Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2009, Síða 22
miðvikudagur 11. mars 200922 Fólkið
Dr. Gunni var fenginn til þess að
sýna lesendum Morgunblaðsins
myndir úr albúmi sínu síðast-
liðna helgi. Þar mátti sjá myndir
úr lífi kappans frá barnæsku til
dagsins í dag. Þar á meðal er
mynd sem tekin er í Finnlandi
þar sem Dr. Gunni er að grilla
pylsur ásamt tveimur Finn-
um, þeim Keuhkot og Radikan-
en. Á myndinni eru Finnarnir
tveir naktir og tók Morgunblað-
ið upp á því að blörra typpinn
á köppunum. „Ég hélt að tillar
væri ókei eins lengi og þeir væru
ekki í bullandi standpínu og þar
af leiðandi orðnir dónalegir og
ógn við femínísk gildi,“ segir Dr.
Gunni á bloggsíðu sinni. Hann
birtir síðan myndina óblörraða.
„Mjög listræn mynd, finnst mér.“
Ásdís Rán Gunnarsdóttir sló heldur
betur í gegn er hún í mætti í The Slavi
Show í Búlgaríu. Í dag mun Ásdís koma
fram í vinsælum sjónvarpsþætti sem
nefnist The Azis Show. Að sögn Ásdísar
er þátturinn í anda Jay Leno og er óhætt
að segja að kynnirinn sé heldur betur
skrautlegur.
Á bloggsíðu Ásdísar segist Ásdís
alltaf detoxa fyrir stórar útsendingar. „Ég
reyni að hafa það að reglu að detoxa á
náttúrulegum djús í tvo daga fyrir svona
stórar útsendingar. Það lætur mann líta
fersklega út og hreinsar allan bjúg sem
getur komið út af mat eða víni.“ Ásdís
tekur það einnig fram á síðu sinni að
hún sé að „drepast úr hungri“.
Ásdís hefur í nógu að snúast
þessa dagana. Hún prýðir forsíðu
brúðkaupstímaritsins Bulka í
glæsilegum giftingarkjól. Þetta ku
vera hennar fyrsta forsíða. Búlgarar
fá einnig að bera hana augu í
raunveruleikaþættinum Footballer´s
Wives. Ásdís mun birtast í tveimur
þáttum. hanna@dv.is
Detox fyrir sjónvarpið
Blörruð
typpi
Ásdís RÁn í þekktum spjallþætti:
Arnar Laufdal, framkvæmda-
stjóri Broadway, efnir til heljar-
innar Hollywood-balls 4. apríl
næstkomandi þar sem nostalgí-
an verður í fyrirrúmi. Guðrún
Möller, fyrrverandi fegurðar-
drottning, mun ásamt Jónu
Lárusdóttur sjá um tískusýn-
ingu þar sem eitísklæðnaður-
inn verður sýndur í bak og fyrir.
Kolla og Simbi hárgreiðslu-
meistari taka sitt fræga „bump
show“ fyrir gestina en seinna
um kvöldið mætir Herbert Guð-
mundsson sjálfur og tekur Can‘t
Walk Away-slagarann fyrir gesti.
Fjöldinn allur af fólki hefur boð-
að komu sína, þar á meðal Jón
Axel Ólafsson, Valtýr Björn Val-
týsson, Kiddi Bigfoot, Jón Gerald
Sullenberger, Elín Sveinsdóttir
og Ívar Guðmundsson svo ein-
hverjir séu nefndir.
Ásdís Rán detoxar fyrir
mikilvægar útsendingar.
The Azis show Einn
sá þekktasti í Búlgaríu.
Nostalgíu-
Ball
„Þetta var bara notaleg og góð
stemning,“ segir Högni Egilsson,
söngvari Hjaltalín, um tónleika sveit-
arinnar á Sægreifanum í gær. Hjalta-
lín frumflutti þar útsetningu sína á
Sjómannavalsi sem Svavar Bene-
diktsson samdi við texta Kristjáns frá
Djúpalæk. „Þetta lag og þessi flutn-
ingur markar upphafið að upptöku-
ferlinu fyrir næstu breiðskífu okkar.“
Sjómannavalsinn verður ekki að
finna á þessari annarri breiðskífu
Hjaltalín heldur verður hann ein-
ungis gefinn út á tonlist.is. „Allur
ágóði af sölu lagsins rennur óskipt-
ur til Foreldra- og styrktarfélags
heyrnardaufra,“ en Högni segir lagið
hafa verið hugsað til þess að þjappa
hópnum saman og til að koma sér í
rétta gírinn. „Þetta er gert í tilefni af
betri tíð.“
Fyrsta breiðskífa Hjaltalín heitir
Sleepdrunk Seasons og kom út árið
2007. Platan fékk góða dóma og hefur
ríkt mikil eftirvænting eftir nýju efni
frá sveitinni. Þá sló Hjaltalín rækilega
í gegn með sinni útgáfu af laginu Þú
komst við hjartað í mér á síðasta ári.
Þrátt fyrir að sveitin hafi gaman af
því að útsetja þekkt lög á sinn hátt þá
verður einungis frumsamið efni að
finna á plötunni. „Það er meira bara
hugsað sem æfing eða leikur en ekki
beint partur af því sem hljómsveitin
er að gera í tónlistarsköpun sinni.“
Sigurður Guðmundsson, Senu-
þjófur og Hjálmur, mun stýra upptök-
um á plötunni sem fara fram í Hljóð-
ritanum í Hafnarfirði. „Við erum að
fara að taka upp tvö lög núna sem
við áttum til og höfum verið að spila
á tónleikum en annars munum við
nota næstu mán-
uði til þess að
semja. Aðal-
tökurnar
munu svo
fara fram í
júní,“ segir
Högni. Stefnt er að því að gefa plöt-
una út í haust.
Hjaltalín hefur lítið spilað á Ís-
landi undanfarna mánuði en hefur
verið dugleg erlendis. Sveitin leggur
upp í stuttan Evróputúr á næstunni.
„Við erum á leiðinni út 11. apríl og
spilum á þó nokkrum tónleikum.
Við spilum
í Þýska-
landi,
Aust-
urríki,
Sviss og í
Benelúxlöndunum í tilefni af útkomu
plötunnar okkar þar,“ en útgáfufyrir-
tæki sveitarinnar á þessu svæði sér
um túrinn. Högni lofar svo tónleik-
um hér heima í maí sem munu gleðja
aðdáendur sveitarinnar. „Þá munum
við frumflytja nýtt efni.“
asgeir@dv.is
Hjaltalín frumflutti útgáfu sína af sjómannavalsinum á sægreifanum í gær. Ágóði af sölu
lagsins fer til styrktar Foreldra- og styrktarfélagi heyrnardaufra. tónleikarnir marka
einnig upphafið að upptökuferli næstu breiðskífu sveitarinnar sem kemur út í haust.
FrumFluttu Fyrir
heyrNarDauFa
Hjaltalín:
Hjaltalín styrkti gott
málefni á sægreifanum.
Með Jónasinn sveitin fékk
verðlaun á menningarverð-
launum dv í síðustu viku.