Morgunblaðið - 29.06.2015, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 180. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 460 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
1. „Forrest Gump í þúsundasta skipti“
2. Pétur Blöndal látinn
3. Krafinn um gjald með þrífótinn
4. Einkunnir verða gefnar í bókstöfum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Camus kvartett kemur fram á
næsta djasskvöldi KEX Hostels annað
kvöld, þriðjudagskvöld, klukkan
20.30. Kvartettinn skipa Sölvi Kol-
beinsson á saxófón, Rögnvaldur Borg-
þórsson á gítar, Birgir Steinn
Theodórsson á bassa
og Óskar Kjartansson á
trommur. Kvartettinn
leikur eigið efni og
verk eftir Miles Dav-
is, Wayne Shorter,
Will Vinson og
fleiri.
Camus kvartett
á djasskvöldi KEX
Fimmtu og síð-
ustu tónleikarnir
á hátíðinni
„Þriðjudagskvöld
í Þingvallakirkju“
verða annað kvöld
klukkan 20.00.
Einar Jóhannes-
son, klarínettu-
leikari og skipu-
leggjandi hátíðarinnar, kemur þá
fram ásamt Amy Cardigan fiðluleik-
ara og Michael Higgins organista.
Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt
með blöndu af þjóðlögum og verkum
eftir tónskáld á borð við Atla Heimi.
Fjölbreytt tónlist
í Þingvallakirkju
Stór veggverk úr hrauni og gleri
eftir listakonuna Rögnu Róberts-
dóttur verða sýnd á metnaðarfullri
samsýningu sem opnuð verður í Jane
Lombard Gallery í New York á mið-
vikudaginn kemur, 1. júlí. Sýningar-
stjóri er Gregory Volk, sem hefur
unnið talsvert með íslenskum lista-
mönnum á síðustu árum.
Veggverk Rögnu
sýnd í New York
Morgunblaðið/Einar Falur
Á þriðjudag Norðaustan 5-13 m/s en 10-15 með suðaustur-
ströndinni. Bjartviðri vestantil, annars skýjað og fer að rigna syðra
og eystra síðdegis. Hiti frá 8 stigum austast, upp í 18 stig vestra.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, víða 5-13 m/s. Bjartviðri vest-
an- og norðvestanlands en rigning eða súld með köflum syðra og
eystra. Hiti víða 12 til 20 stig, hlýjast á Vesturlandi.
VEÐUR
FH-ingar juku forskot sitt á
toppi Pepsi-deildarinnar í
knattspyrnu í gærkvöld
með því að leggja Fjölnis-
menn að velli á Fjölnisvell-
inum. FH hefur tveggja
stiga forskot á KR-
inga þegar 10 um-
ferðum er lokið en
KR-ingar skutust
upp fyrir Breiðablik
þegar þeir lögðu ný-
liða Leiknis á KR-
vellinum. »2-7
FH-ingar juku for-
skotið á toppnum
Enska kvennalandsliðið er komið í
undanúrslit á HM í knattspyrnu í
fyrsta sinn í sögunni eftir að hafa
slegið gestgjafana í Kanada út í átta
liða úrslitunum. England mætir
heimsmeisturum Japan í undan-
úrslitum og Þýskaland mætir Banda-
ríkjunum. »8
England í undanúrslit
á HM í fyrsta sinn
Eyjamenn unnu sætan sigur
gegn Breiðabliki þegar liðin átt-
ust við í 10. umferð Pepsi-deildar
karla í knattspyrnu á Hásteins-
vellinum í Vestmannaeyjum í
gær. Þar með töpuðu Blikarnir
sínum fyrsta leik í deildinni á
tímabilinu. Það voru þeir Jonath-
an Glenn og Víðir Þorvarðarson
sem skoruðu mörk ÍBV. »7
Sætur sigur ÍBV
gegn Breiðabliki
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Brynja Dögg Guðmundsdóttir Briem
brynjadogg@mbl.is
Ernest J. Horsfall heimsótti land og
þjóð um helgina. Horsfall er breskur
verkfræðingur sem starfar enn sem
skoðunarmaður flugvéla þó að hann
sé orðinn 97 ára. „Ég lít svo á að ég
sé farinn á eftirlaun en ég er þó enn
með gilt skoðunarskírteini og að-
stoða oft flugmenn sem til mín leita.
