boðað var til þjóðaratkvæða-
greiðslunnar. Langar raðir hafa fyrir
utan hraðbanka því almenningur tel-
ur fé sitt öruggara í heimahúsum en
hirslum bankanna og erlendir fjár-
magnseigendur voru í óðaönn að
flytja fjármagn sitt úr landinu. Frá
því á föstudag hafa 1,3 milljarðar evra
verið fluttir úr grískum bönkum og
haft er eftir ónafngreindum heimild-
armanni á fréttaveitu AFP að aðeins
40% grískra hraðbanka hafi einhverja
peninga að geyma. Jók þetta allt
pressuna á grísk stjórnvöld að loka
mörkuðum og koma á fjármagnshöft-
um til að stöðva útflæði fjármagns og
vernda gríska bankakerfið.
Hætta á greiðslufalli á morgun
Núverandi björgunarpakki Evr-
ópusambandsins til Grikklands renn-
ur úr gildi á morgun, sama dag og
Grikkland þarf að standa skil á 1,5
milljarða evra skuld við Alþjóðagjald-
eyrissjóðinn, og talsverð hætta er á
greiðslufalli. Búið er að bjóða Grikk-
landi nýjan björgunarpakka, en
gríska ríkisstjórnin sagði skilyrði að-
haldsaðgerða björgunarpakkans
óraunhæf og hefur boðað til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um björgunarpakk-
ann 5. júlí. Ríkisstjórnin fór fram á að
núverandi björgunarpakki yrði fram-
lengdur þangað til niðurstaða lægi
fyrir úr þjóðaratkvæðagreiðslunni en
sú bón hefur ekki verið samþykkt.
Fjármálaráðherra Grikklands,
Yanis Varoufakis, sagði við BBC í
gær að þetta væri svört stund fyrir
Evrópu. „Engu að síður höfum við
hreina samvisku. Við vitum að við höf-
um lagt okkur alla fram við að koma
til móts við þríeykið (framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins, Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn og Seðlabanka Evr-
ópu), evrópska samstarfsaðila okkar,
og þeir hafa ekki komið að samninga-
borðinu; þeir hafa ekki mætt okkur á
miðri leið, ekki einu sinni á fjórðungi
leiðarinnar.“
Skuldaskil hjá Grikklandi á morgun
AFP
Bankaáhlaup Grikkir bíða í röðum eftir að komast í hraðbanka.
Flestir hraðbankar í Grikklandi eru
tómir og raðir fyrir utan þá sem virka
Ómönnuð eld-
flaug frá SpaceX
sprakk innan við
þremur mínútum
frá því að henni
var skotið á loft
frá Cape Canave-
ral í Flórída í gær
til Alþjóðageim-
stöðvarinnar. Er
þetta þriðja skipt-
ið á árinu sem eldflaug á leið til Al-
þjóðageimstöðvarinnar með vistir
springur. Vekur þetta spurningar
um flutningsöryggi vista til geimfar-
anna í geimstöðinni.
Eldflaugin sprakk á fyrsta stigi
flugsins, áður en geimfarið hafði
skilið sig frá eldflauginni og komist
á braut um jörðu. Elon Musk, eig-
andi Space X, sagði á Twitter í gær
að vandamálið tengdist of miklum
þrýstingi í tanki fyrir fljótandi súr-
efni.
Eldflaug
með vistir
sprakk
Fyrsta stórslysið
hjá SpaceX
SpaceX 1,4 tonn af
vistum glötuðust.
Þýska utanríkisráðuneytið hef-
ur gefið út tilmæli til þýskra
ferðamanna á leið til Grikk-
lands að taka með sér „nægi-
lega mikið reiðufé“, segir í
frétt frá AFP.
Enn fremur hvetur ráðu-
neytið ferðamenn til að fylgj-
ast vel með þróun mála í
Grikklandi og athuga reglulega
hvort ný tilmæli hafi verið sett
fram af ráðuneytinu, en landið
er einn af vinsælustu áfanga-
stöðum þýskra ferðamanna.
Viðvörun
ÞÝSKIR FERÐAMENN