Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2009, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.2009, Page 6
miðvikudagur 22. apríl 20096 Fréttir Á þeim tíma sem Gunnar Birgis- son, bæjarstjóri í Kópavogi, var stjórnarformaður Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna (LÍN) fékk út- gáfufélag dóttur hans, Frjáls miðl- un, rúmar ellefu milljónir króna greiddar frá sjóðnum vegna ým- iss konar þjónustu sem tengist útgáfustarfsemi. Ekki eru nánari upplýsingar um eðli verkefnanna í bókhaldi Lánasjóðsins. Þetta kem- ur fram í upplýsingum sem starfs- menn Lánasjóðsins hafa tekið saman að beiðni DV. Starfsmenn Lánasjóðsins fóru yfir bókhald sjóðsins allt frá árinu 1992 þegar Gunnar tók við sem stjórnarformaður LÍN og fram til ársins 2009 þegar Katrín Jakobs- dóttir, nýskipaður menntamála- ráðherra, vék stjórninni frá og skipaði nýja. Ekki útboðsskylda Frjáls miðlun er útgáfufélag sem dóttir Gunnars, Brynhildur Gunn- arsdóttir, á og rekur ásamt eigin- manni sínum, Guðjóni Gísla Guð- mundssyni. Félagið sérhæfir sig meðal annars í auglýsingagerð, tölvuvinnslu og útgáfustarfsemi hvers konar, samkvæmt hlutafé- lagaskrá. Samkvæmt upplýsingum frá Guðmundi Hannessyni, forstöðu- manni ráðgjafasviðs hjá Ríkis- kaupum, er ríkisstofnunum ekki skylt að bjóða út verk sem kosta innan við fimm milljónir króna og er því ólíklegt að verkin sem Frjáls miðlun fékk frá LÍN hafi verið boð- in út. Upplýsingar frá Lánasjóðn- um koma heim og saman við þetta en samkvæmt þeim er sjóðnum ekki skylt að bjóða út öll verk sem keypt eru. Í flestum tilfellum er það fram- kvæmdastjóri LÍN sem tekur ákvörðun um við hvaða fyrirtæki eigi að skipta. Núverandi fram- kvæmdastjóri lánasjóðsins heit- ir Guðrún Ragnarsdóttir og tók hún við stöðunni í byrjun febrú- ar. Greiðslurnar til dóttur Gunn- ars áttu sér því stað áður en hún kom að sjóðnum. Framkvæmda- stjóri LÍN á undan Guðrúnu var Steingrímur Ari Arason, núverandi forstjóri Sjúkratryggingastofnun- ar, sem gegndi starfinu frá árinu 1999. Gunnar neitar aðkomu Aðspurður um hvort hann hafi átt þátt í að veita Frjálsri miðlun verk- efni sem það fékk greiddar fyr- ir rúmar ellefu milljónir króna á umræddu tímabili segir Gunnar Birgisson að það hafi alfarið verið framkvæmdastjóri Lánasjóðsins sem tók ákvarðanir um við hvaða fyrirtæki ætti að skipta. „Ég hafði ekki milligöngu um það. Ég var bara formaður stjórnarinnar. Það þarf bara að spyrja framkvæmda- stjórana að þessu,“ segir Gunnar og bætir því við að hann hafi ekki einu sinni haft hugmynd um að Frjáls miðlun hefði unnið fyrir Lánasjóð- inn. Ekki náðist í Steingrím Ara Ara- son við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Rúmar 50 milljónir til dóttur- innar Upplýsingarnar um greiðslur LÍN til félagsins koma fram í kjölfar fréttar DV frá því í síðustu viku um að Frjáls miðlun hafi samkvæmt heimildum fengið greiddar rúm- ar 40 milljónir frá Kópavogsbæ á síðustu sex árum fyrir alls kyns út- gáfustarfsemi. Frjáls miðlun hefur í flestum tilfellum fengið þau verk sem félagið hefur unnið fyrir Kópa- vogsbæ án