Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2009, Síða 21
Leikurinn sem allir Resident Evil-að-
dáendur hafa beðið eftir er kominn
út. Tölvuleikjadómurinn sem allir
Resident Evil-aðdáendur hafa beð-
ið eftir því að hata kemur út í dag.
Að því sögðu tel ég það rétt að það
komi fram að ég hef ekki mikið spil-
að forvera Resident Evil en ég aft-
ur á móti spila tölvuleiki gríðarlega
mikið og konan mín getur vitnað til
um það. Ég er þessi týpa sem er svo
gott sem opinn fyrir öllu og er þvílíkt
spenntur þegar ég er kominn með
nýjan leik í hendurnar. Í stuttu máli
er ég alls ekki fordómafullurn gagn-
vart einstökum leikjum og þar er
Resident Evil 5 engin undantekning.
Ég tók leiknum opnum örmum og
sat sveittur af spenningi fyrir framan
sjónvarpið heima og smellti honum í
tækið. Áður en ég fjalla hlutlaust um
leikinn ætla ég að segja ykkur þessar
„basic“ upplýsingar.
Resident Evil 5 er ekki fimmti leik-
urinn í seríunni heldur sjöundi leik-
urinn en sá fyrsti sem gefinn er út á
þriðju-kynslóðar leikjatölvur. Leikur-
inn er gefinn út af Capcom og styð-
ur sig við Havoc Physics grafíkvélina
sem hefur getið sér gott orð fyrir leiki
eins og Halo 3, The Elder Scrolls IV:
Oblivion og fleiri leiki í þeim dúr. Sag-
an á bak við leikinn er að mestu leyti
framhald af Resident Evil 4. Þær per-
sónur sem vinna saman (co-op) eru
þau Chris Redfield og Sheva Alomar.
Ég ætla samt ekki að eyða miklu plássi
í söguna og læt því hér við sitja.
Ef við byrjum á því góða í leikn-
um er grafíkin vægast sagt stórkost-
leg og hefur aldrei litið betur út,
sem er skiljanlegt þar sem leikurinn
er í fyrsta skiptið á þriðju-kynslóð-
ar-leikjatölvu. Þá er samvinnan eða
„co-opið“ skemmtileg tilbreyting en
í fyrri leikjum höfðu leikmenn þurft
að glíma við alls konar skepnur á eig-
in vegum. Ef þú átt ekki vini þarftu
ekki að hafa áhyggjur því þá sér tölv-
an um að stökkva í það hlutverk. End-
ingartíminn er einnig góður en leik-
urinn er um tólf tíma í spilun. Þegar
þú hefur klárað leikinn getur þú far-
ið að dunda þér við að ná í alls kon-
ar skildi sem faldir eru í borðunum...
til dæmis.
En hvað skiptir mestu máli fyrir
mig? Það er stjórnkerfið og þar fær
Resident Evil 5 vægast sagt fallein-
kunn. Hlutabréf í deCODE eru meira
virði en stjórnkerfi leiksins. Hverjum
datt það til dæmis í hug að það væri
nóg fyrir leikmanninn að geta aðeins
staðið kyrr á meðan hann miðar og
skýtur? Og þá kannski frekar: Hvernig
gat engum dottið það í hug að maður
þyrfti kannski að hreyfa sig á meðan?
Ég nenni ekki að hlusta á einhverja
eldheita aðdáendur RE-seríunnar
segja að svona hafi þetta alltaf verið –
það er satt en það er bara tóm steypa.
Þegar þú ert að etja kappi við einhverja
uppvakninga sem koma hlaupandi til
þín með sverð á við skakka turninn í
Pisa þá viltu bara hlaupa í burtu og
dæla í þá blýi á meðan...en neeee-
iiii það er ekki hægt í RE5. Þú verð-
ur bara gjöra svo vel að standa kyrr,
miða og skjóta – hlaupa síðan á ann-
an stað, standa kyrr og skjóta. Rugl.
