Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2009, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2009, Blaðsíða 17
fimmtudagur 19. mars 2009 17Sport Bikarmeistararnir í sumarfrí? snæfell og stjarnan mætast í kvöld í oddaleik í einvígi sínu í átta liða úrslitum iceland Express-deildar karla. snæfell á heimaleikinn og fær bikarmeistarana í fjárhúsið sem hefur verið ógnarsterkt vígi í úrslitakeppninni undanfarin ár. snæfell vann auðveldan sigur, 93-81, í fyrsta leik liðanna í Hólminum en bikarmeistarar stjörnunnar svöruðu með enn sannfærandi sigri, 99-79, í Ásgarði á mánudaginn. Í þessari rimmu mætast bikarmeistarar þessa árs en snæfell, sem komst í úrslitaeinvígið í fyrra, varð bikarmeistari á síðasta tímabili. snæfell átti mun betra tímabil í iceland Express-deildinni en það lenti í þriðja sæti með þrjátíu stig en stjarnan endaði í því sjötta með tuttugu stig. „Við höfum aldrei óttast Real Madr- id eða þeirra endurkomu undanfar- ið. Við hugsum aðeins um okkur og áttum okkur fyllilega á að það verð- ur ekki auðvelt að vinna deildina í ár,“ segir landsliðsmaðurinn og leik- maður Barcelona, Eiður Smári Guð- johnsen, í viðtali við spænska blaðið AS. Eiður segir í viðtalinu að eðlilegt sé að Barcelona hafi tapað einhverj- um stigum að undanförnu enda geti ekkert lið leikið fullkomlega allt tímabilið. „Öll lið verða að berjast til loka tímabilsins og við höfum alltaf sagt að við munum ekki vinna alla leiki. Það sást líka þegar við fórum að tapa stigum en nú höfum við lagað það og höfum verið ógnarsterkir í síðustu leikjum,“ segir Eiður sem sjálfur hef- ur lítið fengið að spila síðustu vikur. „Ég vil frekar vera í okkar stöðu en stöðu Real Madrid. Ef við vinnum þá leiki sem við eigum eftir verðum við meistarar. Við treystum ekki á nokk- urt annað lið nema okkur sjálfa,“ seg- ir Eiður Smári Guðjohnsen. Barcelona er með sex stiga forskot í spænsku úrvalsdeildinni, La Liga, en var fyrir aðeins mánuði með tólf stiga forskot. Forskot sem ekki nokk- ur maður trúði að hægt væri að tapa niður og borgaði meðal annars veð- málafyrirtækið Betson öllum þeim út sem höfðu veðjað áður að Barce- lona yrði meistari. tomas@dv.is Eiður Smári Guðjohnsen í viðtali við AS: Óttumst ekki real madrid umsjón: tómas þór þórðarson, tomas@dv.is / sport@dv.is 30 days Apótekin & Heilsubúðirnar www.leit.is · Smellið á ristilvandamál Á gamla gamla verðinu. 30 days Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman. Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI Oxy tarm Apótekin & Heilsubúðirnar www.leit.is · Smellið á ristilvandamál Á gamla gamla genginu. Oxy tarm Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama oxy tarmið hamilton Ósáttur Lewis Hamilton, ökumaður mcLaren og heimsmeistari í formúlu 1, er allt annað en sáttur við nýja sigra- og stigakerfið í formúl- unni sem kynnt var í gær. Í því felst að sá ökumaður sem vinnur flestar keppnir á árinu hampi heimsmeistaratitlinum en ekki sá er hlýtur flest stig. stigakerfið verður óbreytt og notað til þess að raða í öll sæti nema það efsta. Einnig er það notað vinni tveir eða fleiri ökuþórar í jafnmörgum keppnum. Lewis Hamilton varð heimsmeistari í fyrra á ótrúlegan hátt og sigraði þar Brasilíumanninn felipe massa með einu stigi. Hann vann þó ekki flestar keppnir heldur massa. Hefði því nýja kerfið verið í