Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2009, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2009, Qupperneq 3
fimmtudagur 19. mars 2009 3Fréttir BORGUÐU BÓNUSA ÓHÁÐ ÁRANGRI kvæmlega að vinna,“ segir Friðbert. Vistarbönd hjá Glitni Annað kerfi sem tíðkaðist hjá Glitni banka fólst í því að starfsmenn sem ráðnir voru til bankans fengu háa greiðslu fyrir að skrifa undir ráðn- ingarsamning. Samningurinn var þó bundinn þeim skilyrðum að starfsmenn fengu hann ekki að fullu greiddan fyrr en þeir höfðu starf- að hjá bankanum í einhvern ákveð- inn tíma. Yfirleitt í eitt til tvö ár eða jafnvel lengur. Samkvæmt heimild- um DV eru dæmi um að eftirsótt- ir starfsmenn hafi fengið greiðslur upp á milljónir fyrir að ganga til liðs við Glitni. Þekktasta dæmið er þó lík- lega Lárus Welding. Hann fékk 300 milljónir fyrir að ráða sig til bankans en hann var áður bankastjóri Lands- bankans í London. „Ég hef heyrt um alls konar átt- hagafjötra eins og þessa. Stundum voru starfsmenn að vinna með skóla og lofuðu að starfa hjá fyrirtækinu að loknu námi. Þetta er vistarband eins og þekktist í gamla daga. Það er hins vegar eðlilegt ef fyrirtæki greið- ir kostnað vegna náms eða eitthvað slíkt að starfsmaður endurgreiði þeim ef hann hættir. Það er hins veg- ar voðalega erfitt að vera að binda starfsmenn í tvö til þrjú ár,“ segir Friðbert. Hann segir hins vegar að æðstu stjórnendur í bönkum séu yf- irleitt ekki félagsmenn hjá Samtök- um starfsmanna fjármálafyrirtækja. Friðbert segir að eftir banka- hrunið hafi allir ráðningarsamn- ingar verið endurskoðaðir hjá bönkunum sem ríkið yfirtók, Landsbankanum, Kaupþingi og Glitni. Hann telur að hið sama hafi verið gert hjá Sparisjóðunum. Hið sama átti ekki við um Straum. Hins vegar ríkir algjör óvissa núna hjá þeim sem störfuðu hjá bankanum. Stjórnvöld taka líklega fljótlega ákvörðun um hvernig starfsemi Straums verður háttað. Lítið eftir Ljóst er að umsvif Björgólfs- feðga fara sífellt minnkandi á Íslandi. Þeir hafa nú misst báða banka sína, straum og Landsbankann. AUÐmeNN Á flÓttA meÐ dÓtAkASSANN Bílageymslan í Faxafeni, sem DV fjallaði um á dögunum, stendur nú auð og segja heimildarmenn að hún hafi verið rýmd eftir umfjöllun blaðsins. Vitni sáu vörubíla ferja hverja lúxusbifreiðina á fætur annarri og voru þær fluttar niður í Sundahöfn. Þar eru þær nú geymdar í húsnæði í eigu Magnúsar Ármanns og fjölskyldu. Lúxusbifreiðarnar, sem DV hefur fjallað um og greindi frá að væru geymdar í bílakjallara í Faxafeni, hafa verið fluttar úr kjallaranum. Mikil leynd hvíldi yfir flutningun- um en í stað þess að keyra lúxus- bifreiðarnar á nýjan stað voru þær fluttar með sérstökum vörubíl. Út- rásarvíkingarnir, sem eiga lúxusbif- reiðarnar, tóku þó sjálfir engan þátt í flutningunum heldur voru fengnir menn sem gengu hratt til verka. Flestir þeirra útrásarvíkinga sem um ræðir hafa flutt eignarhald á bifreiðunum yfir á ættingja sína og unnustur. Þorsteinn M. Jónsson, jafnan kenndur við Kók, er þó enn skráður fyrir öllum sínum lúxusbif- reiðum. Þorsteinn þóttist í samtali við DV ekkert kannast við bílakjall- arann og sagðist aldrei hafa geymt lúxusbifreiðar sínar þar. DV hefur þó undir höndum ljósmyndir af bif- reiðum Þorsteins bæði í bílakjallar- anum í Faxafeni og á nýja staðnum við Sundahöfn. Mikil gæsla Lúxusbifreiðaflutningarnir fóru ekki framhjá neinum sem starfar við Sundahöfn. Starfsmenn á svæðinu segjast fyrst hafa tekið eftir stans- lausri umferð lúxusbifreiða og vöru- bíla nokkrum dögum eftir að DV fjallaði um bílakjallarann í Faxa- feni. Eftir því sem næst verður kom- ist stendur sá