útboðs en meðal ann- ars er um að ræða gerð ársskýrslu fyrir Kópavogsbæ sem dreift hefur verið inn á heimili Kópavogsbúa á liðnum árum. Tengsl Frjálsrar miðlunar við Kópavogsbæ hafa löngum verið tortryggð og meðal annars birtist frétt í DV í janúar árið 2005 um að minnihlutinn í bæjarstjórn væri ósáttur við að félagið fengi verk- efni frá bænum án útboðs. Þessi óánægja minnihlutans náði svo há- marki fyrir tæpum tveimur vikum þegar bæjarfulltrúar Samfylking- arinnar, þau Guðríður Arnardótt- ir og Hafsteinn Karlsson, lögðu fram fyrirspurn á bæjarráðs- fundi þar sem þau óskuðu eft- ir upplýsingum um greiðslur frá Kópavogsbæ til Frjálsrar miðlunar tíu ár aftur í tím- ann og eins hvort verkefn- in hefðu farið í útboð áður en þeim var úthlutað til félagsins. Gunnar hefur neitað því að nokkuð óeðlilegt hafi átt sér stað í viðskiptum Frjálsrar miðlunar og Kópavogsbæjar. Hann segir að þau verk sem Frjáls miðlun fékk hjá Kópavopsbæ hafi verið boðin út og að dóttir hans eigi ekki að líða fyrir það að faðir hennar sé bæjarstjóri. Samkvæmt Þór Jónssyni, for- stöðumanni almannatengsla hjá Kópavogsbæ, er unnið að því að safna umbeðnum upplýsingum um Frjálsa miðlun saman og munu þær liggja fyrir eins fljótt og auðið er að hans sögn. InGI F. VIlhjálmsson blaðamaður skrifar ingi@dv.is Útgáfufélagið Frjáls miðlun sem dóttir Gunnars Birgissonar, Brynhildur Gunn- arsdóttir, á og rekur ásamt eiginmanni sínum fékk rúmar 11 milljónir króna í greiðslur frá Lánasjóði íslenskra námsmanna á meðan faðir hennar var stjórnar- formaður sjóðsins. Samkvæmt heimildum DV hefur félagið einnig fengið rúmar 40 milljónir frá Kópavogsbæ á síðustu sex árum. Gunnar Birgisson þvertekur fyrir að hafa komið að því að dóttir hans fengi verk hjá Lánasjóðnum. DÓTTIR GUNNARS FÉKK 11 MILLJÓNIR FRÁ LÍN líka greiðslur frá lÍn guðríður arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylking- arinnar í kópvogi, lagði fyrr í mánuð- inum fram fyrirspurn um greiðslur frá kópavogsbæ til útgáfufélagsins Frjálsrar miðlunar. Nú hefur það fengist staðfest að félagið fékk rúmar 11 milljónir frá lánasjóði íslenskra námsmanna. milljónagreiðslur til dótturinnar dóttir gunnars Birgissonar, Brynhildur gunnarsdóttir, fékk greiddar rúmar 11 milljónir króna frá lánasjóði íslenskra námsmanna meðan faðir hennar var stjórnarformaður sjóðsins. neitar aðkomu að greiðslum gunnar Birgisson neitar því að hafa haft milligöngu um að dóttir hans fengi verkefni sem skiluðu útgáfufélagi hennar 11 milljónum króna meðan hann var stjórnarformaður líN. Össur fer mikinn gegn Bjarna Ben Össur Skarphéðinsson tekur Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, á beinið í færslu á bloggsíðu sinni. Hann segir að Bjarni hafi einkum getið sér orð fyrir einstakan hæfi- leika til að skipta oft um skoðun. Össur gerir það sem hann kallar hringlandahátt Bjarna varðandi skattahækkanir og ESB að um- talsefni. „Honum hefur tekist að fara tvo heila hringi varðandi skattahækkanir. Frá landsfundi hefur hann verið jafnoft á móti skattahækkunum, og með þeim. [...] Sami hringlandaháttur birt- ist um ESB. Þar er Sjálfstæðis- flokkurinn einsog vönkuð kvíga, sem veit ekki hvað snýr upp eða niður.