Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2009, Side 15
fimmtudagur 19. mars 2009 15Umræða
Hver er maðurinn? „Ég sjálfur.“
Hvað drífur þig áfram? „Það er
mataræði.“
Hvar ólstu upp? „Í reykjavík.“
Hvar líður þér best? „mér líður
best í sjálfum mér.“
Uppáhaldslagið þitt? „Ekki
sleifarlag.“
Skemmtilegasta íslenska hljóm-
sveitin um þessar mundir? „Ég er
ekki alveg inn í þessu nýjasta nýja, en
mér hefur þótt margt gott koma frá
hljómsveitinni múgsefjun.“
Um hvað fjallar lagið Samstaða?
„Það fjallar um gildi þess að sýna
samtöðu og iðka samstöðu.“
Munt þú koma til með að semja
fleiri lög á væntanlegri plötu?
„Það gæti nú alveg farið svo.
Platan er á teikniborðinu ennþá, en
hljómsveitin er mér skyld.“
Gaman að vinna með Stuð-
mönnum á ný? „Þetta er frábær-
lega skemmtilegur hópur eins og
það að koma með lag, þó að það
sé ungt að aldri, þá gengur það
strax í endurnýjun lífdaga þegar
hljómsveitin fer um það höndum.
Það er engin hljómsveit að mínu viti
sem snertir stuðmenn hvað varðar
sköpunarkraft og kunnáttu - fyrir
utan það hvað snilldarstuðullinn er
óvenjulega hár.“
Hvernig verður nýja platan? „Ég
held að engin geti sagt neitt um
það. Ég vona það að hún eigi eftir að
koma á óvart. Ég hef grun um það að
hún verði fjölskrúðug.“
Notar þú Facebook?
„Nei. Ég er að vinna á tölvu allan
daginn og þá er ég kominn með nóg.“
Björn HelGaSon
63 ára byggiNgafræðiNgur.
„Já, ég nota þetta daglega.“
Una GUðný PálSdóttir
32 ára hEimaviNNaNdi húsmóðir
„Já, ég fer inn á þetta tvisvar til þrisvar
sinnum á dag.“
SiGUrlaUG HelGadóttir
23 ára hEimaviNNaNdi húsmóðir
„Já, svona einu sinni á dag.“
MaGnúS örn MaGnúSSon
25 ára vErsluNarmaður
Dómstóll götunnar
ValGeir GUðjónSSon
tónlistarmaður samdi fyrsta lag
stuðmanna af væntanlegri breiðskífu
sem kemur út með haustinu. fyrsta
smáskífa þessarar ástsælu sveitar
heitir samstaða og mun hljóma á
útvarpsrásum landsins eftir nokkra
daga. hann útilokar ekki að semja
fleiri lög fyrir stuðmenn.
SnilldarStuðull
Stuðmanna
óvenjulega hár
„Já eins og svo margir. Ég kíki á þetta
daglega.“
HlynUr örn tóMaSSon
20 ára mh-iNgur
maður Dagsins
Vel má vera að fyrir um áratug hafi
það runnið upp fyrir Davíð Oddssyni,
þáverandi forsætisráherra, að með
því að einkavæða eignir almennings
og gefa viðskiptalífinu lausan taum-
inn, með rúmum reglum og fjórfrelsi
EES-samningsins, væri viss hætta á
ferðum. Viðskiptajöfrar gætu seilst
til mikilla valda og farið sínu fram
án þess að réttarvörslukerfið og aðr-
ar stofnanir ríkisins fengju rönd við
reist. Þetta væri þeim mun hættu-
legra sem þjóðfélagið væri fámenn-
ara og um leið viðkvæmara gagnvart
fákeppni og einokun en fjölmennari
samfélög. Upp gæti komið sú staða
að í krafti auðs og umsvifa fáeinna
einstaklinga yrði vegið að rótum lýð-
ræðisins. Hin nýja stétt auðkýfinga
yrði hafin yfir lög og rétt og lifði eft-
irleiðis í afslöppuðum eigin heimi
refsileysisins.
Kannski var þetta ástæðan fyrir
því að forsætisráðherrann tók að sér,
nánast persónulega, að fara gegn vax-
andi veldi Baugsfeðganna, Jóni Ól-
afssyni kaupsýslumanni og fleirum.
Voru þeir ekki búnir að sölsa undir
sig rekstur á mörgum sviðum og auk
þess fjölmiðla sem unnt var að beita
til aukinna umsvifa og áhrifa?
Gefum okkur að forsætisráðherr-
ann, sem síðar gerði sjálfan sig að
seðlabankastjóra, hafi raunverulega
haft í huga svo göfugt markmið sem
það að tempra vald viðskiptajöfra
þess nýja Íslands sem hann sjálfur
hafði skapað í nafni viðskiptafrelsis
og markaðshyggju.
lífið ofar lögunum
Nú þegar allt er hrunið og leitað er
orsaka hefur Eva Joly, rannsóknar-
dómari frá Frakklandi, verið kölluð
til. Eftir að hafa búið við stanslaus-
ar hótanir, hleranir og ógnanir árum
saman fékk Eva Joly því framgengt
að æðstráðendur Elf-olíufélagsins
franska voru ákærðir fyrir stórfelldan
fjárdrátt og dregnir fyrir rétt. Málinu
má líkja við Enron-málið í Bandaríkj-
unum að því leyti að ekki er auðvelt
að koma lögum yfir valdastéttina sem
býr að mati Evu við refsileysi ofar lög-
um sem öðrum er gert að fara eftir.
