Morgunblaðið - 08.06.2015, Page 2

Morgunblaðið - 08.06.2015, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. JÚNÍ 2015 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. Á AKRANESI Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Það voru Fylkismenn sem gengu svekktir af leikvelli á Akranesi í gær þar sem niðurstaðan varð marka- laust jafntefli gegn ÍA í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Fylkismenn voru sterkari og líklegri allan leik- inn, sem einkenndist af mikilli bar- áttu, en það var færanýting þeirra í leiknum sem varð þeim að falli. Þeir fengu meira en nóg af færum til þess að klára þennan leik. Leikmenn Fylkis voru líklega ennþá pirraðir eftir 3:0 tap gegn Val í síðustu umferð og Ásmundur Arnarsson, þjálfari þeirra, gerði fjórar breytingar á liðinu frá þeim leik. Það var alveg ljóst frá fyrstu mínútu að leikmenn liðsins voru vel gíraðir í leikinn en þetta var bara einn af þessum dögum þar sem bolt- anum var ekki ætlað að fara í netið. Fylkismenn litu vel út í upphafi móts en níu stig úr sjö umferðum eru von- brigði. Það var hin fræga Skagabarátta sem skilaði ÍA stigi í gær. Eftir fjóra tapleiki í röð gáfu leikmenn liðsins Árbæingum ekkert eftir og spjöldin fimm sem liðið fékk voru engin til- viljun og hefðu vel getað verið fleiri. Sóknarleikur liðsins er hins vegar steindauður. Liðið kemur sér oft í fínar stöður framarlega á vellinum en nær ekki að brjóta upp skipulagð- ar varnir andstæðingana. Það er eig- inlega svakalegt hversu mikið liðið saknar Garðars Gunnlaugssonar í fremstu víglínu. Jón Vilhelm Ákason, einn af reyndari leikmönnum ÍA, var ánægður með baráttuna í liðinu og stigið sem liðið fékk að lokum og heldur liðinu fyrir ofan ÍBV og Keflavík á botinum. „Úr því sem komið var og miðað við frammistöð- una í undanförnum tveimur leikjum. Við tókum góðan fund eftir síðasta leik þar sem ætlunin var að fara aft- ur í grunnatriðin. Við vildum byrja á því að djöflast og berjast og fá það inn í leik okkar,“ sagði Jón Vilhelm við Morgunblaðið eftir leik, en hann segir það ljóst að Skagamenn þurfi að sýna viðlíka baráttu og í þessum leik til að halda sér í deildinni. Skagamenn aftur í grunnatriðin  Fylkismenn fengu færin til að klára ÍA í gær  Stigið heldur ánægðum Skagamönnum fyrir ofan fallsæti Norðurálsvöllurinn, Pepsi-deild karla, 7. umferð, sunnudaginn 7. júní 2015. Skilyrði: Völlurinn í góðu standi en talsverður vindur. Skot: ÍA 3 (1) – Fylkir 13 (3). Horn: ÍA 2 – Fylkir 6. ÍA: (4-4-2) Mark: Árni Snær Ólafsson. Vörn: Þórður Þ. Þórðarson, Ármann Smári Björnsson, Arnór S. Guð- mundsson (Gylfi Veigar Gylfason 82), Darren Lough. Miðja: Jón Vilhelm Ákason (Ásgeir Marteinsson 67), Ingi- mar Elí Hlynsson, Albert Haf- steinsson, Ólafur Valdimarsson (Arn- ar Már Guðjónsson 87). Sókn: Arsenij Buinickij, Marko Andelkovic. Fylkir: (4-3-3) Mark: Bjarni Þ. Hall- dórsson. Vörn: Andrés Már Jóhannes- son, Tonci Radovnikovic, Ásgeir Ey- þórsson, Tómas Þorsteinsson. Miðja: Jóhannes Karl Guðjónsson, Oddur Ingi Guðmundsson (Ásgeir Arnþórs- son 70), Ásgeir Börkur Ásgeirsson. Sókn: Ingimundur N. Óskarsson (Davíð Einarsson 78), Albert B. Inga- son, Ragnar Bragi Sveinsson. Dómari: Pétur Guðmundsson – 6. Áhorfendur: 754. ÍA – Fylkir 0:0 Í FOSSVOGI Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Þegar stigasöfnun tímabils er gerð upp að hausti eru það eins marks seiglusigrarnir á útivelli sem vega einna þyngst og ráða mestu um gæfu og gengi fótboltaliða. Enn er aðeins tæpur þriðjungur Íslands- mótsins að baki og of snemmt að fullyrða um stöðu FH-inga í móts- lok. En fari leikar eins og flestir spá og Hafnarfjarðarliðið hampi Ís- landsbikarnum í haust mun sigurinn á Víkingsvellinum í gærkvöld verða einn þeirra sem koma upp í huga þeirra hafnfirsku. Þeir sigruðu 1:0 í Fossvoginum með marki Bjarna Þórs Viðarssonar í byrjun síðari hálfleiks. Fyrsta mark hans í efstu deild hér á landi og við hæfi að það væri frændi hans, hægri bakvörðurinn Jón Ragnar Jónsson, sem var maðurinn á bak við það með flottri fyrirgjöf. Eins marks útisigur, við erfiðar aðstæður. Völlurinn var fljótur að láta á sjá