Og til að toppa vitleysuna verður
maður að nota hníf þegar skotin eru
búin, sem gerist nokkuð oft, og þá er
ekki heldur hægt að hlaupa?!?!?!?! Þú
verður bara að standa kyrr og slá til
uppvakninganna akkúrat þegar þeir
koma hlaupandi til þín. Datt engum í
hug að mann langaði bara að hlaupa
að kvikindinu, slæsa það í drasl á
ferðinni og hlaupa síðan í burtu? Að
hugsa um þetta gerir mig bara pirrað-
an. Eina ljósið í myrkrinu fyrir ykkur
sem hafið nú þegar fest kaup á gripn-
um er að hann er vondur en venst.
Ef þú vilt alvöru hrollvekjuleik
mæli ég með Dead Space. RE5 fær
tvær og hálfa stjörnu og það er ekki
stjórnkerfinu að þakka. Stjörnurnar
fást fyrir sjúklega flotta grafík og nýja
co-op-spilun...búið.
Atli Már Gylfason
Orlofsíbúðir í Stykkishólmi til útleigu í lengri
eða skemmri tíma. Um er að ræða 12 lúxusí-
búðir sem eru tilvaldar fyrir golfáhugamenn,
fjölskyldufólk og starfsmannafélög.Í hverri
íbúð er sjónvarp, DVD og hljómflutningstæki,
örbylgjuofn og uppþvottavél. Bærinn er í 2ja
klukkustunda fjarlægð frá Reykjavík. Hafið
samband í fyrirspurn@orlofsibudir.is og í
gsm 861 3123
Húsnæði í boði
Vantar eignir á skrá í Kópavogi og Garðabæ.
www.lmk.is
Íbúð til leigu
4ra herbergja íbúð til leigu. Svæði 109, laus
mjög fljótlega. Upplýsingar í síma 557-5515
Íbúð til leigu
Til leigu er 3ja herbergja íbúð á Völlunum, í
Hafnarfirði. Verð 110 þús, hiti, rafmagn og
hússjóður innifalin. Laus strax. Upplýsingar í
síma 692-0717, 893-7043
auglýsingasíminn er
512
70
50
Smáauglýsingasíminn er
515 5550
smaar@dv.is
fimmtudagur 19. mars 2009 21Fókus
á f i m mt u d e g i
Pilatus í Hinu Húsinu
Hljómsveitin Pontiak Pilatus spilar á Fimmtudagsforleik í
Hinu húsinu í dag. Gengið er inn í húsið Austurstrætismeg-
in en tónleikarnir fara fram í kjallara hússins. Ekkert kostar
á tónleikana en aldurstakmark er 16 ár. Sveitina skipa þeir
Trausti Laufdal, Óskar Þór Arngrímsson, Aðalsteinn Lauf-
dal, Gunnar Skjöldur Baldursson og Þór Carlsson.
stieg á toPPinn
Bókin Karlar sem hata konur er
mest selda bókin dagana 11. til
17. mars samkvæmt metsölulista
Eymundsson og Bókabúðar Máls
og menningar. Bókin er eftir Stieg
Larsson og er nýkomin út í kilju.
Bókin Justice Under Siege eftir rík-
isstjórnarráðgjafann Evu Joly fer úr
fjórða sæti í annað sæti. Konur eftir
Steinar Braga er í þriðja sæti en hún
var í því fyrsta í síðustu viku. Í fjórða
og fimmta sæti er svo Einar Kárason
með bækurnar Ofsa og Óvinafagn-
að.
Hosur grænar
Rapparinn Sesar A frumsýndi ný-
lega myndband við lagið Hosur
grænar af hans þriðju og nýjustu
sólóplötu, Of gott. Í laginu er
rappað á þremur mjög svo ólík-
um tungumálum, eða íslensku,
spænsku og japönsku. Ásamt
Sesari rappa í laginu félagar hans
Mel og Shinya sem eru frá Kúbu
og Japan. Allir þrír eru í sveit-
inni IFS sem samanstendur af
níu einstaklingum frá átta lönd-
um. Hægt er sjá myndbandið á
myspace.com/sesara1.
Vondur en
Hann Venst
Resident evil 5
Útgefandi: Capcom
Tegund: Þriðju-persónu skotleikur
Spilast á: X360 og Ps3
tölvuleikir
Flott grafík Það allra
flottasta við þennan leik
er grafíkin og umhverfið.
Dööhhh? Það er aðeins hægt að standa kyrr og miða í leiknum...pirrandi.