„Plágan sem ég hef afhjúpað á
ferli mínum – og hef aðeins fundið
smjörþefinn af – á sér ekkert nafn. Við
erum vön því að kalla þetta spillingu
eða siðleysi í viðskiptum. Ég vil frek-
ar nota orðið refsileysi, líf ofar lögum
þar sem menn eru sterkari en þau.“
Þannig kemst Eva Joly að orði í for-
mála að bók sinni Réttlæti í herkví.
Hún spyr: „Hvaða þjóðfélag kemst
af án trausts og trúverðugleika?
Hvaða lýðræði fær þrifist ef forrétt-
indastéttin hefur bæði vald til að
sniðganga lög og getur tryggt sjálfri
sér refsileysi?“
Eva neitar að ganga þessum skiln-
ingi á hönd. Útilokað sé að ala upp
börn í heimi þar sem valdamenn búi
í refsileysi ofar lögunum og aðeins
venjulegt fólk hafi skyldum að gegna.
illt rekið út með illu
Gallinn við aðgerðir Davíðs Oddsson-
ar fyrr á þessum áratug til að stemma
stigu við meintri samþjöppun valds
í höndum nýrrar valdamikillar auð-
stéttar er að hann fór sjálfur fyrir yf-
irstétt þessa lands sem formaður
Sjálfstæðisflokksins. Í krafti valda
sinn reyndi hann að beita stofnunum
samfélagsins gegn auðmönnum sem
voru honum – og þar með Flokkn-
um – ekki þóknanlegir. Hann reyndi
að setja fjölmiðlalög gegn þeim og
menn honum tengdir lögðu á ráðin
um Baugsmálið eins og vel er þekkt.
Það er ekki út í bláinn að segja að
yfirstétt þessa lands hafi ekki þurft að
hafa miklar áhyggjur af því að vera
sótt til saka, allra síst fyrir spillingu
eða stórfellt efnahagbrot. Dómstólar
virðast tregir til þess að dæma auð-
menn, líka hér á landi.
Eva Joly hefur reynt það í störf-
um sínum sem rannsóknardóm-
ari í Frakklandi að valdastéttin hef-
ur margvísleg ráð – oft í krafti auðs
– til þess að koma sér undan hrammi
laganna og lifa óttalaus við refsileysi.
Hún veit sem er að hnattvæðing laga-
og réttarfars er lífsnauðsynleg hnatt-
væðingu viðskiptanna. Skattaskjólin
á aflandseyjum eru dæmi óleystan
vanda í þessu efni.
„Lönd sem veita lögbrotum og
fjársvikum skjól ætti að útiloka og
neita þeim um forréttindi í bankavið-
skiptum. Lögbrot valdamanna eru
skaðvænleg fyrir mikilsverða þjóð-
arhagsmuni: Hert viðurlög, eignarn-
mám í þágu borgaranna og árvekni
banka eru varnir sem brotið geta nið-
ur slíkar ógnanir gegn samfélaginu,“
segir Eva Joly.
Yfirstéttin og refsileysið
kjallari
svona er íslanD
1 djammar meðan
konan jafnar sig
usher djammaði í París á meðan
eiginkona hans, tameka foster, jafnar sig
eftir fitusogsaðgerð sem dró hana
næstum því til dauða.
2 Slapp við 850 milljóna kúlulán
Eignarhaldsfélag í eigu finns
sveinbjörnssonar, þáverandi bankastjóra
icebank og núverandi bankastjóra
Kaupþings, fékk 850 milljóna króna
kúlulán frá nokkrum bönkum.
3 Himinháar hækkanir á
sólarlandaferðum
listaverð á ferðum til útlanda hefur
hækkað mikið frá því í fyrra, eða á bilinu
30 til 40 prósent.
4 „ekki fengið eina einustu
krónu afskrifaða“
björgvin g. sigurðsson segir sögur af
afskriftum skulda hans í bankakerfinu
stórlega ýktar lygasögur.
5 „djöfulleg útkoma“
„Það er rétt að þetta var djöfulleg
útkoma,“ segir Kristinn h. gunnarsson
þingmaður í samtali við fréttavefinn bb.is.
6 Bubbi verður að aðlaga sig
dr. gunni tjáir sig á bloggi sínu um
yfirlýsingar bubba morthens að hætta að
gefa út plötur vegna þess að allt of
margir sæki plötur hans á netið.
7 Fritzl sagður „eldfjall af
tilfinningum“
geðlæknir segir fritzl vera „eldfjall af
tilfinningum“.
mest lesið á dv.is
jóHann
HaUkSSon
útvarpsmaður skrifar
„Dómstólar virðast
tregir til þess að
dæma auðmenn, líka
hér á landi.“