“ Eignaspjöll og þjófnaðir á Akranesi Töluvert var um eignaspjöll í umdæmi lögreglunnar á Akra- nesi í síðustu viku. Krotað var utan á íbúðarhús í bænum en þeir sem þar voru að verki þekkt- ust og telst það mál upplýst. Einnig var farið um borð í skip í Akraneshöfn og neyðarbauja eyðilögð ásamt því sem gerð var tilraun til innbrots í skipið. Á föstudagskvöld voru brotnar rúður í nýju verknámshúsi Fjöl- brautaskóla Vesturlands. Stjórnin sprung- in, segir Guðni Guðni Ágústsson segir að rík- isstjórn Samfylkingar og VG hafi sprungið á opnum fundi á Selfossi í fyrrakvöld. Þetta segir Guðni í samtali við vefinn sunn- lendingur.is. „Hún sprakk á opn- um fundi á Selfossi í gærkvöldi, allt járn í járn,“ segir Guðni við Sunnlending og vísaði í skoðana- ágreining milli Björgvins G. Sig- urðssonar og Atla Gíslasonar um aðild að Evrópusambandinu. Hátekjufólk með stóra sneið 615 tekjuhæstu fjölskyldurn- ar á Íslandi fengu í sinn hlut 4,2 prósent af heildartekj- um fjölskyldna í landinu árið 1993, en árið 2007 var hlutur þeirra af tekjum allra fjöl- skyldna orðinn 19,8 prósent. Þetta kemur fram í skýrslu sem þeir Arnaldur Sölvi Kristjánsson og Stefán Ólafs- son frá Háskóla Íslands unnu um þróun tekjuskiptingar á Íslandi frá 1993 til 2004. Þá segir í skýrslunni að á sama tíma og tekjur hátekjuhóp- anna jukust langt umfram tekjur annarra á Íslandi hafi stjórnvöld bætt um betur og lækkað stórlega skattbyrði hátekjuhópanna, með inn- leiðingu hins nýja fjármagns- tekjuskatts. Þorsteinn m. jónsson breytti lánum og slapp við gengistap: Tók ekki út arðinn Í DV í gær var Þorsteinn M. Jónsson, jafnan kenndur við Kók, sagður hafa látið Sólstafi ehf, móðurfélag Vífil- fells, greiða sér 250 milljóna króna arð árið 2007 þrátt fyrir að félagið hefði tapað hálfum milljarði á árinu. Samþykkt var fyrir því hjá félaginu að hann fengi arð sem umræddri upp- hæð nemur en á það reyndi aldrei. Í frétt blaðsins var tap félagsins sagt nema 521 milljón króna. Þorsteinn gerir athugasemdir við þessi atriði og segir þessa fjárhæð eiga við inn- leyst tap en tap ársins sem fært var á eigið fé hafi numið 245,2 milljónum króna sem sé hið eiginlega tap. Þá segir einnig í fréttinni að á félaginu hafi, samkvæmt ársreikningi 2007, verið lán upp á rúmlega einn og hálf- an milljarð í erlendri mynt. Lánið var í fréttinni uppreiknað með tilliti til gengisbreytinga og sagt standa í 3,2 milljörðum íslenskra króna. Þor- steinn segir þessa fullyrðingu frétta- rinnar ekki standast þar sem öllum erlendum lánum félagsins hafi ver- ið breytt í íslenskar krónur í byrjun ársins 2008 og félaginu hafi þannig verið forðað frá verulegu gengistapi. Samkvæmt upplýsingum Þorsteins var ofsagt í DV að hann hefði fengið arðinn. Hið rétta er að samþykkt var að hann fengi greiddan arð en hann nýtti sér ekki þá heimild. Þorsteinn m. jónsson Öllum erlendum lánum Sólstafa var breytt í íslenskar krónur í byrjun ársins 2008 .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.