Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2009, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2009, Síða 4
miðvikudagur 11. mars 20094 Fréttir Þórlindur Kjartansson og Erla Ósk Ásgeirsdóttir voru meðal þeirra sem stunduðu markaðsrannsóknir fyrir Ic- esave-reikningana áður en bankinn var ríkisvæddur. Verksvið þeirra var að kanna hvort grundvöllur væri fyrir því að fara með Icesave-reikningana til annarra landa en til Bretlands og Hol- lands, meðal annars til Noregs. Erla og Þórlindur segja að þó hafi aldrei orð- ið af frekari útbreiðslu Icesave til ann- arra landa þar sem bankinn hafi verið ríkisvæddur áður en til þess kom. Þórlindur og Erla eru bæði fram- bjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík sem fram fer á laugardaginn. Vann að frekari markaðssetn- ingu Icesave Erla Ósk segir að hún vinni og hafi fyrir efnahagshrunið í haust unnið í mark- aðsdeild Landsbankans. Síðustu þrjá mánuðina fyrir ríkisvæðingu bankans vann hún að markaðsrannsóknum þar sem kannað var hvort grundvöllur væri fyrir því að opna Icesave-reikn- ingana í öðrum löndum. Hún segir aðspurð að ekkert hafi orðið úr áformum um að fara með Ic- esave-reikningana til annarra landa. „Þeir voru bara í þessum tveimur löndum. Hitt var allt í farvegi þegar bankinn var ríkisvæddur,“ segir Erla Ósk en að hennar sögn var Lands- bankinn að skoða grundvöllinn fyrir því að opna Icesave í „fjölmörgum“ löndum við fall bankans. Hún vill þó ekki gefa upp hvaða lönd um ræð- ir. Aðspurð segir Erla Ósk að nokkrir starfsmenn Landsbankans hafi unnið að útbreiðslu Icesave. Erla segist aðspurð ekki hafa unn- ið að því að selja Icesave-reikningana til aðila og stofnana í Bretlandi og Hol- landi því erlendir aðilar hafi alfarið séð um það. Erla segir aðspurð að sér þyki ekk- ert óeðlilegt við að svara spurningum um aðkomu sína að Icesave-reikn- ingunum. „Mér finnst sjálfsagt að svara spurningum um þetta og gera hreint fyrir mínum dyrum hvað varð- ar aðkomu mína að Icesave,“ segir Erla Ósk. Nágrannalöndin voru í skoðun Þórlindur Kjartansson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, segir að Landsbankinn hafi gefið það út nokkru fyrir efnahagshrunið að hann hygðist bjóða Icesave-reikning- ana víðar og að hann hafi unnið við að kanna grundvöllinn fyrir því. „Við könnuðum hvernig markaðirnir væru og hvort það væri líklegt að vara eins og Icesave myndi njóta hylli á við- komandi mörkuðum. Það var hins vegar ekki mjög langt á veg komið þegar þetta hrundi allt saman,“ seg- ir Þórlindur. Hann segir aðspurður að Landsbankinn hafi verið að skoða möguleikann á því að opna Icesave- reikningana í nokkrum nágranna- löndum okkar, meðal annars í Noregi. Þórlindur undirstrikar að ekk- ert hafi þó orðið af þessari frekari út- breiðslu Icesave-reikninganna og að hann hafi ekkert komið að því að ákveða fyrirkomulagið á Icesave- reikningunum í Bretlandi og Hollandi né að markaðssetja reikningana þar. Hann segir að erlendir aðilar, en ekki íslenskir, hafi unnið að markaðssetn- ingu Icesave í Bretlandi og Hollandi. Þórlindur segir að hann skammist sín ekki fyrir það sem hann gerði í vinn- unni sinni í Lands- bankanum. „Ég myndi ekki taka þátt í prófkjör- inu nema af því að ég hef hrein- an skjöld. Mér finnst allt í lagi að tala um þetta því reynsl- an sem ég fékk í bankan- um get- ur nýst til góðra hluta í framtíðinni,“ segir Þórlindur. Erla Ósk Ásgeirsdóttir og Þórlindur Kjartansson unnu við markaðsrannsóknir fyrir Icesave áður en bankinn var ríkisvæddur. Markmið Landsbankans var að bjóða upp á Icesave í öðrum löndum en Bretlandi og Hollandi og unnu Erla Ósk og Þórlindur við að kanna möguleikana á því. Þau eru bæði frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fer á laugardaginn. FRAMBJÓÐENDUR UNNU AÐ ÚTBREIÐSLU ICESAVE INgI F. VIlhjÁlmssoN blaðamaður skrifar ingi@dv.is „Við könnuðum hvernig markaðirnir væru og hvort það væri líklegt að vara eins og Icesave myndi njóta hylli á viðkomandi mörkuðum.