Það geri ég þó eingöngu af áhuga og
myndi aldrei taka greiðslu fyrir,“
segir Horsfall.
Ráðgjöf hans snýr að öryggisvott-
unum á flugvélum, en hann sér til
þess að flugvélar uppfylli öryggis-
staðla. Í dag sinnir hann meira hlut-
verki verkstjóra, kemur ekki beint
að vélinni heldur skipuleggur, segir
til og tekur ákvarðanir. Flestir vinir
hans á Íslandi eru einkaflugmenn og
hefur Horsfall aðstoðað marga
þeirra við viðgerðir á flugvélum. „Ég
hjálpa við að endurbyggja flugvélar,
alls konar vélar en helst minni vélar.
Það kemur á óvart hve margir á Ís-
landi byggja sínar eigin vélar,“ segir
Horsfall. „Árið 2000 kom ég til
landsins að endurbyggja vél, þeir
báðu mig um að vera í sex mánuði en
ég vildi bara stoppa í tvær vikur. Ég
gaf þeim tvær vikur af lífi mínu. Við
náðum að endurbyggja vélina alveg,
það voru tvö lið í þessu sem unnu 48
tíma á dag,“ segir Horsfall, en um
helgina skoðaði hann vélina, sem
flýgur enn í góðu ástandi.
Lærði í hernum
Horsfall fæddist í lok fyrri heims-
styrjaldar en í seinni heimsstyrjöld-
inni starfaði hann sem liðþjálfi fyrir
herinn og lærði meðal annars að
gera við vélar. Horsfall vill þó ekki
gera mikið úr hlutverki sínu. Hann
hefur víða ratað, má þar helst nefna
Egyptaland, Ítalíu, Afríku, Júgó-
slavíu, Frakkland, Þýskaland, Belg-
íu og Holland. Aðspurður segir hann
þó að það ánægjulegasta sem hann
Sækir í vináttuna og vélarnar
Ferðast oft til
Íslands til að
skoða flugvélar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslandsvinur Horsfall á marga íslenska vini og hefur reynst þeim flugmönnum vel sem þegið hafa aðstoð hans.
hafi gert sé að hafa kynnst Margréti
vinkonu sinni, sem hann reynir að
hitta eins oft og kostur gefst.
Sækir í einlæga vináttu
Horsfall hefur reynt að sækja Ís-
land að minnsta kosti árlega á síð-
ustu 15 árum en segir að hann
myndi vilja koma oftar ef veðrið
væri betra. Hér á landi á hann góða
vinkonu sem er honum afar kær, en
þau kynntust fyrir 14 árum. Fyrsta
heimsókn Horsfall til Íslands var ár-
ið 1991, en fjórir Íslendingar höfðu
leitað eftir aðstoð hans við að gera
við flugvél. Heimsóknirnar hafa ver-
ið ófáar síðan, helst um sumar-
tímann og þá reynir hann að verja
tímanum með Margréti vinkonu
sinni.
Ernest Horsfall hefur starfað sem
flugvélaskoðunarmaður frá árinu
1970 og er enn með gilt skoðunar-
skírteini. Flugvélar hafa lengi verið
aðaláhugamál Horsfalls, en hann
hefur á ferli sínum smíðað tvær
flugvélar og gert við fjölmargar.
Aldrei hefur hann þó langað til að
starfa sem flugmaður og stjórna
flugvélunum með þeim hætti held-
ur þykir honum skemmtilegra að
gefa skipanir frá jörðu niðri.
Horsfall er tækjakarl ef svo má
að orði komast, en hann á hvítan
þrennra dyra turbo-charge BMW
og tvö mótorhjól sem hann nýtir til
að þeysast um hraðbrautir Bret-
lands.
Hann er við góða heilsu og er
skýr viðmælandi. „Ég er vel á mig
kominn líkamlega, það verður því
líklega ellin sem drepur mig,“
segir Ernest Horsfall glettinn í
bragði.
Kýs frekar að stjórna frá jörðu
ÞEYSIST UM HRAÐBRAUTIR BRETLANDS