Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2009, Qupperneq 12
fimmtudagur 19. mars 200912 Fréttir
Fritzl játar
fulla sekt
Jósef Fritzl venti sínu kvæði í
kross og eftir að hafa horft á ell-
efu klukkustunda langan vitn-
isburð Elísabetar dóttur sinnar,
sem fluttur var á myndbandi,
játaði hann sekt í öllum ákæru-
atriðum.
„Ég játa sekt í öllum atriðum
ákærunnar,“ sagði Jósef Fritzl,
þeirra á meðal manndrápi vegna
gáleysis vegna dauða nýfædds
sonar hans og Elísabetar.
Sinnaskiptin fela einnig í sér
breytingar á „hluta“ sektar vegna
ákæru um nauðgun, í fulla sekt.
Fyrir hafði Jósef sagst saklaus af
morði og að hafa haldið fórnar-
lömbum sínu nauðugum viljug-
um í kjallaranum, en þær ákær-
ur voru alvarlegastar. Reiknað
er með að réttarhöldunum ljúki
í dag.
Trúin og
lífsbaráttan
Niðurstöður bandarískrar rann-
sóknar benda til að strangtrúað-
ir virðist vilja að læknar geri allt
sem í þeirra valdi stendur til að
halda þeim á lífi.
Í rannsókninni var fylgst með
345 sjúklingum með banvænt
krabbamein þar til yfir lauk.
Þeir sem báðust fyrir reglulega
voru þrisvar sinnum líklegri til
að þiggja meðferð sem lengdi
lífdaga þeirra, en þeir sem ekki
treystu á trúna. Yfir þrjátíu pró-
sent aðspurðra sögðu að trúin
„hefði mesta vægið í lífsbarátt-
unni“.
Þeir sem stóðu að rann-
sókninni, sem gerð var af hálfu
Dana-Faber-krabbameinsstofn-
unarinnar, komust að því að
minnstar líkur voru á að þeir
sem báðust reglulega fyrir skrif-
uðu undir fyrirmæli um að ekki
mætti reyna að endurlífga þá.
AIG í kröppum
dansi
Tryggingafyrirtækið American
International Group, AIG, hefur
hafnað kröfu aðalsaksóknara
New York um að láta af hendi
upplýsingar um þá sem nutu
góðs af 165 milljóna bónus-
greiðslum fyrirtækisins, en Bar-
ack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, sagði bónusgreiðslurnar
forkastanlegar og að AIG væri
„fyrirtæki sem glímdi við fjár-
hagslegan vanda sökum ábyrgð-
arleysis og græðgi“.
Andrew Ciomo, saksókn-
ari í New York, hótaði að stefna
fyrirtækinu til að fá upplýs-
ingar um nöfn, starfslýsingu
og frammistöðu þeirra sem fá
greiddan bónus. Hugsanlega eru
bónusgreiðslurnar ólöglegar ef
um þær var samið á þeim tíma
þegar stjórnendur AIG vissu að
ekki var til fé til að standa undir
þeim.
Kynferðisbrotum fjölgar innan raða bandaríska hersins:
allt frá káfi til nauðgunar
Samkvæmt árlegri skýrslu varnar-
málaráðuneytis Bandaríkjanna fjölg-
aði tilkynningum um kynferðislegt
ofbeldi innan raða bandaríska hers-
ins í Írak og Afganistan um tuttugu
og sex prósent árið 2008 miðað við
2007. Sé horft til allra starfandi her-
manna Bandaríkjanna nemur fjölg-
un tilfella kynferferðislegs ofbeldis
um átta prósentum í samanburði við
árið 2007.
Doktor Kaye Whitley, forstjóri
deildar varnarmálaráðuneytisins um
forvarnir kynferðisbrota, sagði að
niðurstaða skýrslunnar benti til þess
að starfsmenn hersins, sem yrðu fyr-
ir kynferðislegu ofbeldi og tilkynntu
um það, óttuðust ekki í sama mæli
og áður viðbrögð yfirmanna og jafn-
ingja.
„Fjölgun tilkynninga sýnir að sú
stefna deildarinnar að hvetja fórnar-
lömb til að gefa sig fram hefur áhrif,“
sagði Whitley.
Á fjárhagsárinu 2008, sem hófst
1. október 2007, var tilkynnt um 165
kynferðisbrot í Írak og Afganistan.
Fjárhagsárið 2007, sem hófst 1. okt-
óber 2006, var tilkynnt um 131 kyn-
ferðisbrot.
Á fjárhagsárinu 2008 var tilkynnt
um 2923 kynferðisbrot á meðal allra
starfandi hermanna Bandaríkjanna,
miðað við 2.688 tilkynningar árið á
undan.
Bandaríkin eiga 1,4 milljónir
starfandi hermanna víða um heim
og sagði Whitley erfitt að henda
reiður á hver eiginleg fjölgun kyn-
ferðisbrota væri. „Líkt og í borg-
aralegu samfélagi þá er ómögulegt
að vita hve mörg brotin eru,“ sagði
hún.
Skýrsluhöfundar skilgreina kyn-
ferðisleg brot sem óæskilega snert-
ingu, allt frá káfi til nauðgunar.
Bandarískir hermenn bregða á leik myndin snertir fréttina ekki beint. mynd AFP
Ummæli Benedikts XVI páfa um að smokkar gerðu illt verra í baráttunni gegn HIV-
sýkingu og útbreiðslu alnæmis ollu reiði á meðal starfsfólks heilbrigðisstofnana sem
reyna að stemma stigu við útbreiðslu sjúkdómsins í Afríku. Páfi lét ummælin falla áður
en hann kom til Afríkuríkisins Kamerún, en hann er í sex daga heimsókn í Afríku.