þó að hann hafi litið vel út áður en flautað var til leiks. Eins marks útisigur í leik þar sem fínheit- in í fótboltanum voru af skornum skammti en meira skipti að vera með rétt stillt hugarfar, leikaðferð og vera klár í bardagann. Það voru FH-ingar, en þeir máttu líka þakka fyrir að hafa brunað suð- ur brautina með þrjú stig. Eftir af- spyrnu tíðindalítinn fyrri hálfleik voru Víkingarnir þeim hættulegir í þeim síðari. Arnþór Ingi Kristinsson skallaði í stöng strax í byrjun, hefði þar getað komið Víkingum yfir, og svo var Andri Rúnar Bjarnason hársbreidd frá því að jafna þegar hann átti hörkuskot í stöng rúmum 20 mínútum fyrir leikslok. Í fleiri skipti skall hurð nærri hælum í víta- teig FH-inga, sem sjálfir fengu reyndar sín færi til að gera endan- lega út um leikinn. Sigurinn þýðir fyrir FH-inga að þeir eru einir á toppi deildarinnar. Þeir nýttu sér að bæði KR og Stjarnan töpuðu en sem stendur eru það Blikar sem ógna mest stöðu Hafnfirðinganna. Gæðin og styrkur- inn í FH-liðinu eru öllum ljós. Davíð Þór Viðarsson var besti maður FH- inga lengi vel og stjórnaði umferð- inni á miðjunni, sérstaklega í fyrri hálfleiknum. Í seinni hálfleik voru það miðverðirnir Kassim Doumbia og Pétur Viðarsson sem höfðu mest að gera gegn vaxandi sóknarþunga Víkinga og þeir stigu fá feilspor. Víkingar léku þarna sjötta leikinn í röð án sigurs, töpuðu þeim þriðja í röð, og þeir hafa ekki unnið síðan í fyrstu umferðinni. Staða þeirra versnar stöðugt, þeir eru aðeins tveimur stigum frá fallsæti og þetta er ekki sú barátta sem menn vonuð- ust eftir í Víkinni eftir óvæntan ár- angur í fyrra. Það var hins vegar sitthvað jákvætt í leik þeirra í gær- kvöld. Í fyrri hálfleik lokuðu þeir nánast algjörlega á allt hjá FH- ingum og í þeim síðari létu þeir Hafnfirðingana heldur betur hafa fyrir hlutunum. Rolf Toft var þá drifkrafturinn í sóknarleiknum eftir að hafa lítið komist inn í leikinn í fyrri hálfleik. Frændurnir færðu FH sigur  Jón Ragnar lagði upp sigurmarkið gegn Víkingi fyrir Bjarna  FH-ingar efstir en Víkingar án sigurs í sex leikjum Morgunblaðið/Golli Olnbogi Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH-inga, lét finna vel fyrir sér í leiknum gegn Víkingi í gær eins og Ívar Örn Jónsson fékk að kynnast. Víkingsvöllur, Pepsi-deild karla, 7. umferð, sunnudaginn 7. júní 2015. Skilyrði: Sunnanvindur, 7 stiga hiti, skúrir. Völlurinn fljótur að láta á sjá. Skot: Víkingur 6 (3) – FH 6 (4). Horn: Víkingur 1 – FH 4. Víkingur R.: (4-5-1) Mark: Thomas Nielsen. Vörn: Tómas Guðmundsson, Milos Zivkovic, Alan Lowing, Halldór Smári Sigurðsson. Miðja: Davíð Örn Atlason (Atli Fannar Jónsson 81), Dofri Snorrason, Igor Taskovic (Vikt- or Bjarki Arnarsson 75), Arnþór Ingi Kristinsson, Ívar Örn Jónsson (Andri Rúnar Bjarnason 60). Sókn: Rolf Toft. FH: (4-4-2) Mark: Róbert Örn Ósk- arsson. Vörn: Jón Ragnar Jónsson, Pétur Viðarsson, Kassim Doumbia, Böðvar Böðvarsson. Miðja: Jérémy Sewry (Kristján Flóki Finnbogason 88), Davíð Þór Viðarsson, Bjarni Þór Viðarsson, Sam Hewson (Þórarinn Ingi Valdimarsson 73). Sókn: Atli Guðnason (Brynjar Á. Guðmundsson 81), Steven Lennon. Dómari: Erlendur Eiríksson – 7. Áhorfendur: 1.512. Víkingur R. – FH 0:1 I Gul spjöld:Ingimar Elí (ÍA) 19. (brot) Þórður Þorsteinn (ÍA) 39. (brot), Ragnar (Fylki) 45. (brot), Ásgeir B. (Fylki) 63 (brot), Albert (ÍA) 64. (brot), Andelikovic (ÍA) 70. (brot) Árni Snær (ÍA), 81. (leiktöf). M Arnór Snær Guðmundsson (ÍA) Ármann Smári Björnsson (ÍA) Darren Lough (ÍA) Andrés Már Jóhannesson (Fylki) Ragnar Bragi Sveinsson (Fylki) Tómas Þorsteinsson (Fylki) 0:1 Bjarni Þór Viðarsson 51.með skalla eftir fyrirgjöf Jóns Ragnars Jónssonar frá hægri. I Gul spjöld:Davíð (FH) 45. (brot), Dofri (Víkingi) 45. (leikaraskapur), Do- umbia (FH) 59. (brot), Tómas (Vík- ingi) 68. (brot), Arnþór (Víkingi) 68. (mótmæli). M Thomas Nielsen (Víkingi) Rolf Toft (Víkingi) Dofri Snorrason (Víkingi) Milos Zivkovic (Víkingi) Davíð Örn Atlason (Víkingi) Pétur Viðarsson (FH) Kassim Doumbia (FH) Davíð Þór Viðarsson (FH) Jón Ragnar Jónsson (FH) Böðvar Böðvarsson (FH)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.