Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2009, Side 8
fimmtudagur 19. mars 20098 Fréttir
Sléttari og þéttari húð
Formar fótleggina
Minkar þrota og bjúg
Tekur burt þreytu
Eykur úthreinsun
sogæðakerfisins
Snyrtisetrið
Heilsuverndarstöðin (norður endi) l Barónsstíg 47 l 101 Reykjavík l Sími 533- 3100
CELLULITE
meðferð
Árangur sést strax
Betri líðan
Persónuleg ráðgjöf
Kveðja til þeirra sem eru í baráttunni við
Cellulite (appelsínuhúð)
l
l
l
l
l
H
ild
ur
H
lín
Jó
ns
dó
tt
ir
/ h
ild
ur
@
dv
.is
Munið gjafakortin!
Óbreytt verð!
TILBOÐ
Persónulegu tölvupóstfangi Dorrit-
ar Moussaieff forsetafrúar hefur ver-
ið dreift á íslenskri barnaklámsíðu.
Vefsíðan er þekkt barnaklámsíða sem
hefur oftar en einu sinni og oftar en
tvisvar lent á borði lögreglunnar en
svo virðist sem lögreglan standi ráð-
þrota gagnvart níðingunum sem láta
allt flakka í skjóli nafnleysis.
Vissi ekki af þessu
DV hafði samband við Örnólf Thors-
son, ritara forseta Íslands, en hann
vildi ekkert tjá sig um málið að öðru
leyti en að hann hafi ekki heyrt af
þessu. Örnólfur var staddur ásamt
forseta Íslands á Snæfellsnesi en for-
setafrúin var fjarri góðu gamni, hún
er erlendis.
Ekki er að sjá á síðunni hvers
vegna nafn og netfang Dorritar hefur
verið sett þar inn með þeim tilmælum
að veist sé að henni.
Dorrit „spömmuð“
Á vefsíðunni er fólk beðið um að „spa-
mma“ tölvupóstfang Dorritar. Að spa-
mma er mállýska úr tölvuheiminum
en þýðir á mannamáli að leggja tölvu-
póstfang í hálfgert einelti. Þetta er gert
þannig að tölvupóstfangið er skráð á
hinar ýmsu klámsíður og auglýsinga-
lista á netinu en með því fær viðkom-
andi tölvupóstfang heilan helling af
alls kyns ruslpósti. Flestir tölvupóst-
fangsnotendur kannast við þenn-
an ruslpóst. Erfitt er að eiga við slík-
an tölvupóst þar sem ekki er auðvelt
að skrá sig af slíkum listum. Listarnir
ganga síðan á milli þeirra sem vinna
við að senda út ruslpóst og því mun
viðkomandi tölvupóstfang fá gríðar-
legan ruslpóst um ókomna tíð.
Ógeðfelldir níðingar
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þeir
sem skrifa á ringulreid.org komast í
fréttirnar en DV hefur fjallað reglu-
lega um vefsíðuna og þá sérstaklega í
tengslum við ungt fólk sem hefur lagt
fram kæru á hendur þeim sem eiga
vefsíðuna. En hver á vefsíðuna? Svo
virðist sem að enginn viti hver á hana
og lögreglan er svo gott sem ráðþrota
gagnvart henni enda erfitt mál þar
sem vefsíðan er hýst erlendis. Á með-
an birta níðingarnir myndir af ungum
íslenskum stúlkum í tugatali, bæði fá-
klæddum og nöktum, auk þess sem
upplýsingar eins og símanúmer, net-
fang og heimilisfang eru látin flakka
með.
Eftir því sem DV kemst næst er
lögreglan samt sem áður að vinna að
rannsókn sem lýtur að síðunni. Björg-
vin Björgvinsson, yfirmaður kynferð-
isafbrotadeildar hjá lögreglunni í
Reykjavík, sagði í viðtali við DV í lok
síðasta árs að þeir hafi unnið að rann-
sókninni í samvinnu við lögregluna
í Danmörku. Ekki náðist í Björgvin í
gær vegna málsins.
Forsetafrú Íslands, Dorrit Mousaieff, er nýjasta fórnarlamb íslenskra barnaperra en þeir hafa nú dreift
tölvunetfangi Dorritar á vefsíðunni ringulreid.org. Á vefsíðunni skiptast menn á að níða fólk allt niður í
fjórtán ára með því að birta myndir af því nöktu. Þá skiptast menn einnig á upplýsingum um vefsíður sem
hýsa barnaklám.
dV-forseti-54_duLLa.jpg
dV-ringulreid.jpg
Atli Már GylfAson
blaðamaður skrifar: atli@dv.is
Barnaperrar
ráðast á Dorrit
forsetafrúin
dorrit mousaieff er nú
lögð í einelti af íslensk-
um barnaníðingum.
fréttin
Þetta birtist á vefsíðunni ringul-
reid.org þar sem fólk er hvatt til
að „spamma“ forsetafrúna.
Á vefsíðunni er fólk beðið
um að „spamma“ tölvu-
póstfang Dorritar.