“ höfuðstöðvar landsbankans Tveir af frambjóðendunum í prófkjöri sjálfstæðisflokksins í reykjavík, Þórlindur kjartansson og Erla Ósk Ásgeirsdóttir, unnu að markaðsrannsóknum fyrir frekari útbreiðslu icesave. hefur ekkert að fela Erla Ósk Ásgeirsdóttir segir að henni finnist sjálfsagt að svara fyrirspurnum um aðkomu sína að icesave- reikningum Landsbankans því hún hafi ekkert að fela. Nágrannalöndin skoðuð Þórlindur kjartansson segir að það hafi verið til skoðunar að bjóða upp á icesave- reikninga í nágrannalöndum okkar, meðal annars í Noregi. Gríðarlegur eldur á þaki Síðumúla 34 ógnaði stærsta tónverkasafni Íslands: Átta þúsund tónverkum bjargað Allt tiltækt slökkvilið var kallað út rétt fyrir fjögur í gær þegar eldur kviknaði í þaki Síðumúla 34. Verkamenn höfðu verið þar að störfum við að brenna tjörupappa á þak hússins þegar eldurinn kviknaði. Mikil menningarleg verðmæti eru í húsinu á þriðju hæð en þar er safn átta þúsund íslenskra tónverka. Íslenska tónverkamiðstöðin heldur utan um safnið en Kjartan Ólafsson tónskáld er meðal þeirra sem hafa barist fyrir því að fá betri geymslustað undir þessi miklu menningarverðmæti. Kjart- an og Sigfríður Björnsdóttir, fram- kvæmdastjóri Íslensku tónverkamið- stöðvarinnar, voru í húsinu þegar það kviknaði í. „Á meðan eldurinn brann þá kláraðist að taka „backup“ af gagna- grunni Íslensku tónverkamiðstöðvar- innar. Það virðist allt hafa bjargast en það munaði ekki miklu,“ segir Kjartan og bætir við að tónverkin séu eign þjóð- arinnar og hafi gríðarlega mikla þýð- ingu fyrir menningararfleið Íslands. „Þetta fór betur en á horfðist en við erum búnir að berjast fyrir því lengi að þessu safni verði komið á góðan stað því ef þetta brennur þá er ekki hægt að bæta það. Þetta ættu því að vera skýr skilaboð,“ segir Kjartan. DV ræddi einnig við Sigfríði sem var á staðnum en hún náði aðeins að bjarga einum hörðum diski úr tölvu safnsins áður en henni var gert að yfirgefa húsið. „Ef það verða miklar vatnsskemmd- ir þarna þá er mikil hætta á að þetta glatist,“ sagði Sigfríður sem beið upp- lýsinga frá slökkviliðinu. Á meðan DV ræddi við Sigfríði kom talsmaður frá slökkviliðinu aðvífandi og tjáði henni að safninu væri borgið og að hún þyrfti ekki að hafa áhyggjur af því að safn- ið myndi skemmast. Sigfríður hopp- aði hæð sína af gleði en rauk síðan af stað í fylgd slökkviliðsmanna til þess að koma í veg fyrir að tölvubúnaður safns- ins yrði fyrir frekara hnjaski. safnið bjargaðist sigfríður Björnsdóttir framkvæmdastjóri Íslensku tónverkamiðstöðvarinnar var að vonum ánægð með þær fréttir að safnið hafi bjargast. Færeyskir trygg- ingavíkingar Færeyskir útrásarvíkingar vilja hasla sér völl í íslenska trygg- ingageiranum. Færeyingarnir ásælast Sjóvá, Tryggingamið- stöðina, VÍS eða Vörð í því skyni að koma undir sig fótunum á íslenskum markaði. Edvard Heen, framkvæmdastjóri trygg- ingafélagsins Föroyar, er hér á landi í þessu skyni. Edvard hef- ur staðfest að viðræður hafi átt sér stað við eigendur íslensku tryggingafélaganna og stefnt sé að því að selja Íslendingum tryggingar á næstu mánuðum. Framkvæmdastjórinn segir í samtali við Ríkisútvarpið að verð á færeysku tryggingunum eigi að verða samkeppnishæft við það sem gerist hérlendis. Stakk mann Héraðsdómur Reykjavíkur hef- ur dæmt átján ára pilt í átján mánaða fangelsi fyrir að stinga karlmann að morgni nýársdags í versluninni 10-11 við Lágmúla í Reykjavík. Árásarmaðurinn var meðal annars ákærður fyrir að stinga manninn í andlit og bak með þeim afleiðingum að fórnarlambið hlaut skurðsár á andliti og herðablaði. Fram kemur í greinargerð læknis að ákærði sé hvatvís, eigi erfitt með að aðlagast, hafi lélegt innsæi og dómgreind á eigin hegðun, geti verið hömlulaus og sé að mörgu leyti vanþroska. Þá segir í greinargerðinni að ákærði iðrist einskis og útiloki í raun ekki að endurtaka „svona aftur gagnvart lituðum manni“. Íbúðalána- sjóður öruggur Samkvæmt yfirlýsingu frá Íbúðalánasjóði hefur yfirtaka Fjármálaeftirlitsins á Straumi í fyrradag ekki áhrif á fjár- hagslega stöðu Íbúðalána- sjóðs. „Laust fé sjóðsins hefur einvörðungu verið ávaxtað á innlendum innlánsreikning- um og með ríkisverðbréfum frá hruni bankanna í október síðastliðnum. Samkvæmt yf- irlýsingu ríkisstjórnar Íslands frá þeim tíma, eru innstæður í íslenskum bankastofnunum tryggðar að fullu. Samkvæmt neyðarlögum nr. 125/2008 eru innlán einnig forgangs- kröfur við gjaldþrotaskipti.“ Hámarksupphæð hækkuð Ríkisstjórnin áformar að hækka hámarksupphæð vaxtabóta um 25 prósent. Tillaga um þetta var kynnt á ríkisstjórnarfundi í gær og afgreidd til þingflokka stjórn- arflokkanna. Jóhanna Sigurðar- dóttir forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi í gær að þær skatttekjur sem fást af séreign- arsparnaði verði nýttar í þessu augnamiði en um tvo milljarða sé að ræða. Þá kynnti hún jafn- framt greiðsluaðlögun heimila sem nær einnig til veðkrafna en það frumvarp sem Alþingi hefur til meðferðar nær einungis til samningskrafna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.