Benedikt XVI páfi er nú í sinni fyrstu
heimsókn í Afríku og hafði ekki drep-
ið fæti á afríska jörð þegar hann var
kominn upp á kant við heilbrigðis-
stofnanir sem gera sitt ýtrasta til að
stemma stigu við útbreiðslu HIV-
smits og alnæmis í sunnanverðri álf-
unni þar sem áætlaður fjöldi smitaðra
er um tuttugu og tvær milljónir.
Það sem fór fyrir brjóstið á þeim
sem berjast gegn útbreiðslu sjúk-
dómsins voru ummæli sem Benedikt
páfi lét falla á leið til Kamerún þegar
hann sagði að notkun smokka væri
ekki lausnin á baráttunni gegn HIV
og alnæmi í álfunni. En páfi bætti um
betur og sagði að smokkar gætu gert
illt verra.
Um sextíu og sjö prósent þeirra
32,9 milljóna sem sýktar eru af HIV
búa í Afríku sunnan Sahara og sjötíu
og fimm prósent allra dauðsfalla af
völdum alnæmis árið 2007 áttu sér
stað á því svæði.
Ummæli Benedikts XVI páfa voru
fordæmd af aðgerðarsinnum í mann-
réttindamálum sem og á hinum kaþ-
ólska væng, og sagt að þau sýndu að
páfi væri ekki í nokkurri snertingu við
rauveruleikann og að hann mælti fyrir
ómannúðlegum stefnum sem myndu
auka á þjáningar saklauss fólks.
Lausnin felst ekki í fé eingöngu
Rómversk-kaþólska kirkjan hvetur
fólk til kynlífsbindindis og tryggðar
til að koma í veg fyrir útbreiðslu sjúk-
dómsins.
Benedikt XVI páfi sagði að ástand
mála í Afríku með tilliti til sjúkdóms-
ins væri „harmleikur sem ekki yrði
sigrast á með fé eingöngu, sem ekki
yrði sigrast á með því að deila út
smokkum, sem jafnvel ykju á vanda-
málið“.
Eins og við var að búast féllu um-
mæli páfa í grýttan jarðveg hjá starfs-
fólki heilbrigðisstofnana í Afríku. Re-
becca Hodes, hjá Treatment Action
Campaign í Suður-Afríku, sagði að ef
páfa væri alvara í að vinna gegn nýj-
um sýkingartilfellum myndi hann
mælast til þess að aðgengi að smokk-
um yrði betra og útbreiddara og
hann myndi miðla upplýsingum um
hvernig best væri að nota smokka.
Vonir sem kviknuðu fyrir um
tveimur árum síðan virðast ekki ætla
að rætast, en þá veltu menn vöngum
yfir því hvort Páfagarður myndi gera
breytingar á banni sínu við notkun
smokka, eftir að Carlo Maria Mart-
ini kardínáli, fyrrverandi erkibisk-
up í Mílanó, sagði að í samböndum
þar sem annar aðilinn væri HIV-sýkt-
ur eða hefði alnæmi væri notkun
smokka „minna ill“.
Trúarsetningar ofar
afrískum lífum
„Þess í stað ber andstaða hans við
smokka þess vitni að hann setur
trúarkenningar ofar lífi Afríkubúa,“
sagði Rebecca Hodes.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Benedikt XVI páfi tjáir sig opinber-
lega um mál sem varða HIV og al-
næmisfaraldurinn sem geisar í álf-
unni. Skömmu eftir að hann var
kjörinn páfi 2005 sagði hann við hátt-
settan kaþólskan guðsmann frá Afr-
íku að þrátt fyrir að sjúkdómurinn
væri „grimmilegur faraldur“ þá væru
smokkar ekki lausnin.
„Það hefur sýnt sig að hinar hefð-
bundnu kennisetningar kirkjunn-
ar eru eina örugga leiðin til að koma
í veg fyrir útbreiðslu HIV-sýkingar og
alnæmis,“ sagði Benedikt páfi þegar
hann ávarpaði biskupa frá Suður-Afr-
íku, Botsvana, Svasílandi, Namibíu
og Lesoto, sem höfðu komið til Páfa-
garðs. Við sama tækifæri varaði Bene-
dikt páfi við því að lífi Afríkubúa stæði
ógn af nokkrum þáttum, þeirra á
meðal smokkum. Benedikt páfi sagði
að það væri áhyggjuefni að efniviði
lífs Afríkubúa, uppspretta vonar og
stöðugleika, væri ógnað af „skilnuð-
um, fóstureyðingum, mansali og hug-
arfari sem fylgir getnaðarvörnum“.
Þess má geta að þensla rómversk-
kaþólsku kirkjunnar er hvergi meiri
en í Afríku um þessar mundir, þar
sem hún keppir við íslamstrúna og
evangelísku kirkjuna.
KoLBeInn þorsTeInsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
„Það hefur sýnt sig
að hinar hefðbundnu
kennisetningar kirkj-
unnar eru eina örugga
leiðin til að koma í veg
fyrir útbreiðslu HIV-sýk-
ingar og alnæmis.“
FordæmIr
noTkun
smokkA
Undir merki AIds Kamerúnar
veifa Benedikt XVi páfa.