gildi væri ferrari-maðurinn massa því heimsmeistari. „það ætti að vera sá sem er bestur yfir allt mótið,“ segir Hamilton sem verður að vinna fleiri keppnir nú en andstæð- ingurinn til að halda heimsmeistaratitli sínum. Ekkert að óttast Eiður smári hefur þó lítið spilað að undanförnu. mynd GEtty ImaGES Íslenska handknattleiksliðið, betur þekkt sem strákarnir okkar, er sko allt annað en eðlilegt. En þó á góðan hátt. Með fullskipað lið steinlá það fyrir Makedóníu síðasta sumar og gerði þar vonir um sæti á HM að engu. Tveimur mánuðum síðar stóð það með silfur- pening um hálsinn á Ólympíuleikum. Nú, nokkrum mánuðum eftir það var liðið mætt í martraðarhöllina í Skopje með stóran hluta liðsins meiddan, aðra tæpa vegna meiðsla og annan í banni. Þá, þegar enginn bjóst við neinu, dúkkuðu strákarnir okkar upp með magnaðan sigur, 29-26, og höfðu lítið fyrir því að bjóða landanum upp á enn eina rússíbanareiðina. Varnar- leikurinn var magnaður, fyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson traustur sem klettur og Aron Pálmarsson, já Aron Pálmarsson var engum líkur þegar mest á reyndi. dómgæslan upplifun Það gekk næstum allt upp í Skopje í gær. Þó Guðjón Valur og Aron hafi verið frábærir var vörnin gjörsam- lega stórkostleg með þá Ingimund og Sverre í flottu formi í miðjublokkinni. Þá var Björgvin Páll sterkur í markinu fyrir aftan þá og varði 14 skot. Gífur- lega vel taktískt leikið hjá íslenska lið- inu og sýnir gífurlegan styrk að klára svona erfiðan leik án jafnmargra mik- ilvægra leikmanna. „Þetta var alveg frábært, engin spurning um það,“ sagði afar þreyttur en hæstánægður landsliðsþjálfarinn, Guðmundur Guðmundsson, þeg- ar DV náði í hann eftir leikinn í gær. Hann átti þá í vændum langt ferðalag með liðið heim til Íslands til að mæta Eistum næsta laugardag og heimtaði þjálfarinn fullt hús. En varðandi sig- urinn sagði Guðmundur: „Við spil- uðum magnaða 6-0 vörn í fyrri hálf- leik og lékum agaðan sóknarleik allan tímann. Það þarf mikið til að landa sigri hérna. Aron Pálmars gerði frá- bæra hluti en liðið verður þó allt að fá mikið hrós,“ sagði Guðmundur sem var afar ánægður með dómgæsluna í leiknum en sjaldan hefur sést svona jöfn dómgæsla í mikilvægum leik í Austurblokkinni. „Þetta var bara upplifun að sjá þetta. Mér fannst dómararnir alveg frábærir og gerðu allt hárrétt,“ sagði Guðmundur Guðmundsson. Þrjú af fjórum Íslenska liðið leikur næst gegn Eist- um á Ásvöllum á laugardaginn. Lið sem er ekki hátt skrifað í handbolta- heiminum en gerði okkur þó þann greiða að stela dýrmætu stigi af Makedóníumönnum. Það eitt gerir sigurinn í gærkvöldi enn betri. Ísland hefur því náð í þrjú af fjórum stig- um á erfiðustu útivelli riðilsins, gegn Norðmönnum og Makedóníumönn- um. Ísland á því eftir þrjá leiki gegn „léttari liðunum“ og báða heimaleik- ina gegn sterku liðunum, Noregi og Makedóníu. Útlitið fyrir sæti á næsta heimsmeistaramóti er því ansi gott núna eftir sigurinn í gær. Hefndin er sæt Strákarnir okkar unnu magnaðan sigur á Makedóníu, 29-26, með lemstrað lið í Skopje í gærkvöldi. Ísland hefur nú sótt þrjú af fjórum stigum á erfiðustu útivellina án síns sterkasta liðs. tÓmaS ÞÓR ÞÓRÐaRSOn blaðamaður skrifar: tomas@dv.is traustur fyrirliðinn guðjón Valur dró vagninn og var markahæstur í gær. mynd amE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.