bílakjallari nú tómur. Starfsmennirnir furðuðu sig jafn- framt á gæslunni í kringum nýju bíla- geymsluna við Sundahöfn en svört- um Range Rover er ekið um svæðið nokkrum sinnum á dag. AMS eign- arhaldsfélag ehf. er skráð fyrir bíla- geymslunni við Sundahöfn. Félag- ið er í eigu Magnúsar Ármanns sem sat í stjórn FL Group. Með Magnúsi í stjórn AMS eru móðir hans, faðir og systir. Glæsilegur floti Bílaflotinn í Sundaborg er vægast sagt glæsilegur. Inni í geymslunni situr hver lúxusbifreiðin við hlið- ina á annarri. Jeppar, sportbílar og lúxusfólksbílar af öllum stærð- um og gerðum. Það reyndist erfitt að mynda inn í sjálfan bílakjallar- ann þar sem mjög litlir gluggar eru á húsnæðinu. Þó náðist ein mynd sem sýnir Cadillac Escalade-lúx- usbifreið en slíkur gripur er metinn á um níu milljónir íslenskra króna. En hver á bifreiðina? Þegar bílnúmerinu er flett upp í ökutækjaskráningu kemur þar fyr- ir kunnuglegt nafn en það er nafn Steina í Kók eða Þorsteinn M. Jóns- son. Sagði ósatt um geymsluna DV hefur undir höndum ljósmynd- ir sem staðfesta að Þorsteinn hafi verið á meðal þeirra sem geymdu lúx- usbifreiðir sínar í Faxafeni og Range Rov- er-inn sem er ekið reglu- lega framhjá nýju bíla- geymslunni í Sundaborg er skráður á hann. Þorsteinn er ekki eini útrásarvíking- urinn sem geymir lúxusbif- reiðar sínar á nýja staðnum en Magnús Ármann og Hann- es Smárason eiga báðir bíla við höfnina. Félagarnir eiga það svo allir sameiginlegt að hafa set- ið í stjórn FL Group. Stöð 2 greindi frá því, sama dag og fyrsta umfjöllun DV um bílakjallarann birtist, að dótakassinn í Faxafeni væri meðal þess sem efnahagsbrotadeild lög- reglunnar væri að rann- saka og þá í tengslum við rekstrarreikning FL Group sem var, eins og flestir vita, sögulegur en fyrirtækið tapaði rúm- um sjötíu milljörðum króna á árinu 2007. Fraktin stutt frá Þeir sem horfðu á bílaflutningana á Sundahöfn tóku eftir því að nokkr- ar lúxusbifreiðarnar voru án öku- númera. Heimildarmaður DV sagði að til standi að flytja einhverja af bílunum utan og heimatökin ættu að vera hæg þar sem móttaka bíla til útflutnings er fyrir neðan bíla- geymsluna í Sundahöfn. Þá hefur eignarhaldi á mörgum af þeim bif- reiðum sem DV hefur fylgst með verið breytt upp á síðkastið. Þannig hefur Hannes Smárason flutt nokkrar bifreiðir á unnustu sína og Magnús Ármann hefur flutt bifreið- ir yfir á aðra fjölskyldumeðlimi sína til dæmis föður sinn. Miðað við umfang flutninganna og þá staðreynd að vörubifreið var notuð til að flytja suma þeirra verð- ur að teljast líklegt að almenningur megi ekki vita hvað er í dótakassan- um. Fjórhjól Þeir félagar úr fL group geta alltaf gripið í þetta fjórhjól sem geymt er í bílageymslunni þeirra niðri við sundahöfn. Sandbíll? Þetta skemmtilega leiktæki er í dótakassa útrásarvíkinganna. Vaktar svæðið Þessi range rover-bifreið steina í Kók kom á mikilli siglingu og negldi niður fyrir framan bílageymsluna. Ökumaður hennar stoppaði í smátíma fyrir utan, talaði í farsímann, og keyrði síðan á brott. Magnús Ármann Á húsnæðið og nokkrar lúxusbifreiðir sem þar eru geymdar. Er nýbúinn að flytja nokkrar lúxusbifreiðir yfir á nafn föður síns. Hannes Smárason aðaltöffarinn í fL group. Átti húsnæðið sem hýsti „gömlu“ bílageymsluna. Á bíla í sundaborg líka og hefur, líkt og magnús Ármann, flutt nokkra bíla yfir frá nafni sínu og yfir á unnustuna. Þorsteinn M. Jónsson range rover-bifreið steina í Kók hefur sést fyrir utan báðar bílageymslurnar. Hann kannast samt ekki við neitt. AtLi MÁr GyLFASon blaðamaður skrifar: atli@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.